Alfreð byrjaði í jafntefli Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. október 2017 15:15 Alfreð Finnbogason. Vísir/Getty Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg sem gerði 2-2 jafntefli við Hoffenheim í þýsku Bundesligunni í dag. Alfreð var tekinn útaf fyrir Michael Gregoritsch á 62. mínútu leiksins í stöðunni 0-1, en Gregoritsch skoraði svo jöfnunarmark Augsburg á 75. mínútu. Mark Uth hleypti spennu í lokamínútur leiksins með marki á 85. mínútu, en Jeffrey Gouweleeuw tryggði Augsburg stig úr leiknum á 90. mínútu. Augsburg er með 12 stig eftir átta umferðir í deildinni. Þýskalandsmeistarar Bayern Munich unnu stórsigur á Freiburg 5-0. Julian Schuster gerði sjálfsmark strax á áttundu mínútu leiksins áður en Kingsley Coman tvöfaldaði forystu Bayern rétt fyrir hálfleik. Thiago Alcantara, Robert Lewandowski og Joshua Kimmich skoruðu svo eitt mark hver í seinni hálfleik. Bayen minnkaði með sigrinum forskot Dortmund á toppi deildarinnar niður í tvö stig, en Dortmund spilar við Leipzig seinna í dag. Þýski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti