Sport

Ísland U17 náði 7. sæti

U17 ára landslið Íslands vann Finna 4-2, á ÍR-velli í leik um 7. sætið á Opna Norðurlandamótinu í knattspyrnu í dag. Guðmundur Reynir Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir Ísland en Hilmir Ægisson og Rafn Andri Haraldsson eitt mark hvor. Írar urðu sigurvegarar mótsins en þeir lögðu Englendinga 2-0 í úrslitaleiknum á Laugardalsvelli í dag. Danir urðu Norðurlandameistarar eftir sigur á Svíum í vítaspyrnukeppni í leik um þriðja sætið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×