Skúrir og áfram milt í veðri Lægð vestur af landinu beinir suðlægum áttum yfir landið í dag og má reikna með sunnan og suðvestan golu og skúrum, en bjartviðri norðaustanlands. Veður 2.10.2025 07:10
Suðlægar áttir og úrkoma í flestum landshlutum Lægð fer yfir landið í dag og beinir suðlægum áttum til landsins. Reikna má með sunnan strekkingi á Austurlandi og Suðausturlandi er líða fer á daginn. Veður 1.10.2025 07:11
Sunnan strekkingur og vætusamt Veðurstofan gerir ráð fyrir sunnan strekkingi víða um land með vætusömu veðri í dag, ýmist skúraklökkum eða stærri úrkomusvæðum með samfelldri rigningu um tíma. Veður 30.9.2025 07:13
Strekkingsvindur og fremur vætusamt næstu daga Vindáttin verður lengst af suðlæg og strekkings vindur inn á milli í dag og næstu daga. Veður 23.9.2025 07:05
Vaxandi vindur þegar líður á daginn Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri suðlægri eða breytilegri átt og smávætu í fyrstu, en síðan úrkomulítið. Veður 22.9.2025 07:11
Grunn lægð yfir landinu í dag en suðlægir vindar á morgun Grunn lægð fer austur fyrir norðan land í dag. Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar fylgir henni ákveðin vestlæg átt og rigning. Búast má við dálítilli rigningu á Suður- og Suðausturlandi seinnipartinn. Hiti verður á bilinu fimm til tíu stig síðdegis. Veður 21.9.2025 07:29
Óánægja með Kópavogsmódelið: Foreldrar upplifa samviskubit, aukið álag og stöðuga tímapressu Innlent
Víða kaldi og allhvasst en lægir smám saman í dag Í dag er norðanáttin gengin niður á Vesturlandi, en annars staðar er víða kaldi og sums staðar allhvassir eða hvassir vindstrengir. Til dæmis undir Vatnajökli og á sunnanverðum Austfjörðum. Veður 20.9.2025 07:13
Gular viðvaranir og svalri norðanátt beint til landsins Öflug hæð yfir Grænlandi og lægðasvæði austur af landinu beina áfram svalri norðlægri átt í landsins. Víða má búast við kalda eða strekkingi í dag en allhvassir eða hvassir vindstrengir verða undir Vatnajökli og á sunnanverðum Austfjörðum. Veður 19.9.2025 07:12
Slydduél norðantil en þurrt og bjart sunnan heiða Hæð yfir Grænlandi og lægðasvæði austur af landinu beina svalri norðlægri átt til landsins og verður víða kaldi eða strekkingur í dag. Veður 18.9.2025 08:12
Kólnar í kvöld og allvíða næturfrost Veðurstofan spáir suðaustan átta til fimmtán metrum á sekúndu þar sem hvassast verður norðvestantil og á Suðausturlandi. Veður 17.9.2025 07:14
Kólnar þegar líður á vikuna Hæð yfir Grænlandi stýrir veðrinu á landinu næstu daga og verða norðaustlægar áttir ríkjandi með stöku skúrum norðan- og austanlands, en léttir til suðvestantil. Veður 16.9.2025 07:06
Milt veður og víða væta Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, víða golu eða kalda og mildu veðri. Veður 15.9.2025 07:13
Rigning með köflum víðast hvar Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustan og austan 5-13 m/s í dag. Lægð skammt suður af landinu þokast vestur. Það rignir víða frá henni, einkum á Suðausturlandi en norðaustanlands styttir upp með morgninum. Hiti verður á bilinu 8 til 15 stig. Veður 14.9.2025 07:46
Blautt víðast hvar Nokkrar minniháttar lægðir hringsóla kringum landið og tilheyrandi úrkomusvæði valda blautviðri víðast hvar um helgina. Norðaustan strekkingur eða allhvass vindur á Vestfjörðum í fyrstu, en annars mun hægari vindur. Veður 13.9.2025 07:42
Dálítil rigning og lægðir á sveimi Lægðir eru á sveimi í kringum Ísland í dag og verður áttin áfram norðaustlæg – stekkingur á Vestfjörðum en annars hægari. Veður 12.9.2025 07:06
Væta með köflum og dregur úr vindi Lægðir suður af landinu stýra veðrinu á landinu í dag þar sem búist er við norðaustlægri átt, átta til fimmtán metrum á sekúndu, og dálítilli vætu með köflum. Veður 11.9.2025 07:09
Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Skil nálgast nú landið úr suðaustri og fara þau vestur yfir landið í dag. Þeim fylgir austan- og norðaustanátt, víða fimm til þrettán metrar á sekúndu með rigningu, en hægari vindur og úrkomulítið vestantil á landinu fram eftir degi. Veður 10.9.2025 07:25
Hvasst og samfelld rigning austast Lægðin sem stjórnað hefur veðrinu á landinu síðustu daga er nú skammt norðvestur af landinu og fjarlægist smám saman. Veður 9.9.2025 07:11
Má reikna með vatnavöxtum suðaustantil Veðurstofan spáir austan átta til fimmtán metrum á sekúndu á austanverðu landinu í dag og hvassara um tíma suðaustantil og við austurströndina. Það verður þó mun hægari á vesturhelmingi landsins. Veður 8.9.2025 07:37
Rigning í dag Spáð er norðaustan 5-13 metrum á sekúndu og rigningu í dag, talsverðri um tíma suðaustantil, en þurrt um landið vestanvert fram eftir degi. Veður 7.9.2025 08:24
Víðast hægur vindur og hiti að fimmtán stigum Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægum vindi í dag, en norðaustan strekkingi á norðanverðum Vestfjörðum. Veður 5.9.2025 07:12
Rigning norðan- og austantil en bjart suðvestanlands Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri eða breytilegri átt í dag, þremur til átta metrum á sekúndu, en að fram eftir degi megi búast við strekkingi víða á Vesturlandi. Veður 3.9.2025 07:15
Léttskýjað vestan- og sunnantil en blautara annars staðar Víðáttumikil lægð skammt norður af Skotlandi stjórnar veðrinu á landinu í dag og á morgun og má reikna með norðaustan kalda eða stinningskalda með rigningu á norðan- og austanverðu landinu. Gert er ráð fyrir talsverðri úrkomu á Austfjörðum um tíma í dag, en yfirleitt léttskýjuðu sunnan- og vestanlands. Veður 2.9.2025 07:38
Hiti að tuttugu stigum og hlýjast sunnantil Djúp og víðáttumikil lægð er nú vestur af Írlandi sem sendir skilabakka með rigningu og súld yfir landið. Þó verður lítil sem engin úrkoma suðvestantil, enda hlémegin og er úrkomuákefðin ávallt mest áveðurs. Veður 1.9.2025 06:53