Vilja færa fjögur þingsæti í Suðvesturkjördæmi Birgir Olgeirsson skrifar 16. september 2026 11:04 Ólafur Þ. Harðarson, Sigrún Helga Lund og Þorkell Helgason skipuðu starfshópinn. Hann leggur til breytingar sem myndu færa fjögur þingsæti í Suðvesturkjördæmi og fjölga jöfnunarsætum úr níu í 27. Suðvesturkjördæmi fengi fjóra þingmenn til viðbótar, Norðausturkjördæmi missti þrjá og Norðvesturkjördæmi einn samkvæmt tillögum starfshóps dómsmálaráðherra. Hópurinn vill líka fjölga jöfnunarsætum úr níu í 27. Þingmenn yrðu áfram 63.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur sent Alþingi tillögurnar og leggur til að þingmannanefnd fjalli um þær með aðkomu allra þingflokka. Fleiri kjósendur, fleiri þingmenn Ein tillagan er að þingmannafjöldi kjördæmanna fylgi betur fjölda kjósenda. Útreikningar hópsins byggja á kjörskrá kosninganna 2024. Suðvesturkjördæmi fengi 18 þingmenn í stað 14, Norðausturkjördæmi sjö í stað tíu og Norðvesturkjördæmi sex í stað sjö. Suðurkjördæmi héldi sínum tíu þingmönnum og Reykjavíkurkjördæmin ellefu hvort. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur sent Alþingi tillögur um breytingar á kosningalögum. Hún vill að þingmannanefnd fjalli um þær með aðkomu allra þingflokka. Tilgangurinn er að búseta ráði síður vægi atkvæða. Árið 2024 voru 5.649 kjósendur að baki hverjum þingmanni í Suðvesturkjördæmi en 3.104 í Norðausturkjördæmi. Mesti munur milli kjördæma myndi minnka úr um 82 prósentum í 20 prósent samkvæmt útreikningunum. Munurinn hyrfi ekki alveg, enda tryggir stjórnarskráin hverju kjördæmi að minnsta kosti sex sæti. Vilja þrefalda jöfnunarsætin Önnur tillagan er að fjölga jöfnunarsætum úr níu í 27. Þau eru notuð til að bæta hlut flokka sem hafa fengið færri þingmenn kjörna í kjördæmum en fylgi þeirra á landinu gefur tilefni til. Þá yrðu 36 sæti, sex í hverju kjördæmi, ákveðin eingöngu eftir úrslitum þar. Hin 27 yrðu nýtt til að jafna hlut flokkanna. Þingmenn yrðu áfram 63 samkvæmt tillögum starfshópsins. Fleiri þingsæti yrðu nýtt til að jafna hlut flokkanna, þannig að þingmannafjöldi hvers flokks endurspeglaði betur fylgi hans á landsvísu.Viktor Freyr Hópurinn segir núverandi kerfi ekki alltaf duga. Í kosningunum 2013, 2016, 2017 og 2021 hafi einn flokkur fengið einu sæti meira en landsfylgi hans gaf tilefni til. Áfram þyrfti minnst fimm prósent gildra atkvæða á landsvísu til að koma til greina fyrir jöfnunarsæti. Flokkar undir þeim mörkum gætu fengið mann kjörinn í kjördæmi, en fækkun kjördæmissæta gæti gert það erfiðara. Minni breytingar við endurtalningu Þriðja tillagan snýr að því hvaða frambjóðendur fá jöfnunarsætin. Hópurinn vill breyta aðferðinni þannig að úthlutunin endurspegli betur úrslit í hverju kjördæmi og litlar breytingar á atkvæðatölum raski síður því hverjir komast á þing. Hópurinn segir að með nýju aðferðinni hefði endurtalningin í Norðvesturkjördæmi 2021 ekki breytt því hverjir náðu kjöri, þótt öllum öðrum reglum hefði verið haldið óbreyttum. Að mati hópsins mætti samþykkja færslu sæta milli kjördæma og fjölgun jöfnunarsæta ef fleiri þingmenn greiddu atkvæði með en gegn. Breytta úthlutunaraðferð þyrfti hins vegar að samþykkja með tveimur þriðju atkvæða á Alþingi.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Suðvesturkjördæmi Kjördæmaskipan Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira