Tíska og hönnun

Íslenska ullin heillar tískuheiminn
Hönnunartvíeykið Eley Kishimoto hefur endurhannað Selsham Víkur Prjónsdóttur og verður hann hluti af haustlínu hins fræga, breska tískuhússins.

Áhrif frá Miu Wallace og Mick Jagger
Áhrif níunda áratugarins verða allsráðandi í hártískunni næsta haust.

STÍLL – Alexa Chung
Breska tískudrósin Alexa Chung er fyrir löngu orðin þekkt fyrir að vera ein af best klæddu konum heims.


Rauði krossinn efnir til söfnunar á hönnunarvöru
Rauði kross Íslands hefur efnt til sérstakrar söfnunnar á hönnunarvöru í tilefni af HönnunarMars. Fólk er hvatt til að leyfa fallegum flíkum sem hafa fengið að dúsa inni í skáp að öðlast nýtt líf og styrkja í leiðinni gott málefni.

Skyggnst inn í heim fatahönnuða á HönnunarMars
Fatahönnunarfélag Íslands frumsýnir myndbandsverkið Íslenskir fatahönnuðir – Á bak við tjöldin, næstkomandi fimmtudagskvöld klukkan 20.30 á efri hæð ATMO.

Takkaskórnir víkja fyrir tískunni
Knattspyrnumaðurinn Björn Jónsson gengur sýningapallana á RFF um helgina.

Cara sigrar tískuheiminn
Cara Delevingne hefur verið afar áberandi síðustu misseri, en hún hafði í nógu að snúast við að ganga sýningarpallana fyrir alla helstu hönnuði heims á tískuvikunum.

Gyllt augu og fölbleikar varir hjá Chanel
Haust – og vetrarlína Chanel sem var sýnd á tískuvikunni í París í síðustu viku var einstaklega falleg og svo oft áður.

Ný fatalína 66°norður og Munda frumsýnd á RFF
66°norður og fatahönnuðurinn Mundi kynna "Snow Blind", nýja fatalínu sem frumsýnd verður á Reykjavík Fashion Festival eða RFF. Þessi nýja fatalína tvinnar saman hugarheim Munda og tækniþekkingu 66°NORÐUR. Afrakstur samstarfsins er útivistarfatnaður sem er engu öðru líkur en viðeigandi við öll tækifæri.

Fegurstu kjólarnir á tískuvikunum
Lífið tók saman þá kjóla sem þóttu standa upp úr eftir tískuvikurnar í þetta sinn.

Tískan á götunum
Stóru tískuvikurnar eru nú yfirstaðnar og búið að leggja línurnar fyrir tískustrauma næsta árs. Tískusýningarnar einskorðast þó ekki við sýningapallana því þær fara einnig fram á götum úti. Stílistar, ritstjórar, innkaupastjórar og bloggarar mæta í sínu allra fínasta pússi á sýningarnar og ljósmyndarar keppast við að smella af þeim myndum. Fréttablaðið tók saman brot af því besta frá götutískunni.

Uppskeruhátíðin Samsuða í Hörpu um helgina
Félag vöru- og iðnhönnuða, sem er skipað rúmlega hundrað félagsmönnum, heldur samsýninguna Samsuðu í Hörpu um helgina og verður opnunarhóf á fimmtudag. Þar sýna átján hönnuðir ólík verk.

Hendrikka Waage sendir frá sér heimilislínu
Hendrikka Waage hefur sent frá sér nýja línu, púða fyrir heimilið, en Hendrikka er þekkt fyrir skartgripahönnun sína.

TREND - Strigaskór
Strigaskór hafa ekki alltaf þótt töff fyrir dömurnar, en þetta þægilega og hentuga trend verður allsráðandi í sumar.

STÍLL - Mila Kunis
Úkraínska leikkonan og fegurðardísin Mila Kunis sló í gegn fyrir rúmum áratug í That 70's Show. Mila er afar glæsileg kona sem hefur vakið mikla athygli fyrir einstaklega fallegan klæðaburð á rauða dreglinum.

Best klæddu ritstýrurnar
Tískumánuðurinn febrúar hefur nú runnið sitt skeið og stóru tískuvikurnar eru yfirstaðnar. Hér sjáum við myndir af valdamestu konum tískuheimsins á tískuvikunum.

Undirbúningur fyrir RFF í fullum gangi
Undirbúningur fyrir tískuhátíðina Reykjavík Fashion Festival er nú í fullum gangi, en hátíðin fer fram laugardaginn 16.mars næstkomandi.

Klassískar kápur
Kápur eru klassísk flík sem allar konur þurfa að eiga í fataskápnum. Nú fer senn að vora og léttari kápur farnar að verða sýnilegri, en margar alræmdar tískudívur sáust skarta fallegum kápum á tískuvikunum.

Stjörnubarn fær módelsamning
Stjörnubarnið Ireland Baldwin er komið á módelsamning hjá hinni virtu fyrirsætuskrifstofu IMG Model. Þetta tilkynnti Ireland á Twitter í vikunni.

Tina Turner á forsíðu Vogue í fyrsta sinn
Stórsöngkonan og goðsögnin Tina Turner prýðir forsíðu þýska Vogue í apríl. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem Turner situr fyrir hjá þessu þekktasta tískutímariti heims, en hún er 73. ára gömul.

Tískutvífarar
Fyrirsætan Chrissy Teigen og leikkonan Naomi Watts hugsa greinilega eins.

Dita Von Teese í þrívíddarkjól
Glamúrdívan Dita Von Teese mætti í svokölluðum þvívíddarkjól sem var sérstaklega hannaður á líkana hennar á viðburð fyrr í vikunni.

Kate Moss gekk fyrir Louis Vuitton
Ofurfyrirsætan Kate Moss snéri aftur á sýningarpallana á sýningu Louis Vuitton í gær, en hún hefur ekki tekið þátt í tískuvikunni síðan hún lokaði sýningu sama hönnuðar árið 2011.

Tískuelítan í útgáfupartýi
Tískudívan og fyrrverandi Vogue-ritstýran Carine Roitfeld leggur það í vana sinn að halda stórglæsileg partý á meðan tískuvikan í París stendur yfir. Í þetta sinn fagnaði hún...

Rómantískt og ævintýralegt yfirbragð
Lína Valentino sem sýnd var á tískuvikunni í París á dögunum var hreint út sagt dásamleg. Rómantíkin sveif yfir vötnunum, en innblásturinn var sóttur í ævintýri og málverk.

Undir áhrifum Viktoríutímans
Áhrif frá Viktoríutímanum voru allsráðandi á sýningu Alexanders McQueen, en þar notaðist Sarah Burton við krínólínur, brynjur, hálskraga, keðjur og fjaðrir.

Afslappað og töffaralegt hjá Saint Laurent
Þægindin verða í fyrirrúmi hjá Saint Laurent næsta haust.

Stjörnufans á strætum Parísar
Eins og glöggir hafa tekið eftir stendur tískuvikan í París nú yfir. Að því tilefni er allt helsta áhrifafólk í heimi tískunnar..

Seiðandi undirföt á tískuvikunni
Franska nærfatafyrirtækið Etam sýndi nýustu línu sína á tískuvikunni í París á dögunum þar sem stórstjörnurnar Lily Allen, Rita Ora og M.I.A sungu á meðan fyrirsæturnar spígsporuðu niður sýningarpallana.