Innlent
18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 334 ›
Enginn Íslendingur í haldi ICE Hvorki borgaraþjónusta utanríkisráðuneytis Íslands, né sendiráð Íslands í Washington D.C. er með mál fimm Íslendinga sem eru á lista yfirvalda í Bandaríkjunum yfir fólk sem fengið hefur höfnun um dvalarleyfi og vísa á úr landi á sínu borði. Innlent 6.2.2025 10:23
Ekki stætt utandyra segir lögreglan á Austurlandi Veðrið á Austurlandi er víða afar slæmt og ekki stætt utandyra, segir í tilkynningu frá lögreglu. Vegfarendum gæti staðið hætta af lausamunum. Innlent 6.2.2025 10:21
Hefði ekki átt að ganga laus þegar morðin voru framin Alfreð Erling Þórðarson, 46 ára Norðfirðingur sem sætir ákæru fyrir að hafa orðið hjónum á áttræðisaldri að bana í fyrrasumar, átti samkvæmt dómsúrskurði að vera í nauðungarvistun þegar hann lét til skarar skríða. Innlent 6.2.2025 09:51
Braut húsaleigulög með litavalinu Leigusala er heimilt að fá greiddar tíu þúsund krónur úr tryggingu fyrrverandi leigjanda síns sem hafði málað veggi í íbúðinni í dökkgráum lit í stað þess málarahvíta litar sem fyrir var og var sömuleiðis að finna á öðrum veggjum íbúðarinnar. Leigjandinn hafi með litavalinu brotið gegn ákvæðum húsaleigulaga. Innlent 6.2.2025 08:56
Stefnuræðu frestað til mánudags Stefnuræðu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hefur verið frestað til mánudagsins 10. febrúar og hefjast regluleg þingstörf degi síðar. Ræðuna átti að halda í gærkvöldi en var frestað vegna rauðrar viðvörunar og hættustigs. Innlent 6.2.2025 08:50
Truflanir víða og Holtavörðuheiði lokað Rauðar viðvaranir sem hófu að taka gildi ein af annarri frá klukkan 7 í morgun fara að detta úr gildi upp úr klukkan 13, fyrst á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi. Innlent 6.2.2025 06:18
Létu rauða viðvörun ekki stoppa sig Þrátt fyrir rauða veðurviðvörun voru þónokkrir á ferð um miðbæ Reykjavíkur í dag. Ferðamenn í stuttu stoppi sem vildu ekki eyða deginum inni á hótelherbergi, fólk á leið heim úr vinnu og einn hlaupari sem þurfti að klára æfingu dagsins. Innlent 5.2.2025 22:01
Bent á rangan mann eftir að lýst var eftir meintum kynferðisbrotamanni Maður sem var boðaður í skýrslutöku eftir að lögreglan lýsti eftir einstaklingum við kynferðisbrotarannsókn á rétt á bótum frá ríkinu. Hann vildi fá 900 þúsund krónur, en fær 150 þúsund krónur. Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 5.2.2025 21:29
Pottur fyrrverandi þingmanns hvarf í óveðrinu Heitur pottur sem hefur staðið um áratugaskeið við heimili Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur, fyrrverandi þingmanns, í Borgarbyggð fauk í óveðrinu áðan. Innlent 5.2.2025 20:35
Vill fá svör um hvað fór úrskeiðis um helgina Trúnaðarmaður kennara segir vantraust ríkja hjá stéttinni og samningar hafi ekki náðst því ekki hafi verið boðið nóg. Þingmaður Sjálfstæðisflokks kallar eftir að ráðamenn beri ábyrgð. Ríkissáttasemjari boðaði samninganefndir grunnskóla- og leikskólakennara á samningafund í dag og stóð hann fram eftir degi. Innlent 5.2.2025 20:03
Veðurofsi, þrumur og eldingar í beinni útsendingu Hættustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna ofsveðurs sem gengur yfir landið og rauðar viðvaranir hafa verið gefnar út. Veðrið hefur valdið víðtækum samgöngutruflunum og vegalokunum, viðburðum hefur verið frestað og vinnustöðum lokað. Þá hefur eldingum lostið niður víða á landinu síðdegis. Innlent 5.2.2025 18:20
Gengur vel á óvænta fundinum Ríkissáttasemjari boðaði formann Kennarasambands Íslands óvænt á fund fyrr í dag. Hann segir samtölin hafa „skriðið ágætlega áfram í dag.“ Innlent 5.2.2025 17:30
Enn bætist í verkföllin Verkfall hefur verið boðað í Tónlistarskólanum á Akureyri. Fyrirhugað er að það hefjist 21. febrúar næstkomandi, hafi samningar ekki náðst. Innlent 5.2.2025 16:49
Stefnuræðu Kristrúnar frestað Stefnuræðu Kristrúnar Frostadóttur, nýkjörins forsætisráðherra, hefur verið frestað vegna veðurs. Hún greindi frá þessu á Facebook. Innlent 5.2.2025 16:13
Með tvær „barnakynlífsdúkkur“ í barnarúmi í svefnherberginu Karlmaður hefur verið dæmdur til greiðslu sektar fyrir að hafa teiknað barnaníðsefni í fórum sínum. Hann var einnig ákærður fyrir framleiðslu barnaníðsefnis með því að hafa tekið myndir af sér hafa samræði við kynlífsdúkku í líki barns. Málið komst upp þegar maðurinn tilkynnti lögreglu um innbrot í íbúð hans. Innlent 5.2.2025 16:07
Hátt í fimm milljónir fiska drápust í sjókvíaeldi í fyrra Um 4,8 milljónir laxa drápust í sjókvíaeldi í fjörðum landsins í fyrra samkvæmt tölum Matvælastofnunar. Hún rannsakar enn dauða meira en milljónar laxa hjá fiskeldisfyrirtæki á Austfjörðum í lok síðasta árs. Innlent 5.2.2025 15:58
Verkföll boðuð í fimm framhaldsskólum Verkföll hefjast í Menntaskólanum á Akureyri, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Borgarholtsskóla, Verkmenntaskóla Austurlands og Fjölbrautaskóla Snæfellinga 21. febrúar, hafi samningar ekki náðst. Þetta kemur fram á vef Kennarasambands Íslands. Innlent 5.2.2025 15:31
Formaður BÍ æfur vegna ummæla Sigurjóns Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður atvinnuveganefndar, segist standa við orð sín þess efnis að hann telji vert að lækka styrk ríkisins til Morgunblaðsins. Ýmsir hafa gert athugasemdir við þau orð hans og samhengið sem þau voru sett fram í. Innlent 5.2.2025 15:12
Ný Þjórsárbrú bíður í sömu óvissu og Hvammsvirkjun Útboð á smíði nýrrar Þjórsárbrúar á móts við þorpið Árnes ásamt gerð Búðafossvegar er í óvissu eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar í síðasta mánuði. Vegagerðin hafði gefið út að verkið yrði boðið út fljótlega á þessu ári. Innlent 5.2.2025 14:44
Lýsa yfir hættustigi almannavarna Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, Austurlandi, Vestmannaeyjum, Suðurlandi og Suðurnesjum lýsir yfir hættustigi Almannavarna vegna veðurs sem spáð er næsta sólarhringinn. Innlent 5.2.2025 14:22
Hnýta í fullyrðingar RÚV um kolefnisbindingu skóga Heildarbinding í skógum er alltaf meiri en í graslendi samkvæmt þeim rannsóknum sem hafa verið gerðar. Opinber stofnun sem fer með skógrækt og landgræðslu gerir athugasemdir við frétt Ríkisútvarpsins þar sem það gagnstæða var fullyrt. Innlent 5.2.2025 13:58
Halla sendir Svíakonungi samúðarkveðju Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sendi í morgun samúðarkveðju til Karls XVI Svíakonungs fyrir hönd íslensku þjóðarinnar vegna hinna „hörmulega mannvíga“ í skóla í Örebro í gær. Innlent 5.2.2025 12:55
Lýsa yfir óvissustigi Almannavarna vegna óveðursins Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, Vestfjörðum, Austurlandi, Vestmannaeyjum, Suðurlandi og Suðurnesjum lýsir yfir óvissustigi Almannavarna vegna veðurs sem spáð er næsta sólarhringinn. Innlent 5.2.2025 12:40
Fyrrverandi ráðherra Viðreisnar fordæmir orð Sigurjóns Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi ráðherra Viðreisnar, fordæmir fortakslaust orð Sigurjóns Þórðarsonar, þingmanns ráðherra Flokks fólksins um að skoða beri fjárframlög til Morgunblaðsins í kjölfar umfjöllunar þeirra. Innlent 5.2.2025 12:40
Skellur á með látum, versnar hratt og hviður jafnvel yfir 50 m/s Aftakaveður gengur yfir landið eftir hádegi, nær öllu millilandaflugi hefur verið aflýst og vegir í öllum landshlutum eru á óvissustigi. Veðurfræðingur segir óveðrið munu skella á með miklum látum og spáir hviðum upp undir fimmtíu metra á sekúndu. Foreldrar á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að sækja börn sín í skólann. Innlent 5.2.2025 12:06
Óvænt boðaður til fundar hjá sáttasemjara Ríkissáttasemjari hefur boðað formann Kennarasambands Íslands til fundar við sig í karphúsinu í Borgartúni klukkan 13:30 í dag. Verkfall kennara hófst á mánudaginn og hefur ekki verið fundað í deilunni síðan á sunnudagskvöld. Innlent 5.2.2025 12:03
Þórdís Kolbrún gætir úkraínskra barna Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og nú þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið skipuð sérstakur sendifulltrúi um stöðu barna í Úkraínu. Um er að ræða ólaunað starf sem hún mun sinna meðfram þingmennsku. Innlent 5.2.2025 11:39
Guðrún boðar til fundar Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, hefur boðað til fundar í Salnum í Kópavogi á laugardag. Leiða má líkur að því að þar muni hún tilkynna framboð til embættis formanns Sjálfstæðisflokksins. Innlent 5.2.2025 11:34
Þau tala í umræðum um stefnuræðu Kristrúnar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mun flytja sína fyrstu stefnuræðu sem forsætisráðherra á Alþingi klukkan 19:40 í kvöld. Í kjölfarið munu fulltrúar þeirra sex flokka sem eiga sæti á þingi flytja ræður. Innlent 5.2.2025 11:33
Bein útsending: Áskoranir í náttúruvernd á Íslandi „Áskoranir í náttúruvernd á Íslandi“ er yfirskrift fundar Háskóla Íslands, í samvinnu við Sjálfbærnistofnun HÍ sem er hluti af viðburðaröð um brýnustu verkefni og áskoranir sem þjóðir heims standa frammi fyrir. Innlent 5.2.2025 11:32