Sport

Þriggja stiga tap hjá stúlkunum

Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik tapaði í kvöld fyrir stöllum sínum frá Englandi með þriggja stiga mun, 66-63, en leikið var í Sheffield á Englandi. Þær ensku höfðu undirtökin allan leikinn, voru til að mynda yfir í hálfleik 29-27 og höfðu níu stiga forskot fyrir fjórða leikhluta, 52-43. Stigahæstar hjá íslenska liðinu voru Helena Sverrisdóttir með 24 stig og Birna Valgarðsdóttir með 23.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×