Lánamál
1 2 ›
Þegar útborgunin hverfur: Svona geta fjölskyldur tapað öllu Hildur og Jón eru ung hjón. Þau eiga tveggja ára dóttur og búa hjá foreldrum Hildar. Þau kaupa sína fyrstu íbúð og hafa haft mikið fyrir því að safna peningi til að eiga fyrir útborgun. Skoðun 13.11.2025 14:02
Ótrúlegt að bankarnir hafi komist upp með að „loka sjoppunni“ Breka Karlssyni, framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna, finnst með ólíkindum að bankarnir hafi fengið að komast upp með að loka fyrir lán svo vikum skiptir í skugga dóms hæstaréttar um ólöglega skilmála. Auk þess hafi bankarnir vel borð fyrir báru til að taka betur utan um viðskiptavini sína og lækka vexti á húsnæðismarkaði. Neytendur 11.11.2025 14:23
Aldrei mikilvægara að fylgjast vel með lánunum Fjármálaráðgjafi segir nýtt húsnæðislánaframboð viðskiptabankanna þýða að aldrei hafi verið mikilvægara fyrir neytendur að fylgjast vel með stöðu lána sinna. Of snemmt sé að segja til um hvort sigur sé að ræða fyrir neytendur en ljóst sé að valkostir séu færri þó jákvætt sé að nú bjóði bankar upp á ólíkar leiðir til lántöku. Viðskipti innlent 11.11.2025 10:27
Arion banki tilkynnir nýtt lánaframboð Arion banki hefur kynnt nýtt húsnæðislánaframboð í kjölfar óvissunnar sem skapaðist á íbúðalánamarkaði í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar í máli gegn Íslandsbanka. Nú verða í boði verðtryggð íbúðalán með fasta vexti til þriggja eða fimm ára og lánstíma allt að þrjátíu ár og einnig óverðtryggð íbúðalán með fasta vexti til þriggja ára, með lánstíma allt að fjörutíu ár. Viðskipti innlent 10.11.2025 14:41
Nýtt lánafyrirkomulag varanleg lausn til að losa um stífluna Bankastjóri Íslandsbanka segir nýtilkynnt lánafyrirkomulag verðtryggðra lána vera til þess gerð að losa stífluna sem myndast hefur á fasteignamarkaði vegna dóms Hæstaréttar frá í síðasta mánuði. Fyrirkomulagið sé hugsað sem langtímalausn og stendur fyrstu kaupendum og almennum lántökurum til boða. Viðskipti innlent 9.11.2025 20:06
Vonar að stíflan á markaðnum muni brátt bresta Íslandsbanki reið fyrstur á vaðið í dag og kynnti nýtt lánafyrirkomulag verðtryggðra lána í kjölfar nýrra vaxtaviðmiða seðlabankans. Fasteignasali segist vongóður um að stífla á fasteignamarkaðnum muni brátt bresta. Viðskipti innlent 9.11.2025 19:00
Íslandsbanki opnar á verðtryggð húsnæðislán á föstum vöxtum Íslandsbanki hefur ákveðið að hefja á ný veitingu verðtryggðra húsnæðislána á föstum vöxtum. Í kjölfar nýlegs dóms Hæstaréttar gerði bankinn tímabundið hlé á veitingum slíkra lána. Viðskipti innlent 9.11.2025 17:25
Illskiljanleg viðmið vinni gegn markmiði Seðlabankans Hagfræðingur og dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands segir ýmislegt gagnrýnisvert við ný vaxtaviðmið Seðlabanka Íslands. Hann telur óskýrleika og flækjustig viðmiðsins vinna gegn því að leysa úr óvissu á lána- og fasteignamarkaði og segir óvíst hvort Seðlabankanum takist ætlunarverk sitt. Viðskipti innlent 8.11.2025 13:04
Hulunni svipt af vaxtaviðmiðinu Seðlabankinn hefur ákveðið að hefja birtingu á föstum lánstímavöxtum frá og með deginum í dag. Seðlabankinn mun framvegis birta vextina alla viðskiptadaga fyrir klukkan 11:00. Viðskipti innlent 7.11.2025 16:32
57 eignir óska eftir eigendum Um þessar mundir finnast hvorki meira né minna en 57 íbúðir til sölu sé leitað eftir fasteignum á Siglufirði á fasteignavef Vísis. Þetta getur ekki annað en talist gríðarlegur fjöldi íbúða í byggðarlagi þar sem íbúar voru 1.163 í ársbyrjun. Skoðun 7.11.2025 08:00
