Sport

Hópbílabikarinn í kvöld

Þremur leikjum er lokið í Hópbílabikarnu í körfubolta í kvöld. ÍRingar lögðu Tindastól 90-80 á Sauðárkróki, KR vann Hamar/Selfoss á útivelli 92-72 og Þór á Akureyri lagði Skallagrím 95-91. Úrslit úr leik Stjörnunnar og Keflavíkur verða tilkynnt fljótlega. Í leik Tindastóls og ÍR var Ales Zivanovic atkvæðamestur gestanna með 25 stig og 8 fráköst, en Ólafur Sigurðsson kom næstur með 17 stig. Hjá Stólunum var Svavar Birgisson stigahæstur með 25 stig. KRingar tryggðu sér sigurinn á Hamri/Selfossi með frábærum endaspretti, en þeir unnu lokaleikhlutann 31-12. Ashley Champion var stigahæstur í liði KR með 34 stig, 10 fráköst og 7 stoðsendingar, en hann hitti reyndar aðeins úr einu af ellefu þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Níels Dungal skoraði 17 stig, eins og Skarphéðinn Ingason, sem lék reyndar aðeins 16 mínútur í leiknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×