Sport

Larry Brown hellti sér yfir nýliða

Larry Brown, nýráðinn þjálfari New York Knicks, las nýliðanum Nate Robinson pistilinn um helgina þegar hann reyndi að kasta boltanum af spjaldinu og troða í leik gegn New Jersey Nets, með sinni fyrstu snertingu í leik með New York Knicks. Larry Brown tók æðiskast á hliðarlínunni og kippti nýliðanum strax af velli og las honum pistilinn. Larry Brown er mjög íhaldssamur þjálfari og er þekktur fyrir að brýna fyrir leikmönnum sínum að "spila á réttan hátt" og vill að menn haldi sig við grundvallaratriðin í leik sínum. Körfuboltasérfræðingar í Bandaríkjunum eru því á einu máli um að nýliðinn hefði geta valið sér margar aðrar betri leiðir til að stimpla sig inn og koma sér í náðina hjá þjálfara sínum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×