Innlent

Fjórir á slysadeild eftir árekstur

Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir árekstur þriggja bíla á mótum Norðurfells og Vesturbergs um níuleytið í gærkvöldi en meiðsl allra reyndust minniháttar. Þurftu slökkviliðsmenn að beita klippum til að ná einum farþeganum úr flaki bílsins en allir þrír bílarnir voru fluttir á brott með kranabíl. Slökkviliðsmenn hreinsuðu einnig upp nokkra lítra af olíu eftir áreksturinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×