Vasaþjófar höfðu fúlgur fjár af eldri mönnum og ferðamanni Árni Sæberg skrifar 5. nóvember 2025 16:03 Ferðamaðurinn var á Skólavörðuholti þegar vasaþjófarnir létu til skarar skríða. Vísir/Lýður Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við vasaþjófum sem eru á ferðinni í umdæminu um þessar mundir. Þrjú mál hafa verið tilkynnt þar sem vasaþjófar hafa stolið greiðslukortum og náð út af þeim umtalsverðum fjárhæðum.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að í tveimur málunum hafi brotaþolar verið fullorðnir karlar, komnir á eftirlaunaaldur og rúmlega það. „Talið er að þjófarnir hafi fylgst með mönnunum slá inn PIN-númer í verslunum, fylgt þeim síðan eftir og þá stolið veskjunum úr vösum þeirra. Eftirleikurinn var svo auðveldur, en þjófarnir tóku út talsvert fé af reikningum mannanna.“ Náðu 650 þúsund af einum Guðmundur Ólafsson hagfræðingur lýsti slíku atviki í samtali við Vísi á dögunum. „Ég er að versla í Costco og svo fer ég út og það er helvítis hálka. Ég er næstum því dottinn og það er einhver maður sem dettur utan í mig,“ sagði hann um atvikið, sem átti sér stað þann 22. október síðastliðinn. Hann hefði svo lítið leitt hugann að þessu fyrr en hann var kominn í Perluna með syni sínum um klukkutíma síðar og ætlaði að bjóða honum kaffi. „Þá er ég ekki með kreditkortin og ég sé að það er eitthvað skrýtið. Annað hvort hef ég týnt þeim eða einhver stolið þeim af mér. Svo ég hringdi í alla banka og læt loka.“ Það hefði þá strax verið orðið of seint, þjófarnir hefðu náð af honum 650 þúsund krónum. Minna fólk á að gæta að sér Í tilkynningu lögreglu segir að í þriðja tilvikinu hafi erlendur ferðamaður orðið fyrir barðinu á vasaþjófum sem hafi verið á kreiki við Hallgrímskirkju. Þeir hafi stolið greiðslukortum af honum. „Lögreglan minnir fólk á að gæta að sér þegar PIN-númer eru slegin inn og eins að upplýsingar um PIN-númer séu ekki geymdar með greiðslukortum.“
Lögreglumál Eldri borgarar Efnahagsbrot Ferðaþjónusta Reykjavík Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira