Innlent
285 286 287 288 289 290 291 292 293 … 334 ›
Fékk sama fjölda í hádegismat og fyrir skjálftana Veitingamaður í Grindavík opnaði veitingastað sinn í fyrsta skipti eftir rýmingu bæjarins í dag. Hann fékk um 150 manns í hádegismat. Innlent 30.11.2023 22:16
Bjuggust ekki við 25 metra djúpri holu 25 metra djúp hola sem nær niður í grunnvatn kom í ljós í íbúðargötu í Grindavík í dag. Ljóst er að jarðvegur er enn á hreyfingu í bænum. Greint var frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrr í kvöld. Innlent 30.11.2023 21:48
Umferð hleypt á nýja veginn um Teigsskóg Stór stund rennur upp í vegamálum Vestfirðinga á morgun þegar vegurinn umdeildi um Teigsskóg verður opnaður umferð. Í dag var jafnframt skrifað undir verksamning um næsta verkáfanga; gerð vegfyllinga yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Innlent 30.11.2023 21:00
Orkuverið í Svartsengi aftur tengt Landsnet tilkynnti rétt í þessu að orkuverið í Svartsengi sé aftur tengt inn á flutningskerfið. Svartsengislína 1, línan á milli Svartsengis og Rauðamels hafði verið tekin út fyrr í dag. Innlent 30.11.2023 20:14
Reykjavíkurborg tilbúin að draga úr hækkunum Formaður borgarráðs Reykjavíkur segir að borgin sé tilbúin til þess að draga úr boðuðum gjaldskrárhækknum, að því gefnu að aðilar vinnumarkaðar nái saman um hóflegar launahækkanir. Innlent 30.11.2023 20:07
Sala mentólsígaretta verði leyfð í fjögur ár í viðbót Velferðarnefnd Alþingis leggur til að bann á sölu sígaretta með mentólbragði taki ekki gildi fyrr en að fjögurra ára aðlögunartímabili loknu. Mentólsígarettur fái þá að halda áfram í einkasölu í að minnsta kosti fjögur ár í viðbót. Innlent 30.11.2023 19:58
ASÍ kallar ríki og sveitarfélög til ábyrgðar í baráttu við verðbólgu Verkalýðshreyfingin kallar ríki, sveitarfélög og fyrirtæki til ábyrgðar í baráttunni við verðbólguna. Engin merki væru á lofti um að þessir aðilar ætli að leggja sitt af mörkum, sem geti sett stórt strik í reikninginn fyrir komandi kjarasamninga. Innlent 30.11.2023 19:20
Drónaflug áfram bannað við Grindavík Vegna jarðhræringa í nálægð Grindavíkur hefur áður útgefið flug- og drónabann verið framlengt til 15. desember. Fjölmiðlum verða veittar undanþágur með skilyrðum. Innlent 30.11.2023 18:35
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tuttugu og fimm metra djúp hola sem nær niður í grunnvatn kom í ljós við viðgerðir í Grindavík í dag, viðbragðsaðilum að óvörum. Slökkviliðsstjórinn segir að sprungan gegnum bæinn sé enn á hreyfingu. Líf er þó að færast í Grindavík á ný; veitingastaður var opnaður í dag í fyrsta sinn frá rýmingu og fjölmenni var í mat. Innlent 30.11.2023 18:14
Maður sem reyndi að bana leigusala tekinn með fíkniefni á Litla-Hrauni Karlmaður sem á langan sakaferill að baki hefur hlotið sextíu daga fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands fyrir fíkniefnabrot sem hann framdi í fangelsinu Litla-Hrauni. Innlent 30.11.2023 17:57
Tíu tilnefnd sem framúrskarandi ungir Íslendingar Tíu einstaklingar hafa verið tilnefndir sem framúrskarandi ungur Íslendingur af Junior Chamber International á Íslandi. Verðlaunin eru fyrst og fremst hvatningarverðlaun til ungs fólks sem er að takast á við krefjandi og athyglisverð verkefni. Innlent 30.11.2023 16:37
Pétur Jóhann gripinn glóðvolgur af grjóthörðum stöðumælaverði „Hvað tekur langan tíma að fá sér kaffi?“ spyr Pétur Jóhann Sigfússon skemmtikraftur félaga sinn Sverri Þór Sverrisson sem betur er þekktur sem Sveppi krull. En hann lagði bíl sínum fyrir utan kaffihús til að grípa sér „take-a-way“ kaffi. Og lenti í grjóthörðum stöðumælaverði. Innlent 30.11.2023 16:33
Tvöfalt fleiri fulltrúar Íslands á COP28 Alls eru 84 þátttakendur frá Íslandi skráðir aðildaríkjafund Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna sem hófst í dag í Dúbaí og lýkur þann 12 .desember eða taka þátt í hliðarviðburðum tengdum loftslagsráðstefnunni. Fulltrúum Íslands fjölgar verulega milli ára. Innlent 30.11.2023 16:28
Lét Hvergerðinga vita í febrúar Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfus, segir erfitt að sitja undir ásökunum um að vilja ekki vinna með bæjarstjórninni í Hveragerði. Hann hafi sent Geir Sveinssyni, bæjarstjóra Hveragerðis, erindi um áform um rannsóknir á frekari virkjun í febrúar sem rætt hafi verið í bæjarráði Hveragerðis og samþykkt af bæjarstjórn í mars. Innlent 30.11.2023 15:42
„Þetta vofir yfir“ Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir lífið í bænum ganga sinn vanagang þrátt fyrir að hættustigi hafi verið lýst yfir í kjölfar alvarlegra skemmda á einu vatnslögn bæjarins. Unnið er að áætlunum um það ferli sem færi í gang ef lögnin gæfi sig alveg, til að mynda hvernig vinna skuli neysluvatn úr sjó. Hún hyggst ekki tjá sig um atvikið þar sem akkeri skipsins Hugins VE festist í vatnslögninni fyrr en málsatvik liggja ljós fyrir. Innlent 30.11.2023 15:16
Banaslys í Reykjanesbæ Alvarlegt vinnuslys varð við Fitjabraut í Reykjanesbæ í morgun þar sem maður lést. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Innlent 30.11.2023 15:16
Árétta að nægt vatn sé í Eyjum Vestmannaeyjarbær áréttar að þótt hættuástandi Almannavarna hafi verið lýst yfir í bæjarfélaginu vegna skemmda á vatnslögn þá er öllum íbúum og fyrirtækjum tryggt nóg vatn sem stendur. Þetta kemur fram á heimasíðu bæjarins. Innlent 30.11.2023 15:11
Skoða að taka „stórt skref aftur á bak“ og bíða átekta Samninganefnd Alþýðusambands Íslands kom saman til fundar í morgun til að ræða hvort gera eigi hlé á samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins vegna þeirrar óvissu sem miklar gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga skapi í tengslum við nýja kjarasamninga. Innlent 30.11.2023 14:28
Vantraust í upphafi COP 28 loftslagsráðstefnunnar Formaður náttúruverndarsamtaka Íslands segir loftslagsráðstefnuna COP 28 ekki fara vel af stað en gestgjafinn hefur verið sakaður um að draga taum olíuiðnaðarins. Þrenn umhverfisverndarsamtök hafa birt kröfulista í tengslum við ráðstefnuna sem hefst í dag. Innlent 30.11.2023 14:25
Loka hluta af húsnæði Reykjalundar: 32 starfsmenn missa vinnuaðstöðu Endurhæfingarmiðstöðin Reykjalundur í Mosfellsbæ hyggst loka hluta af húsnæði sínu en komið hefur í ljós að nokkrar af byggingum heilbrigðisstofnunarinnar eru í bágu ásigkomulagi. Úttekt verkfræðistofu sýnir að óheilnæmt sé fyrir sjúklinga og starfsfólk að dvelja í húsnæðinu. Innlent 30.11.2023 14:15
Hiti milli stuðningsmanna Ísraels og Palestínu á Kópavogsvelli Stuðningsmenn Palestínu annars vegar og Ísraelsríkis hins vegar eru samankomnir við Kópavogsvöll vegna leiks Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv í Sambandsdeild Evrópu. Innlent 30.11.2023 13:25
Pálmi fékk stöðumælasekt á einkastæði Pálmi Gestsson leikari er ómyrkur í máli um framgöngu stöðumælavarða Reykjavíkurborgar en hann fékk stöðumælasekt inni á einkastæði Þjóðleikhússins. Innlent 30.11.2023 13:17
Segja gloppu í kerfinu Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður Eddu Bjarkar Arnardóttur, skilaði í gærkvöldi greinargerð til Landsréttar en þangað áfrýjaði hann niðurstöðu héraðsdóms um gæsluvarðhald Eddu Bjarkar hér á landi. Staðfesti Landsréttur úrskurðinn verður hún flutt til Noregs innan fimm daga samkvæmt lögum. Innlent 30.11.2023 13:00
Lífeyrissjóðir þráist við Formaður verkalýðsfélags Grindvíkinga gefur lítið fyrir yfirlýsingu lífeyrissjóðanna um að unnið sé að farsælli lausn fyrir grindvíska lántakendur. Þrjú verkalýðsfélög hafa boðað til mótmæla við húsnæði samtakanna og lífeyrissjóðs Gildis í dag. Innlent 30.11.2023 13:00
Hvergerðingar undrast yfirlýsingar nágranna sinna um virkjun Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar undrast hálýstar yfirlýsingar í fjölmiðlum um virkjanaáform í Ölfusdal og samstarf Orkuveitu Reykjavíkur, Sveitarfélagsins Ölfuss og Títans, án nokkurs samráðs eða aðkomu Hveragerðisbæjar. Forseti bæjarstjórnar segir áformin skerða lífsgæði, regluverkið sé þannig að bærinn hafi í raun ekkert um þetta að segja. Innlent 30.11.2023 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um fund samninganefndar Alþýðusambands Íslands sem kom saman í morgun til að ræða hvort gera skuli hlé á samningaviðræðum við SA. Innlent 30.11.2023 11:38
Rannsókn manndrápsmálsins á Selfossi á lokametrunum Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á andláti Sofiu Sarmite Kolesnikova, sem fannst látin í heimahúsi á Selfossi í lok apríl, miðar vel. Yfirlögregluþjónn á von á að málið verði sent til saksóknara á næstu dögum og maðurinn sem grunaður er um að hafa átt þátt í andláti hennar verði úrskurðaður í áframhaldandi farbann. Innlent 30.11.2023 11:26
Egill varar við knáum stöðumælavörðum Egill Helgason sjónvarpsmaður, einn þekktasti miðborgarmaður sem um getur, hefur séð sig tilneyddan að senda út sérstakan varúðarpóst, þar sem hann varar við snörum stöðumælavörðum. Innlent 30.11.2023 11:25
Hættir hjá Geislavörnum eftir 38 ára starf Sigurður M. Magnússon, forstjóri Geislavarna, lætur af störfum í dag. Hann hefur stýrt stofnuninni í 38 ár. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kvaddi Sigurð með blómvendi og kökuboði við þessi tímamót þar sem Sigurður rifjaði upp farinn veg í viðburðaríku starfi á sviði geislavarna sem spannar meira en fjóra áratugi. Innlent 30.11.2023 11:02
Bein útsending: Efling lífrænnar matvælaframleiðslu Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun kynna drög að aðgerðaáætlun varðandi eflingu lífrænnar matvælaframleiðslu á fundi klukkan 10. Innlent 30.11.2023 09:31