Eldflaugatilraunirnar fordæmdar 5. júlí 2006 19:15
Einhugur ríkir á alþjóðavettvangi um að fordæma tilraunir Norður-Kóreumanna með langdrægar eldflaugar. Undanfarinn sólarhring hefur sjö tilraunaflaugum verið skotið frá Norður-Kóreu og hafa þær allar hafnað í sjónum. Eldflaugarnar sjö sem Norður-Kóreumenn skutu á loft í nótt og í morgun eru af ýmsum stærðum og gerðum en í það minnsta ein þeirra er af tegundinni Taepodong-2 sem talin er geta dregið allt til austurstranda Bandaríkjanna. Eldflaugar af þessari tegund geta borið kjarnaodda og því er ekki að undra að íbúar Suður-Kóreu, Japans og Bandaríkjanna séu uggandi yfir þessum æfingum stjórnvalda í Pjongjang. Boðað var til neyðarfundar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag vegna málsins og þar var ályktunartillaga Japana þar sem skorað er á Norður-Kóreumenn að láta þegar í stað af tilraununum. Fundurinn var haldinn fyrir luktum dyrum og er ekki búist við að ályktunin verði borin undir atkvæði fyrr en á morgun. Hljóðið var hins vegar þungt í mönnum áður en hann hófst. Samstaða virðist ríkja innan öryggisráðsins um að fordæma tilraunirnar en þó er óvíst hversu langt verður gengið í þeim efnum. Norðurkóresk yfirvöld telja sig hins vegar í fullum rétti og virðast hvergi ætla að hvika. Viðræður við Norður-Kóreumenn um kjarnorkumál hafa staðið yfir með hléum undanfarin ár og telja stjórnmálaskýrendur að tilraunir þeirra nú séu öðru fremur liður í að bæta samningsstöðu sína í þeim.
Erlent Fréttir Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira