Sport

Sex æfingaleikir í NBA í nótt

Æfingatímabilið í NBA deildinni í körfubolta er nú komið á fullan skrið og í nótt voru sex leikir á dagskrá. Golden State burstaði Los Angeles Lakers á Hawai og meistarar San Antonio töpuðu öðrum leiknum í röð, nú gegn Washington. Golden State vann LA Lakers 112-81. Baron Davis skoraði 18 stig fyrir Golden State, en Kobe Bryant og Kwame Brown skoruðu 11 stig hvor fyrir Lakers. Washington lagði San Antonio 95-91. Jarvis Hayes skoraði 19 stig fyrir Washington en Beno Udrih var stigahæstur hjá San Antonio með 20 stig. Detroit lagði Milwaukee 95-88. Maurice Williams skoraði 19 stig fyrir Milwaukee, en Chauncey Billups setti 16 stig fyrir  Detroit og Darko Milicic skoraði 10 stig og hirti 9 fráköst á aðeins 18 mínútum. New Jersey burstaði Charlotte 95-76. Jason Kidd og Richard Jefferson skoruðu 10 stig fyrir Nets, en Antonio Meeking skoraði 14 fyrir Charlotte. Indiana lagði Utah 99-92. Ron Artest skoraði 23 stig fyrir Indiana en Deron Williams skoraði 17 fyrir Utah. New Orleans lagði Denver 100-90. Rashual Butler skoraði 19 stig fyrir New Orleans, en Carmelo Antony skoraði mest hjá Denver, 17 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×