

Lagið The Time of My Life er sennilega einhver frægasti dúett sem komið hefur út. Lagið er upphaflega flutt af þeim Bill Medley og Jennifer Warnes og heyrðist fyrst í kvikmyndinni vinsælu Dirty Dancing.
Donald Trump vill meina að hann sé ekki svo frábrugðinn hefðbundnu fólki.
Þetta er í fyrsta sinn í hálfa öld sem tímaritið tekur afstöðu til forsetaframbjóðenda með þessum þætti.
Bone vakti mikla athygli í kappræðum Clinton og Trump á þar sem hann var í hópi áhorfenda.
Hin kanadíska Kelly Oxford hvatti konur til að deila sögu sinni eftir ummæli Trump þar sem hann stærði sig af því að komast upp með að káfa á konum. Íslenskar konur hafa birt átakanlegar frásagnir.
Hillary Clinton er með allt að fjórtán prósentustiga forskot á keppinaut sinn í kosningabaráttunni um forsetaembætti Bandaríkjanna samkvæmt nýrri könnun NBC.
Frú Trump vekur athygli fyrir kaldhæðið fataval í ljósi ummæla eiginmanns síns fyrir helgi.
Mike Pence segist ekki hafa íhugað að hætta við framboð sem varaforsetefni Donald Trump.
Aðrar kappræður Donald Trump, forsetaefni Repúblikana, og Hillary Clinton, forsetaefni Demókrata, í nótt einkenndust af persónulegum árásum og deilum.
Framkvæmdastjóri Today Show á NBC segir að Bush eigi sér engar málsbætur vegna þess orðfæris og hegðunar sem hann sýnir á myndbandinu.
Farið yfir sannleiksgildi staðhæfinga Donald Trump og Hillary Clinton.
Silja Bára Ómarsdóttir segist telja að enginn frambjóðandi hafi nokkurn tímann mætt eins illa undirbúinn málefnanlega til leiks í kappræður forsetaframbjóðenda og Donald Trump.
Karl Becker sló í gegn með spurningu sinni þegar hann bað frambjóðendurna um að nefna einn jákvæðan eiginleika í fari andstæðings síns.
Könnun CNN sýnir að 57 prósent áhorfenda segja Clinton hafa haft betur í kappræðunum á meðan 34 prósent sögðu Trump hafa unnið.
Nóttin einkenndis af ásökunum og móðgununum.
Donald Trump fór mjög laskaður inn í frambjóðendakappræður í gærkvöldi. Upptaka af niðrandi ummælum Trumps um konur hefur sætt harðri gagnrýni. Margir hafa hætt að styðja framboð hans. Meiri líkur á að Clinton verði forseti.
Í aðdraganda annarra kappræðna bandarísku forsetaframbjóðendanna hélt Donald Trump óvæntan blaðamannafund með konum sem ásökuðu eiginmann Hillary Clinton, fyrrverandi forsetann Bill Clinton, um að hafa nauðgað sér.
Hillary Clinton og Donald Trump mætast öðru sinni klukkan 01:00 að íslenskum tíma.
Nancy O'Dell, konan sem Donald Trump sagðist hafa reynt að sofa hjá án árangurs í myndbandi sem lekið var fyrir skemmstu, hefur tjáð sig opinberlega um ummæli hans.
Aðjunkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands rýnir í kappræður Hillary og Trump sem verða í kvöld
Óborganlegt innslag
Fjölmargir áhrifamenn í bandaríska Repúblikanaflokknum hafa farið fram á að Donald Trump forsetaframbjóðandi dragi framboð sitt til baka.
Komandi kosningar kunna að virðast einstæðar. Þar takast á annars vegar reyndur Demókrati, Hillary Clinton, með langan stjórnmálaferil en hins vegar athafnamaðurinn Donald Trump sem aldrei hefur gegnt opinberu embætti og er nýgenginn til liðs við Repúblikana eftir að hafa áður stutt Demókrataflokkinn. Þegar nánar er að gáð er þessi staða ekki fordæmalaus og minnir hún um margt á aðrar og ekki síður afdrifaríkar kosningar. Þær voru árið 1940.
Myndband sýnir hvernig lögreglan í New York átti í fullu fangi með að halda aftur að mannfjöldanum sem kom saman fyrir utan Trump Tower.
Robert De Niro og Arnold Schwarzenegger eru búnir að gefast upp á auðkýfingnum.
Þrátt fyrir mikla ólgu innan Repúblikanaflokksins ætlar auðkýfingurinn sér að halda ótrauður áfram
„Þessi orð endurspegla ekki hver ég er. Ég biðst afsökunar.“
Miðvikudagurinn 17. september 2014. Edinborg. Igor Borisov og þrír rússneskir félagar hans mæta til skosku höfuðborgarinnar. Þeir eru komnir til að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni um sjálfstæði Skotlands á vegum rússneskra stjórnvalda.
Myndband af Donald Trump tala um konur með grófum hætti hefur verið birt af Washington Post.