Rannsóknarskýrsla Alþingis
10 11 12 13 14 ›
Allir nema sjálfstæðismenn hafa gengið frá tilnefningum Eftir því sem fréttastofa kemst næst hafa allir flokkar að Sjálfstæðisflokki undanskildum gengið frá því hvaða þingmenn munu sitja í nefndinni sem ætlað er að fjalla um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem skilað verður í lok janúar á nýju ári. Þau Oddný G. Harðardóttir og Magnús Orri Schram munu sitja í nefndinni fyrir hönd Samfylkingar. Innlent 29.12.2009 14:46
Ætla að tilnefna fulltrúa í þingnefndina Þingflokkur Hreyfingarinnar áformar að tilnefna fulltrúa í þingnefnd sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þrátt fyrir að allar breytingartillögur þingflokksins hafi verið felldar í atkvæðagreiðslu í morgun. Innlent 29.12.2009 13:46
Lög samþykkt um þingmannanefnd Ekki náðist samstaða á Alþingi um frumvarp forsætisnefndar um rannsókn á aðdraganda og orsökum bankahrunsins. Þingmenn Hreyfingarinnar sátu hjá í atkvæðagreiðslu þegar frumvarpið var samþykkt í morgun. Innlent 29.12.2009 11:34
„Hreyfingin gefur þingmönnum puttann" Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi málflutning þingmanna Hreyfingarinnar í umræðum á Alþingi í dag um þingnefnd sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hún sagði Hreyfinguna gefa Alþingi puttann. Innlent 29.12.2009 10:42
Þingnefndin er prófsteinn á styrk Alþingis Formaður allsherjarnefndar Alþingis segir að vinnu þingmannanefndar sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sé prófsteinn á styrk og trúverðugleika þingsins. Innlent 29.12.2009 09:51
Fyrningu ráðherrabrota seinkað Möguleg brot á lögum um ráðherraábyrgð fyrnast á fjórum árum en ekki þremur, nái breytingar allsherjarnefndar Alþingis á frumvarpi til breytinga á lögum um rannsókn á falli bankanna og tengdum atburðum fram að ganga. Nefndin afgreiddi breytingartillögu þar um á fundi í gærmorgun. Innlent 28.12.2009 23:05
Ráðherraábyrgð Davíðs og Halldórs fyrnd Embættisfærslur Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar í embætti forsætisráðherra koma ekki til skoðunar sérstakrar þingmannanefndar sem verður gert að kanna möguleg brot á lögum um ráðherraábyrgð í aðdraganda hrunsins. Innlent 28.12.2009 18:53
Nefnd um rannsóknarnefnd skipuð fyrir áramót Níu manna þingmannanefnd sem ætlað er að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis verður væntanlega skipuð fyrir áramót. Þingmenn vilja skipa í nefndina sem fyrst til að koma í veg fyrir frekari fyrningu brota sem snerta ráðherraábyrgð. Innlent 28.12.2009 11:57
Verður afgreitt milli hátíðanna Til stendur að afgreiða breytingar á lögum um rannsókn Alþingis á hruninu á þingfundi á mánudag. Innlent 23.12.2009 19:42
Engir minnispunktar af 18 fundum Baldurs Engir minnispunktar eru til í fjármálaráðuneytinu um átján fundi, sem haldnir voru frá janúar 2007 til október 2008 og Baldur Guðlaugsson þáverandi ráðuneytisstjóri sat, ýmist með aðilum frá Seðlabankanum, ráðherrum eða fjármálaeftirliti. Innlent 21.12.2009 21:32
Hæstaréttardómarar hugsanlega vanhæfir Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins skipuðu alla dómara við Hæstarétt og að minnsta kosti tveir þeirra hafa gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Fjórir af níu dómurum í Hæstarétti gætu orðið vanhæfir til að dæma í málum sem tengjast bankahruninu. Innlent 15.12.2009 18:40
Segir frumvarp um Rannsóknarnefnd Alþingis meingallað Fyrirliggjandi frumvarp um Rannsóknarnefnd Alþingis er meingallað að mati Þórs Saari, þingmanns Hreyfingarinnar. Hann segir að frumvarpið geri ráð fyrir að þingið rannsaki sig sjálft og að upplýsingum sé leynt fyrir almenningi. Innlent 2.12.2009 12:14
Geir Haarde verður 139 ára þegar almenningur verður upplýstur að fullu Allt að 80 ára leynd mun hvíla á viðkvæmum upplýsingum sem rannsóknarnefnd Alþingis hefur haft til meðferðar í tengslum við skýrslu um bankahrunið. Um er ræða upplýsingar sem snerta launakjör einstaklinga og rekstur fyrirtækja. Forseti Alþingis segir að þetta muni ekki rýra gildi skýrslunnar. Innlent 1.12.2009 18:38
Fyrrum landstjóri Manar yfirheyrður vegna Kaupþings Donald Gelling, fyrrum landstjóri ( chief minister) á eyjunni Mön verður yfirheyrður af sérstakri rannsóknarnefnd þingsins á Mön sem rannsakar nú hrun Singer & Friedlander banka Kaupþings á eyjunni. Viðskipti erlent 5.11.2009 09:35
Telur að forsetinn hafi eitthvað að fela „Það er eitthvað segir manni að það sé eitthvað í þeim sem hann vill ekki að líti dagsins ljós," segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður um þá ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands að birta einungis hluta af þeim bréfum sem Rannsóknarnefnd Alþingis fékk frá honum. Innlent 25.10.2009 10:50
Telur það ekki hafa verið mistök að senda bréfin Forseti Íslands segir að það hafi ekki verið mistök að senda bréf til stuðnings íslenskum fjármálafyrirtækjum á sínum tíma. Hann segir að margir hafi reynt að gera bréfin, sem Rannsóknarnefnd Alþingis hefur nú til skoðunar, tortryggileg. Innlent 24.10.2009 18:24
Bauð Gore á fund með stjórnendum Glitnis Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands bauð Al Core, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, á fund með stjórnendum Glitnis banka í byrjun árs 2007. Innlent 24.10.2009 11:39
Bréf forsetans birt Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur birt á heimasíðu forsetaembættisins átta af þeim sautján bréfum sem Rannsóknarnefnd Alþingis fékk send. Segir á vefsíðu forsetans að þannig vilji hann koma til móts við óskir og umræður í samfélaginu. Þessi bréf séu til manna sem látið hafa af embætti auk tveggja annarra einstaklinga. Innlent 24.10.2009 10:41
Almenningur ber traust til Evu Joly Um 67% svarenda í skoðanakönnun MMR segjast bera mikið traust til Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara vegna rannsóknar á refsiverðri háttsemi í tengslum við bankahrunið. Um 8,7% segjast bera lítið traust til hennar. Um 52,8% kveðst en um 15,2% segist bera lítið traust til hans. Innlent 20.10.2009 12:14
Skýrslu rannsóknarnefdnarinnar frestað til 1.febrúar Forsætisnefnd og formenn þingflokkanna áttu fund með rannsóknarnefnd Alþingis í morgun. Fram kom að gagnaöflun hefur reynst tímafrekari og yfirgripsmeiri en reiknað var með í fyrstu. Nefndin hefur enn undir höndum upplýsingar sem þarfnast frekari úrvinnslu. Því er einsýnt að ekki verður unnt að láta Alþingi í té fullburða skýrslu um niðurstöðu rannsóknarinnar 1. nóvember eins og stefnt hefur verið að og segir í lögunum. Er við það miðað að skýrslan komi fram eigi síðar en 1. febrúar. Innlent 14.10.2009 13:33
Skrifaði engin bréf í þágu íslenskra fjármálafyrirtækja Forseti Íslands segist engin bréf hafa skrifað til þjóðarleiðtoga í þágu íslenskra fjármálafyrirtækja á erlendri grundu, fyrir utan eitt bréf, sem snéri ekki að bönkunum. Innlent 5.10.2009 18:36
