„Ég myndi segja að ég væri burðardýr“ Árni Sæberg skrifar 16. september 2026 11:31 Skipverjinn átti verulega erfitt með að tjá sig fyrir dómi til að byrja með. Vísir Annar skipverjanna í Dettifossmálinu svokallaða segist hafa fengið áfall þegar hann tók við flöskum af amfetamínbasa í Bremerhaven í Þýskalandi. Honum hafi verið tjáð að um sjö lítra af efnum yrði að ræða en þeir reyndust fjórtán. Í hita leiksins hafi ekki verið um annað að ræða en að taka allar flöskurnar, hann hafi verið að verða seinn í vinnuna.
Aðalmeðferð í Dettifossmálinu hófst formlega klukkan 10:20 í morgun eftir að tekist hafði verið á um framlagningu gagna. Lengi leit út fyrir að fresta þyrfti aðalmeðferðinni en um það má lesa í fréttinni hér að neðan: Aðalmeðferðin hófst á skýrslugjöf annars tveggja skipverja sem ákærðir eru fyrir innflutning á amfetamínbasa, sem þeir Sævar Hilmarsson og Kastriot Pepaj, eru sagðir hafa skipulagt. Besti vinurinn hefði komið að máli við hann Skipverjinn var beðinn um að lýsa aðkomu sinni að málinu. Hann sagði hinn skipverjann, besta vin sinn, hafa komið að máli við hann varðandi innflutninginn í byrjun mars síðastliðins og þeir hefðu farið saman á Arabar í Kópavogi 23. sama mánaðar og hitt mann. Honum hefði verið sagt að maðurinn væri áðurnefndur Sævar en hann hefði aldrei talað við hann áður eða hitt. Sama dag hefðu þeir farið saman í vinnuna um borð í Dettifossi og siglt áleiðis til Bremerhaven í Þýskalandi. Hinn skipverjinn hefði sett upp forritið Signal í síma hans, en í því forriti er unnt að hafa dulkóðuð samskipti. Hann hefði verið í spjalli með hinum skipverjanum, Sævari og manni að nafni Cloud, sem hann þekkti ekki. Hann hefði aðallega haft samskipti við Cloud, sem hefðu farið fram á íslensku, bæði í riti og tali. Hann hefði giskað á að Cloud væri í raun Sævar en hann gæti ekki fullyrt það. „Subbulegt“ fólk í hvítum sendiferðabíl Þegar komið var til Bremerhaven hefðu þeir vinirnir farið frá borði og inn í borgina. Afhending flaskanna hefði frestast um fleiri klukkustundir en loks hefðu þeir mælt sér mót við þá sem áttu að afhenda efnin. Þeir hefðu hitt fyrir „subbulegt“ fólk, tvo karla og eina konu, við hvítan sendiferðabíl, sem lagt hefði verið uppi á kanti úti á götu. Þeir hefðu afhent konunni peningaseðil, sem konan hefði skoðað gaumgæfilega, áður en bíllinn var opnaður og vinur hans fór inn að sækja töskur. Spurður út í peningaseðilinn sagði skipverjinn að áðurnefndur Cloud hefði gefið þeim fyrirmæli um að taka mynd af peningaseðli svo að þeir sem afhentu efnin gætu farið yfir raðnúmer hans, til þess að sannreyna að um rétta menn væri að ræða. Fór í „panikk“ Þeir vinirnir hefðu þá kíkt í töskurnar og séð fjórar flöskur, þrjár stórar og eina minni. Á giska væru þær stóru þriggja lítra og hin minni eins lítra. Við þetta hefði hann farið í „panikk““, enda hefði hann strax séð að um meira en sjö lítra af vökva væri um að ræða. „En í hita leiksins kom ekki annað til greina en að taka þetta allt. Við þurftum að fara aftur um borð, ég var að verða seinn í vinnuna.“ Þeir hefðu þá farið aftur um borð í Dettifoss og falið flöskurnar. Við svo búið hefði hann talið sinni aðkomu að málinu lokið. Leyfði sér að dreyma um greiðslu Spurður að því hvort hann hefði komið að skipulagningu innflutningsins eða hvort hann væri eigandi efnanna sagði hann svo ekki vera. Hann hefði aðeins verið fenginn til þess að sækja efnin ásamt hinum skipverjanum og koma þeim fyrir um borð í skipinu. Hann teldi að áðurnefndur Cloud hefði verið skipuleggjandi innflutningsins. Spurður að því hversu mikið hann hefði átt að fá greitt fyrir sinn hlut í innflutningnum sagðist hann ekki vita hversu mikið eða yfir höfuð hvort hann hefði fengið greitt. Þá var hann spurður hvort hann vissi hvers vegna hann hefði verið fenginn til verksins sagðist hann telja að það hefði verið til þess að „róa friðinn“ hjá hinum skipverjanum. Málið hefði farið á sama veg burt séð frá aðkomu hans að því. Verjandi hans spurði hann þá hvort hann upplifði sjálfan sig sem burðardýr í málinu. „Ég upplifði mig svikinn og notaðan, þannig að já, ég myndi segja að ég væri burðardýr.“
Fíkniefnasmygl með Dettifossi Dómsmál Smygl Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira