Verkfall 2016

Inn- og útflutningur gæti stöðvast
Kjaradeila yfirmanna á fraktskipum er í algjörum hnút eftir árangurslausan samningafund í dag.

Ríkið vill svipta flugvirkja Samgöngustofu samningsréttinum
Flugvirkjar hjá Samgöngustofu, sem sinna öllu gæðaeftirliti með íslenskum flugfélögum og viðhaldsstöðvum og votta leyfi, hafa verið samningslausir í 27 ár.

Flugvirkjaverkfall farið að bíta
Verkfall flugvirkja hjá samgöngustofu er farið að hafa veruleg áhrif á flugrekendur í landinu.

Verkfall flugvirkja geti haft alvarleg áhrif á starfsemi og framtíðarplön WOW
„Verkfallið getur haft grafalvarleg áhrif á starfsemi WOW air og framtíðarplön félagsins,“ segir Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air.

Telur verkfall flugvirkja eiga eftir að standa yfir í nokkurn tíma
Lítið miðar í samningsátt i kjaradeilu flugvirkja sem starfa hjá Samgöngustofu.

Ríkisstjórnin kynnir aðgerðir sínar í tengslum við SALEK á næstu dögum
Fjármálaráðherra segir stöðu fjármála ríkis og sveitarfélaga ekki eins sterka og margir virðist halda.

Sjómenn samþykkja undirbúning verkfallsaðgerða: „Verður fylgt eftir af fullri hörku“
Sjómenn segja þolinmæðina að þrotum komna. Hugsanlegar verkfallsaðgerðir gætu hafist í apríl.

Flugvirkjar farnir í verkfall
Ótímabundið verkfall flugvirkja sem starfa sem eftirlitsmenn hjá Samgöngustofu hófst klukkan sex í morgun.

Fimmtungur starfsmanna án samnings
Í vikunni hafa verið skipulagðir samningafundir sveitarfélaga við tónlistarkennara og félög iðnaðarmanna. VLFA bíður niðurstöðu Félagsdóms í lok janúar.

Segir útgerðina með meiri kröfur á sjómenn en þeir á útgerðina
Sjómenn hafa verið samningslausir frá því senmma árs árið 2011 eða bráðum í fimm ár. Útgerðin vill að sjómenn taki meira þátt í að greiða kostnað hennar.

Sjómenn vilja láta sverfa til stáls
Staðan í kjaraviðræðum er grafalvarleg, að sögn formanns Sjómannasambands Íslands. Hann segir sjómenn þreytta á sífelldum hótunum útgerðanna að ef þeir standi á rétti sínum verði þeir reknir.

BHM kærir íslenska ríkið til Mannréttindadómstóls Evrópu
Bandalag háskólamanna segja íslensk stjórnvöld hafa brotið gegn Mannréttindasáttmála Evrópu með inngripi sínu í samningsfrelsi stéttarfélaga

Ríkissáttasemjari ræður næstu skrefum
Engar viðræður hafa farið fram í kjaradeilu starfsmanna við álverið í Straumsvík frá því verkfalli var aflýst. Samtök atvinnulífsins segja ákvæði um verktöku í veginum.

Milljarðar frá Rio Tinto í Straumsvík til Rio Tinto í Sviss þrátt fyrir tap
Kaupa súrál af móðurfélaginu og greiða fyrir einkaleyfi og fleira.

Segir yfirgnæfandi líkur á að hótun um lokun álversins hafi verið blöff
Ef orka álversins í Straumsvík yrði seld um sæstreng til Bretlands fengi seljandi á Íslandi minnst tuttugu milljarða króna hreinan hagnað á ári.

Formaður VM um Rio Tinto: „Hroki þeirra og framganga er ný fyrir okkur“
Guðmundur Ragnarsson segir ákvörðun samninganefndar starfsmanna ÍSAL um að aflýsa verkfalli hafi verið það eina rétta sem hægt var að gera eins og viðræðurnar þróuðust.

Tveir slæmir kostir í stöðunni í álversdeilunni
Formaður VM segir að ÍSAL hefði getað þvingað vilja sinn upp á verkalýðsfélögin ef byrjað hefði verið að keyra starfsemi álversins niður.

Rannveig Rist segir löngu tímabært að fá niðurstöðu í kjaraviðræðurnar
"Deilan snýst um þá staðreynd að ISAL situr ekki við sama borð og önnur fyrirtæki hvað varðar möguleika á útvistun verkefna,“ segir forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi.

„Vægast sagt sérstök staða og ekki trúverðug“
Talsmaður starfsmanna álversins í Straumsvík telur líklegt að stjórnendur hyggist loka álverinu.

Boðuðu verkfalli í álverinu í Straumsvík frestað
Kjaradeilan áfram óleyst.

Árangurslausum sáttafundi lokið í Straumsvíkurdeilunni
Verkfall starfsmanna hefst á miðnætti.

Rannveig vongóð um að sátt náist í tæka tíð
Rannveig Rist forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi er vongóð um að samnningar við starfsmenn náist áður en allsherjarverkfall þeirra hefst á miðnætti. Fundað hefur verið með óformlegum hætti í allan dag og funda samninganefndinar nú hjá ríkissáttasemjara, þó ekki með formlegum hætti.

Útlit fyrir að verkfall starfsmanna álversins í Straumsvík hefjist á miðnætti
Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan á Íslandi, segir fyrirtækið ekki ætla að draga í land með kröfur sínar um aukna heimild til verktöku.

Tæki Landsvirkjun 4-6 ár að fá nýja orkukaupendur
Það tæki Landsvirkjun fjögur til sex ár að fá nýja kaupendur að allri raforkunni, ef álverinu í Straumsvík yrði lokað, að mati sérfræðings um orkumarkaðinn.

Fundi lauk á innan við klukkustund
Kjaradeila starfsmanna álversins í Straumsvík enn í hnút.

Kjaraviðræður enn strand þrátt fyrir tugi sáttafunda
Rétt rúmir tveir sólarhringar eru í að verkfall starfsfólks álversins í Straumsvík hefjist.

„Eigum að rísa upp og stoppa þessa aðför að okkur“
„Rio Tinto er alþjóðlegur auðhringur sem á sér viðbjóðslega sögu um heim allan,“ segir Guðmundur Ragnarsson, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna.

„Enginn launamaður þurft að semja störfin frá sér“
Fundur í kjaradeilu starfsmanna álversins í Straumsvík hófst í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan tvö í dag.

Landsvirkjun hljóð og minnir á samninginn
Forsvarsmenn Landsvirkjunar neita að tjá sig um kjaradeiluna í Straumsvík og samning um raforkukaup við Rio Tinto Alcan fari svo að álverið verði aflagt. Endurnýjaður samningur um orkukaup var undirritaður fyrir tæpu ári.

Formaður VM segir einfalt að leysa kjaradeilu í Straumsvík
Guðmundur Ragnarsson segir einfalt að ná samningum í Straumsvík enda kröfurnar svipaðar og samið hafi verið um annars staðar í þjóðfélaginu.