Ólafur skrifaði erlendum forsetum bréf um bankana Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis, skrifaði forseta Íslands bréf 11. ágúst síðastliðinn til að óska eftir upplýsingum um og afritum af bréfaskrifum forsetans í þágu íslenskra fjármálastofnana eða fyrirsvarsmanna þeirra á árunum 2000-2008. Innlent 4.10.2009 22:10
Segir FME hafa sofið illa á verðinum gagnvart Samson Ólafur Arnarson skrifar athyglisverða grein á vefsíðuna Pressan um hvernig Fjármálaeftirlitið (FME) svaf gersamlega á verðinum gagnvart Samson, kjölfestueigenda Landsbankans. Ólafur vitnar í eigin orð FME þegar Samson var leyft að kaupa Landsbankans um að hlutverk félagsins ætti einungis að vera að halda um þá eign og myndi FME fylgja slíku eftir. Viðskipti innlent 30.9.2009 11:11
Mat geðlækna ekki aðalatriði Óvíst er hvort þær bætur sem eyrnamerktar voru Breiðavíkurdrengjum í fjáraukalögum 2008, rúmar 120 milljónir, muni renna til fórnarlambanna óskiptar, eða hvort rannsóknarnefnd Breiðavíkurmálsins eigi að þiggja laun sín úr þeim potti. Nefndarstörf kosta nú um sextíu milljónir. Innlent 27.9.2009 22:35
Mun ekki brjóta trúnað og birta í Morgunblaðinu Davíð Oddsson, nýr ritstjóri Morgunblaðsins, sagði í viðtali við Sölva Tryggvason á Skjá Einum nú í kvöld að hann myndi ekki rjúfa trúnað við rannsóknarnefnd Alþingis vegna bankahrunsins. Innlent 25.9.2009 19:36
Moody´s sakað um að blása upp lánshæfiseinkunnir Fyrrverandi greinandi hjá matsfyrirtækinu Moody´s hefur sakað Moody´s um að blása upp lánshæfiseinkunnir sínar. Hefur hann farið með málið fyrir ransóknarnefnd á Bandaríkjaþingi, að því er segir í blaðinu Wall Street Journal í dag. Viðskipti erlent 23.9.2009 08:54
AGS taldi álagspróf eftirlitsins strangt Ýmsir aðilar sem fjölluðu um íslenska bankakerfið, meðal annars Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, töldu álagspróf Fjármálaeftirlitsins (FME) strangt. Þetta segir Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri FME, um það að rannsóknarnefnd Alþingis hafi álagsprófin nú til skoðunar. Innlent 18.9.2009 21:47
Skoða málsókn gegn fjármálaeftirlitinu Danski ríkisendurskoðandinn kemur hingað til lands í næstu viku til að kynna rannsóknarnefnd Alþingis skýrslu sem verður notuð sem grunnur að málsókn gegn stjórn danska fjármálaeftirlitsins. Stjórn þess er sökuð um að hafa ekki haft nægilegt eftirlit með Hróarskeldubanka sem varð gjaldþrota í fyrrasumar. Innlent 17.9.2009 21:35
Aðgerðir gegn eftirliti bíða niðurstöðu rannsóknarnefndar Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir að hugsanlegar aðgerðir, eins og til dæmis málsóknir, gegn eftirlitsaðilum vegna vinnubragða þeirra í aðdragenda efnahagshrunsins í haust munu bíða eftir niðurstöðum frá rannsóknarnefnd Alþings. Viðskipti innlent 17.9.2009 15:11
Leggja væntanlega til framhaldsrannsókn á bankahruninu Rannsóknarnefnd Alþingis skilar niðurstöðum sínum um bankahrunið eftir nokkrar vikur. Í byrjun næsta mánaðar fær nefndin skýra mynd af stöðu mála og í framhaldinu verður tekin ákvörðun um endanleg skil. Þá verður ár fá því að bankarnir féllu. Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndarinnar, telur ekki ólíklegt að gerðar verði tillögur um framhaldsrannsókn á einstökum þáttum bankahrunsins. Innlent 17.9.2009 13:35
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent