Sport

Blikastúlkur burstuðu KR

Nýliðar Breiðabliks unnu auðveldan sigur á KRingum í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi, 89-58, en leikið var í DHL-Höllinni í Vesturbænum. Staðan í hálfleik var jöfn 31-31, en Blikastúlkur unnu síðari hálfleikinn 58-27. Bandaríska stúlkan Jessalyn Deveny fór á kostum í liði Blika og skoraði 39 stig, hirti 13 fráköst og gaf 4 stoðsendingar í leiknum, en næst kom Kristín Óladóttir, sem skoraði 16 af 17 stigum sínum í síðari hálfleiknum. Stigahæst hjá KR var Christina Smith með 12 stig. >



Fleiri fréttir

Sjá meira


×