Google leitar að framtíð 8. ágúst 2004 00:01
Mikil spenna hefur verið fyrir fyrirhuguðu útboði netfyrirtækisins Google sem hefjast átti í vikunni. Nú kann svo að fara að því verði frestað að minnsta kosti um viku. Ástæðan eru hlutir sem voru gefnir út ólöglega og seldir ráðgjöfum og starfsmönnum. Einnig fengu um 300 manns kauprétt. Upphæðirnar nema engum smá fjárhæðum eða yfir 200 milljörðum króna. Fyrirtækið hefur boðist til þess að kaupa til baka kaupréttina og hlutabréfin með vöxtum. Gleði þessara fyrrum milljarðamæringa Silikondalsins er spillt og líklegt að þeir leiti réttar síns og vilji fá nokkuð fyrir snúð sinn. Breytt útboðsfyrirkomulag Hagsmunir Google er miklir af útboðinu og miðað við áhugann á útboðinu yrðu margir fyrir vonbrigðum með frestun þess. Langt er um liðið frá síðustu frumskráningu netfyrirtækis á markað. Þegar netbólan stóð sem hæst þénuðu uppáhaldskúnnar stórra banka gríðarlegar fjárhæðir. Hlutabréfin voru seld á föstu verði í útboðinu. Frumkaupendur innleystu mikinn hagnað af skammtímahækkun bréfanna. Eftirsóttustu fyrirtækin margfölduðust í verði á nokkrum dögum. Þegar netbólan sprakk sátu ýmsir eftir með sárt ennið þegar bréf sem keypt voru dýrum dómum urðu næsta verðlítil. Aðferð Google er að hafa verðið með bilinu frá 108 dollurum á hlut upp í 135 dollara á hlut og halda síðan uppboð. Aðferð sem er kölluð Hollenska aðferðin. Aðferðin er hugsuð til þess að hákarlarnir hafi ekki sama möguleika á að innleysa skyndigróða. Margir óttast hins vegar að sagan endurtaki sig. Græðgi smærri fjárfesta muni keyra verðið hratt upp í gengi sem framtíðartekjur fyrirtækisins muni aldrei geta staðið undir. Google er þekkt vörumerki. Hundruð milljóna manna nota þjónustu fyrirtækisins á hverjum degi. Almenn tilhneiging er til þess að verðmeta hærra það sem fólk þekkir vel. Hitt sé að margir skilji ekki Hollensku aðferðina. Þannig geti bréfin hækkað um 40 prósent, frá háu verði í útboðinu. Þeir sem kaupa bréf á því verði muni þurfa að greiða hátt gjald fyrir þekkingarskortinn. Hefðbundin flugeldasýning Hefðbundna leiðin væri að bjóða hlutinn á 20 til 25 dollara og fylgjast svo með flugeldasýningunni. Verðið myndi svo margfaldast og frumkaupendur hagnast vel. Hollensku aðferðinni er ætlað að tryggja almennum fjárfestum hlut á þolanlegu gengi. Hins vegar hafa margir efasemdir um að gengið 108 til 135 dollara sé þolanlegt. Erfitt sé að sjá að fyrirtækið, eins ágætt sem það er, geti staðið undir slíkum væntingum. Til þess þurfi vöxtur hagnaðar að verða gríðarlegur næstu misserin. Menn minna á að Netscape hafi á sínum tíma staðið nærri hjarta Wallstreet. Lítið sé eftir af þeirri ást. Fleira er í veginum. Hækkandi olíuverð og hryðjuverkaótti hefur lækkað markaði sem voru á leið til aukinnar bjartsýni. Markaðurinn óttast að olíuverðið muni draga úr kaupgetu almennings sem bitnar aftur á auglýsingamarkaðnum. Þaðan koma tekjur Google. Veiking markaðar og lækkun á gengi tæknifyrirtækja auka einnig á ótta manna um að útboðið geti mistekist. Fortíð Google ætti að veita nokkra huggun gegn efasemdarmönnum. Google stakk samkeppnisaðila sína af á markaði. Notkun leitarvélar þeirra er tvöfalt meiri en hjá samkeppnisaðilanum Yahoo. Hagnaður tveggja íslenskra banka Miðað við hærri upphæðina í útboðinu er fyrirtækið metið á 2.500 milljarða króna. sem er þreföld landsframleiðsla Íslendinga. Hagnaður síðasta ársfjórðungs var 5,6 milljarðar sem er um það bil sami hagnaður og hjá KB banka og Íslandsbanka samanlagt á tímabilinu. Það tekur núverandi hagnað fyrirtækisins 329 ár að greiða fyrir markaðsvirði sitt. Þetta hlutfall milli virðis og hagnaðar er tvöfalt hærra en hjá Yahoo. Enda þótt Yahoo standi Google að baki í leit á netinu, þá hefur þeim tekist betur upp að margra mati að þróa aðra tengda netþjónustu. Þessi aukna þjónusta framtíðarinnar eru rök þeirra sem telja Google góðan fjárfestingarkost, auk þess sem búist er við að vöxtur auglýsinga á netinu verði mikill á næstu árum. Verðið í útboðinu gerir ráð fyrir miklum vexti. Google tvöfaldaði stærð sína árvisst undanfarin ár. Upp á síðkastið hefur hægt á vextinum. Ný þjónusta er í smíðum hjá fyrirtækinu. Google keypti ljósmyndaþjónustuna Picasa. Þar geta notendur vistað og unnið með stafrænar ljósmyndir á netinu. Google bindur miklar vonir við að þessi þjónusta geti vaxið hratt. Sterkir keppinautar Þróun Internetsins er ör. Almennt efast menn ekki um að miklir tekjumöguleikar verði í ýmis konar þjónustu og tækni á netinu. Google tókst að skapa sér yfirburðarstöðu á einu sviði þessarar tækni og þjónustu. Það gefur vissulega fyrirheit. Google hefur líka sýnt að með markvissri vinnu og frjórri sýn geta ný fyrirtæki sprottið upp og náð sterkri stöðu á skömmum tíma. Lykillinn að sigurför Google hingað til gæti orðið helsta ógn þess til framtíðar. Ný þjónusta sem gefur vel af sér laðar fjöldan allan af keppinautum á markaðinn. Fyrir eru sterkir keppinautar í netþjónustu svo sem Yahoo, American Online og Microsoft. Þessir aðilar munu allir róa á mið framtíðarinnar. Framtíð Google er óskrifað blað. Leitin að nýjum tekjum og nýjum möguleikum er verkefni stjórnenda Google. Óvissan og efasemdarraddirnar sem skjóta nú upp kollinum eru ekki uppörvandi fyrir stjórnendur Google. Upp á móti þessu vegur hversu langt er síðan nýr vonarpeningur leit dagsins ljós á Nasdaqmarkaðnum. Óþreyjan eftir því, þekkt vörumerki og miklir framtíðarmöguleikar vega upp á móti efasemdarröddunum. Veröld hlutabréfanna er hverful og margir hafa nagað sig í handarbökin fyrir að hafa ekki stokkið á tækifæri sem hafa gert aðra ríka. Það er hættulegur hugsunarháttur við fjárfestingar, en stýrir engu að síður ákvörðun margra.
Erlent Fréttir Tækni Viðskipti Mest lesið Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira