Eldgos og jarðhræringar

Skjálftar við Djúpavatn í nótt
Í nótt urðu tveir skjálftar við Djúpavatn á Reykjanesi, sá fyrri klukkan rétt rúmlega fjögur sem var 3,3 stig og sá seinni upp á 2,6 stig klukkan hálf fimm.

Mikilvægt að undirbúa sig vel fyrir stóra skjálftann
Búast má við jarðskjálftum að stærðinni um eða yfir sex á höfuðborgarsvæðinu. Fagstjóri náttúruvár segir mikilvægt að vera vel undirbúinn þegar að því kemur.

Segja fyrirvara á næsta gosi við Grindavík geta orðið stuttan
Jarðvísindamenn Veðurstofu og Háskóla Íslands segja að líkurnar á nýju eldgosi norðan Grindavíkur teljist núna verulegar og vara við að fyrirvarinn geti orðið stuttur. Þeir segja líklegt að á næstu tveimur vikum eða jafnvel dögum nái kvikumagnið í kvikuhólfinu undir Svartsengi svipuðu rúmmáli og var fyrir síðasta eldgos þann 14. janúar.

Í leyfi frá löggæslustörfum: „Hef líka skyldur gagnvart sveitarfélaginu mínu“
Hjálmar Hallgrímsson, lögreglumaður og formaður bæjarráðs í Grindavík, er í leyfi frá löggæslustörfum og hefur verið það í á þriðju viku. Það staðfestir hann í samtali við fréttastofu.

Hætta vegna hraunflæðis meiri í nýju hættumatskorti
Hætta vegna hraunflæðis í Grindavík hefur verið fært upp í mikla hættu á nýju hættumatskorti Veðurstofunnar. Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að heildarhættumatið sé það sama hafi fyrir Grindavík hafi þetta breyst. Einnig er hætta vegna jarðfalls ofan í sprungu metin mjög mikil.

Algjörlega ljóst að ekki sé búandi í Grindavík
Prófessor í jarðeðlisfræði segir að gera verði greinarmun á búsetu og vinnu í Grindavík. Við núverandi aðstæður sé algjörlega ljóst að ekki sé ekki hægt að búa í bænum, en að hans mati sé ásættanleg áhætta að hafa starfsemi þar. Hópstjóri náttúruvár segir að ekki sé tímabært að velta búsetu í bænum fyrir sér fyrr en kvika sé hætt að streyma inn undir Svartsengi.

Mikilvægt að ala ekki á ótta um möguleg eldgos
Jarðvísindamenn og bæjarstjóri Hafnarfjarðar segja fjölmiðla bera einhverja ábyrgð á umræðu um jarðhræringar og eldvirkni. Mikilvægt að sé að ala ekki á ótta.

Engum hleypt inn í Grindavík næstu tvo daga
Íbúum og fyrirtækjaeigendum verður ekki hleypt inn í Grindavík næstu daga vegna slæmrar veðurspár. Vegna veðurs þykir ekki óhætt að halda því fyrirkomulagi sem búið var að setja upp.

Pallborðið á Vísi í dag: Er ógn eldgosa að færast nær höfuðborgarsvæðinu?
Ógn sem íbúum höfuðborgarsvæðisins kann að stafa af eldsumbrotum verður umræðuefni Pallborðsins á Vísi í dag. Kristján Már Unnarsson fær til sín bæjarstjórann í Hafnarfirði, Rósu Guðbjartsdóttur, og tvo jarðvísindamenn, Kristínu Jónsdóttur, jarðskjálftafræðing á Veðurstofu Íslands, og Magnús Tuma Guðmundsson, jarðeðlisfræðing við Háskóla Íslands.

Fyrirkomulagið við verðmætabjörgun sé ómögulegt
Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir skipulag verðmætabjörgunar fyrir íbúa vera ómögulegt. Margir geti ekki nýtt sér úrræðið vegna erfiðra akstursskilyrða og annarra skuldbindinga.

Búast við eldgosi á næstu dögum
Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi. Magn kviku er orðið svipað og það var fyrir síðasta gos. Jarðvísindamenn búast við nýjum atburði, kvikuhlaupi, sem gæti leitt til eldgoss á næstu dögum eða rúmri viku.

Ólíklegt að menn fáist til að fjárfesta í uppbyggingu í Hvassahrauni
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segist telja ólíklegt að menn fáist til að fjárfesta í uppbyggingu í Hvassahrauni þar sem mikil óvissa ríkir um öryggi á svæðinu.

Pallborðið: Veðurstofan sökuð um að brjóta lög og deila ekki gögnum
Veðurstofa Íslands safnar gríðarlegu magni gagna um veðurfar, jarðhræringar, vatnafar og loftslag, svo eitthvað sé nefnt. Sérfræðingar segja stofnunina hins vegar trega til að deila umræddum gögnum.

Ekkert bendir til að kvika sé að safnast saman undir Brennisteinsfjöllum
Engar mælingar benda til þess að kvika sé að safnast saman eða brjóta sér leið undir Brennisteinsfjöllum. Um tuttugu skjálftar mældust um síðustu helgi milli Húsfells og Bláfjalla. Mikilvægt er þó að hafa í huga að skjálftar sem eiga upptök á Hvalhnúksmisgenginu séu stærstu skjálftar sem hafa riðið yfir Reykjanesskagann.

Segir ekki hægt að kalla fall mannsins í sprunguna slys
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir ekki hægt að kalla það þegar maður féll í sprungu í Grindavík slys. Hann telur óafsakanlegt að vinna hafi þegar verið hafin við að fylla í sprungur sem ekki var nauðsynlegt að fylla í, né heldur að hann hafi verið einn að störfum.

Full ástæða til að fylgjast vel með virkni nærri Bláfjöllum
Full ástæða er til að fylgjast vel með jarðskjálftavirkni nærri Bláfjöllum að mati fagstjóra náttúruvár hjá Veðurstofunni. Engin merki séu þó um kvikusöfnun á svæðinu.

Vonskuveður gæti komið í veg fyrir verðmætabjörgun á morgun
Verðmætabjörgun í Grindavík hefur gengið vel það sem af er degi, að sögn lögreglustjórans á Suðurnesjum. Stefnt er að því að um 400 íbúar geti vitjað heimila sinna og eigna í dag, en hugsanlega þarf að gera breytingar á áætlun morgundagsins þar sem veðurspá er afar slæm.

Áfram Grindavík!
Við Íslendingar höfum þurft í gegnum aldir alda að eiga við all hrikalega krafta móður jarðar. Þau allra verstu á landnámstímum væntanlega móðuharðindin í kjölfar Skaftárelda, djöfulganginn í systrunum Heklu og Kötlu auk frændanna í Vatnajökli, Bárðarbungu og Öræfajökli.

Nota Suðurstrandarveg á morgun en leita fleiri leiða
Suðurstrandarvegur verður áfram leiðin inn í Grindavík fyrir þá bæjarbúa sem þangað fara á morgun.

Verði kannski komin á byrjunarreit eftir tíu daga
Víðir Reynisson segir aðgerðir við verðmætabjörgun í Grindavík heilt yfir hafa gengið vel í dag, þrátt fyrir hnökra í upphafi dags. Hann segist vel skilja reiði og pirring Grindvíkinga. Með áframhaldandi landrisi aukist óvissan um hvað gerist næst.

Vill hanna varnir strax
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi eru að sigla inn í óvissutíma að sögn eldfjallafræðings. Eldgosin séu að færast nær byggð og við því þurfi að bregðast.

Segir galið að aka Krýsuvíkurleiðina í aðstæðum eins og í morgun
Miklar umferðartafir urðu við Grindavík í morgun þegar íbúar fengu að fara inn í bæinn að sækja eigur sínar. Veður og hálka gerði fólki erfitt fyrir og þurftu sumir að snúa við. Íbúi segir galið að almannavarnir hafi beint fólki um Krýsuvíkurveg sem sé þekktur fyrir að vera hættulegur í aðstæðum eins og í morgun.

„Ekki spurning um hvort það verði gos, heldur hvenær“
Þorvaldur Þórðarsson, eldfjallafræðingur, segist telja að skjálftahrina í Húsfellsbruna um helgina sé hluti af þeirri virkni sem er að eiga sér stað á Reykjanesskaga. Ekki sé spurning um hvort heldur hvenær muni gjósa í Brennisteinsfjöllum, þó hann telji ekki líkur á að það muni gerast á næstunni.

Skoða þarf viðbrögð við eldgosi nærri höfuðborgarsvæðinu
Eldfjallafræðingur segir jarðskjálftahrinuna um helgina nærri Bláfjöllum til marks um að allt kerfið sé komið af stað.

Takmarka aðgengi svo hægt sé að rýma skyndilega
Sérfræðingar í áhættugreiningu hafa greint hvert einasta svæði í Grindavík og leiðbeint Almannavörnum þannig að unnt sé að hleypa íbúum bæjarins heim til sín í skamma stund. Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir bæinn hættulegan og sífelt erfiðara verði að halda lífi í honum.

Kristrún kallar eftir opinskárri umræðu um aðstoð við Grindvíkinga
Það sem skiptir máli þegar kemur að því hvernig stjórnvöld hyggjast mæta Grindvíkingum sem nú sjá fram á að þurfa að finna sér nýtt húsnæði til lengri tíma og jafnvel langframa, er ekki hvaðan fjármagnið kemur heldur áhrif aðgerðanna á efnahagslífið.

Þorvaldur segir brýnt að ráðast strax í fyrirbyggjandi aðgerðir
Tveir skjálftar komu eftir hádegi í gær í grennd við Bláfjallaskála og var sá fyrri 2,9 stig og seinni 2,8.

Vinnueftirlitið rannsakar slysið í Grindavík og vill lögregluskýrslu
Vinnueftirlitið rannsakar nú vinnuslysið í Grindavík, þar sem maður féll ofan í sprungu. Hefur eftirlitið óskað eftir lögregluskýrslu um málið.

„Það fá allir tíma og það er nægur tími fram undan“
Frá og með morgundeginum verður Grindvíkingum hleypt inn á heimili sín í hollum. Ekkert kalt vatn er á bænum og hitaveita verulegua löskuð, þannig að kalt er í húsum. Grindvíkingar fá þrjá klukkutíma til að vera í bænum í fyrstu lotu.

Heimsækja þrjúhundruð heimili í þrjár klukkustundir
Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, kynnti í dag nýtt skipulag um takmarkaða opnun Grindavíkur á upplýsingafundi.