Sport

Bryant stigakóngur

Tveir áratugir eru síðan einn maður hefur verið jafn grimmur í stigaskorun  í NBA-deildinni og Kobe Bryant í vetur, en hann sló öll met hjá LA Lakers í þeirri tölfræði
Tveir áratugir eru síðan einn maður hefur verið jafn grimmur í stigaskorun í NBA-deildinni og Kobe Bryant í vetur, en hann sló öll met hjá LA Lakers í þeirri tölfræði NordicPhotos/GettyImages

Nú þegar deildarkeppninni í NBA-körfuboltanum er lokið, er ekki úr vegi að skoða hvaða leikmenn urðu hlutskarpastir í einstaka tölfræðiþáttum í vetur. Kobe Bryant hjá Los Angeles Lakers hirti stigakóngstitilinn með miklum yfirburðum og var með hæsta meðalskor leikmanns í deildinni í heil 20 ár. Bryant skoraði 35,4 stig að meðaltali í leik, það mesta síðan Michael Jordan skoraði 37 stig að meðaltali fyrir tveimur áratugum.

Í öðru sæti í stigaskorun varð Allen Iverson hjá Philadelphia með 33 stig að meðaltali í leik og LeBron James hjá Cleveland varð þriðji með 31,4 stig að meðaltali.

Frákastakóngur varð enn einu sinni Kevin Garnett hjá Minnesota með 12,7 fráköst í leik, Dwight Howard hjá Orlando annar með 12,5 fráköst og Shawn Marion hjá Phoenix varð þriðji með 11,8 fráköst.

Steve Nash gaf langflestar stoðsendingar að meðaltali í vetur eða 10,4 í leik. Baron Davis hjá Golden State kom annar með 8,9 í leik og Brevin Knight hjá Charlotte varð þriðji með 8,8 stoðsendingar í leik.

Gerald Wallace hjá Charlotte stal flestum boltum að meðaltali í vetur eða 2,51 í leik, félagi hans Brevin Knight varð annar með 2,28 og nýliðinn Chris Paul hjá New Orleans varð þriðji með 2,24.

Marcus Camby hjá Denver varði flest skot að meðaltali í leik 3,29, Andrei Kirilenko varði 3,19 og Alonzo Mourning varði 2,66 skot í leik.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×