Lánið löglega Mikið hefur verið rætt og ritað um „óvissu í kjölfar dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu.“ Er þar ýmsu slengt saman og líkt dómurinn sé notaður sem átylla til að þrengja að lántökum. Skoðun 5.11.2025 16:02
„Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Samtök iðnaðarins segja útlitið hjá byggingariðnaðnum vera svart í kjölfar dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða. Söguleg óvissa grafi undan markaðnum. Hver dagur skipti máli í núverandi ástandi sem er ekki hægt að lifa við til lengri tíma. Viðskipti innlent 2.11.2025 12:17
Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Breytingar á lánareglum Seðlabankans munu ekki hafa áhrif á fjölda fólks, þar sem reglur um greiðslubyrði haldast þær sömu. Þetta segir dósent við Háskóla Íslands. Þó geti um fimmtán hundruð kaupendur komið nýir inn á fasteignamarkaðinn Viðskipti innlent 1.11.2025 14:02
Líta eigi á eignir landsbyggðarfólks í Reykjavík sem sumarbústaði Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að líta þurfi á eignir landsbyggðafólks á höfuðborgarsvæðinu eins og sumarbústaði. Þá sé verið að útiloka ákveðinn hóp íbúðaeigenda með því að nýting séreignasparnaðar inn á höfuðstól lána sé bundin til tíu ára. Innlent 1.11.2025 11:06
Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að gera breytingar á reglum Seðlabankans um hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána til neytenda og hækka hámarkið við kaup á fyrstu fasteign úr 85 prósent í 90 prósent. Hámark veðsetningarhlutfalls fyrir aðra lántaka helst óbreytt í 80 prósent. Innlent 31.10.2025 16:16
Eyðum óvissunni Nýleg ákvörðun Landsbankans um að hætta að veita verðtryggð lán nema til fyrstu kaupenda hefur haft í för með sér meiri háttar áhrif á fasteignamarkaðinn. Markaðurinn hefur kólnað á örfáum dögum og óvissan magnast. Skoðun 31.10.2025 14:31
Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Bankastjóri Íslandsbanka segir of snemmt að skera úr um hvort að vaxtadómur Hæstaréttar eigi eftir að gera lán dýrari eða ódýrari á Íslandi. Hann á síður von á að sinn banki bjóði aftur upp á breytilega verðtryggða vexti. Viðskipti innlent 31.10.2025 09:30
Tilkynna breytingar á lánaframboði Íslandsbanki hefur tilkynnt breytingar á lánaframboði bankans vegna dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða. Tímabundið verða einungis óverðtryggð lán á föstum vöxtum í boði. Viðskipti innlent 30.10.2025 15:46
Eyða óvissunni um verðtrygginguna með vaxtaviðmiði Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hyggst eyða óvissunni sem komin er upp á lánamarkaði í kjölfar dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða. Það verður gert með samráði við Seðlabanka Íslands um að hefja eins fljótt og auðið er birtingu vaxtaviðmiðs, sem getur legið til grundvallar verðtryggðum lánum. Vaxtaviðmiðið mun byggja á vöxtum ríkisskuldabréfa. Viðskipti innlent 29.10.2025 16:40
Stjórnendur Íslandsbanka enn undir feldi Stjórnendur Íslandsbanka hafa ekki ákveðið hvernig lánaframboði bankans verður breytt í kjölfar dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða. Viðskipti innlent 29.10.2025 14:31
Segir mikla vinnu í gangi vegna lánamála Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir ráðuneytið hafa undanfarið haft til skoðunar hvernig lánastofnanir geti áfram boðið fasteignalán. Lánastofnanir hafa flestar stöðvað lánveitingar tímabundið vegna dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða. Viðskipti innlent 28.10.2025 14:15
Sér ljós við enda ganganna: „Kannski þurfti svona stóra truflun til“ Bankastjóri Landsbankans segir ávöxtunarkröfu á ríkisskuldabréf þegar hafa lækkað frá því að bankinn tilkynnti um breytingar á lánaframboði sínu. Nú sé ljós við enda ganganna og spurning hvort slíka truflun á lánamarkaði hafi þurft til að verðbólga hjaðni og vextir verði lækkaðir. Hún segir markmið bankans þó aðeins hafa verið tryggja framboð íbúðalána. Viðskipti innlent 28.10.2025 11:55
„Ekki bara smá eyða, þetta er risastórt gat“ Það er ekki raunhæft að lífeyrissjóðirnir fylli einir í það stóra gat sem myndast á fasteignalánamarkaði í kjölfar viðbragða bankanna við vaxtamálinu svokallaða. Þetta segir dósent í hagfræði við Háskóla Íslands. Formaður Neytendasamtakanna bendir á að margir lífeyrissjóðir séu enn að veita verðtryggð lán og það kæmi honum mjög á óvart ef sjóðirnir skorist undan því að veita félagsmönnum sínum hagstæð lán. Viðskipti innlent 27.10.2025 20:57
Hætt við að vextir hækki Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríksins telur hættu á að vextir fasteignalána muni hækka eftir niðurstöðu í vaxtamálinu svokallaða. Mikil óvissa ríki nú sem sé slæm fyrir neytendur og fjármálafyrirtæki. Hæstiréttur þurfi að setja næstu vaxtamálin í flýtimeðferð. Viðskipti innlent 27.10.2025 19:13
Niðurstaða í máli Arion banka um miðjan desember Búast má við því að Hæstiréttur kveði upp dóm í máli tveggja lántaka á hendur Arion banka, vegna skilmála í samningi um verðtryggt lán á breytilegum vöxtum, í desember. Bankinn hefur sett veitingu verðtryggðra lána á ís en boðar frekari viðbrögð við dómi Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða, áður en dómur gengur í desember. Viðskipti innlent 27.10.2025 15:48
Hafi áhrif á innan við tíu prósent fyrstu kaupenda Framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Landsbankans segir að breytt lánaframboð bankans hefði ekki haft áhrif á lánsmöguleika yfir 90 prósent þeirra fyrstu kaupenda sem hafa tekið íbúðalán hjá bankanum á þessu ári. Viðskipti innlent 27.10.2025 15:13
Íbúðalán Landsbankans og fyrstu kaupendur Við í Landsbankanum kynntum á föstudaginn breytingar á framboði bankans á íbúðalánum í kjölfar dóms Hæstaréttar í vaxtamáli gegn Íslandsbanka. Skoðun 27.10.2025 15:00
„Það verða fjöldagjaldþrot“ Útlitið er dökkt á húsnæðismarkaði eftir vaxtadóminn svokallaða. Það segja þeir Páll Pálsson, fasteignasali, og Már Wolfgang Mixa, dósent við Háskóla Íslands, sem voru í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar ræddu þeir vaxtadóminn og áhrif hans á fasteignamarkaðinn, húsnæðisverð og lánskjör almennings. Viðskipti innlent 26.10.2025 13:06
Útspil bankans sýni að dómurinn auki samkeppni Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að breytingar á lánaframboði Landsbankans séu áhugaverðar, og hægt sé að líta á þær bæði jákvæðum og neikvæðum augum. Annars vegar minnki framboð af verðtryggðum lánum og stýrivextir fari í kjölfarið að bíta meira, en hins vegar séu komin skilyrði fyrir mikilli lækkun stýrivaxta. Vaxtadómurinn komi til með að auka samkeppni og skýrleika fyrir neytendur. Innlent 25.10.2025 00:03
Vill fund vegna „alvarlegrar stöðu“ á lánamarkaði Fulltrúi Framsóknar í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, Stefán Vagn Stefánsson, hefur óskað eftir fundi í nefndinni til að ræða þá alvarlegu stöðu sem upp er komin á lánamarkaði í kjölfar dóms Hæstaréttar í Vaxtamálinu svokallaða. Innlent 24.10.2025 14:27