Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Krist­rún?

Þolinmæði Grindvíkinga fer hratt minnkandi. Á upplýsingafundi í Grindavík um miðjan febrúar lofaði fulltrúi Fasteignafélagsins Þórkötlu að heildarlausnir í húsnæðismálum, þar á meðal möguleg leiga og kaupleiga, yrðu kynntar „seint í mars“.

Skoðun
Fréttamynd

Reykja­vík getur gripið börn fyrr

Í Reykjavík eru börn sem þurfa hjálp, en fá hana ekki nógu snemma. Mörg börn eru að takast á við erfiðar aðstæður – veikindi í fjölskyldu, ofbeldi, fátækt, fordóma eða félagslegan þrýsting – sem getur haft mikil áhrif á líðan þeirra.

Skoðun
Fréttamynd

Höfnum fram­tíðinni sem aldrei kom

Reykvíkingum hefur um árabil verið seld sú hugmynd að allt verði betra í framtíðinni. Ef bara fólk hefur þolinmæði til að bíða eftir borgarlínu, lausn á biðlistavanda leikskólanna eða hinni ofurþéttu framtíðarborg þar sem bílar verða allt að því óþarfir.

Skoðun
Fréttamynd

Nýjar skýrslur um hrauna­vá styrkja undir­búning Hafnar­fjarðar­bæjar

Mikilvægar skýrslur um hraunavá á Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðinu komu út í vikunni. Skýrslurnar eru mikilvægt framlag til þess að sveitarfélög, almannavarnir, sérfræðingar og aðrir viðbragðsaðilar geti undirbúið sig betur, styrkt innviði og tekið upplýstar ákvarðanir með öryggi íbúa að leiðarljósi.

Skoðun
Fréttamynd

Hættu­legar skóla­lóðir

Á undanförnum árum hefur safnast upp veruleg viðhaldsþörf í leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar, bæði hvað varðar húsnæði og skólalóðir.

Skoðun
Fréttamynd

Hverfin hverfast um íþrótta­félögin

Sem gamall HK-ingur, þó löngu fluttur úr Kópavogi — og HK raunar líka flutt úr mínu gamla hverfi upp í efri byggðir bæjarins — finn ég enn sterkt hversu seint tengingin við gamla klúbbinn og samfélagið sem því fylgdi slitnar.

Skoðun
Fréttamynd

Hús­næði er ekki lúxus – rödd ungu kyn­slóðarinnar

Ég er ung kona sem reynir að lifa lífinu eins vel og ég get. Bráðlega verð ég eiginkona og því, eins og margir á þessum stað í lífinu, er ég farin að hugsa alvarlega um framtíðina – um stöðugleika, um að byggja upp heimili og skapa stað sem verður raunverulega okkar eigin.

Skoðun
Fréttamynd

Aftur til for­tíðar – leik­skólinn sem réttur eða geymsla?

Í loforðalista flokksins bendir oddvitinn ekki á lausnir innan borgarkerfisins. Þess í stað er ætlunin að fela einkaaðilum að leysa vandann og tengja leikskóla og daggæslu við vinnustaði, þar sem hraði og skilvirkni taka yfir hlutverk leikskólans sem samfélagslegs rýmis sem börn eiga rétt á.

Skoðun
Fréttamynd

Af­nemum vaxtarmörk í Hafnar­firði - Byggjum fyrir fólkið

Eftir langan og viðvarandi skort á nýju íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði sem rekja má til tregðu bæjaryfirvalda til að viðhalda nægu lóðaframboði, var loksins í lok síðasta kjörtímabils hleypt af stað framkvæmdum við uppbyggingu á nýjum hverfum.

Skoðun
Fréttamynd

Þið eruð bara eins og hlaup­ár

Í einum af fjölmörgu heimsóknum mínum, í íþróttafélögin síðustu vikur, hitti ég mann sem var greinilega kominn með nóg af sinnuleysi borgarinnar. 

Skoðun
Fréttamynd

Krýsu­víkur­samtökin 40 ára

Í gær, á sumardaginn fyrsta, var einstaklega ánægjulegt að taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni af 40 ára afmæli Krýsuvíkursamtakanna.

Skoðun
Fréttamynd

Getnaðarsigur og full­nægjandi árangur

Það eru góð tíðindi að 12 mánaða börn fædd í ágúst 2025 fái leikskólapláss í haust í Kópavogi. Sérstakar hamingjuóskir til þeirra foreldra sem höfðu þá framsýni að eignast barn akkúrat á réttum tíma, eins og Silja vinkona mín. En við skulum líka tala hreint út það hvernig þessum árangri er náð.

Skoðun
Fréttamynd

Fjár­festum í börnum

Á síðustu tíu árum hefur börnum af erlendum uppruna fjölgað hratt í skólum landsins. Hlutfall þeirra hefur víða meira en tvöfaldast síðan 2015 og er nú á bilinu 15–20% í grunnskólum, hærra í sumum hverfum Reykjavíkur. Þessi börn eru flest komin hingað til að vera, fjölskyldur þeirra eru að byggja sér líf á Íslandi og það er á okkar ábyrgð að tryggja þeim jöfn tækifæri til þátttöku í samfélaginu.

Skoðun
Fréttamynd

Börnin geta ekki beðið

Sem foreldri hef ég oft velt því fyrir mér hversu flókið það getur verið að samræma vinnu og fjölskyldulíf. Þetta ætti ekki að vera stöðugt áhyggjuefni. Samt er raunveruleikinn sá að foreldrar neyðast til að taka launalaust frí, lenda í erfiðleikum í starfi eða setja fjárhag sinn í hættu vegna þess að börnin þeirra komast ekki að í leikskóla.

Skoðun
Fréttamynd

Verk að vinna

List- og verkgreinakennsla í grunnskólum Akureyrarbæjar er alls konar. Það getur verið styrkleiki að hafa fjölbreytni en í þessu tilfelli er frekar um að ræða viðbragð við vöntun á hæfum kennurum, bágri aðstöðu eða hreinlega fjárskorti.

Skoðun
Fréttamynd

Engin fyrir­tæki engin þjónusta

Grunnrekstur borgarinnar er fjármagnaður af útsvari og fasteignagjöldum borgarbúa. Launatekjur fólks standa því að stórum hluta undir rekstrinum, og því ekki ofsögum sagt að atvinnurekendur séu grunnstoð velferðar í Reykjavík. Borgaryfirvöld virðast þó ekki meðvituð um það.

Skoðun
Fréttamynd

Mitt upp­á­halds stefnu­mál? Systkinaforgangur

Samfylkingin í Reykjavík vill bjóða upp á systkinaforgang þannig að yngra systkin komist alltaf inn á sama leikskóla og eldra systkin. Þetta er eitt af mínum uppáhalds stefnumálum fyrir kosningarnar vegna þess að yfir þriggja ára tímabil keyrði ég börnin mín á sitthvorn leikskólann á hverjum degi og þar af í heilt ár á milli hverfa í Reykjavík.

Skoðun
Fréttamynd

Lýðheilsa er undir­staða sterks sam­fé­lags

Lýðheilsa snýst ekki aðeins um góða heilbrigðisþjónustu. Hún snýst um lífið sjálft, hvernig við búum, lifum, vinnum og tengjumst hvert öðru. Hún birtist í því hvort börn upplifa öryggi og stuðning, hvort ungmenni finna tilgang og tækifæri, hvort fullorðið fólk nær jafnvægi milli vinnu og einkalífs og hvort eldra fólk fær að lifa með reisn og virðingu.

Skoðun
Fréttamynd

Nýr golf­völlur í Reykja­vík

Golf hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem ein stærsta lýðheilsu- og fjölskylduíþrótt landsins. Á landsvísu eru hátt í 30 þúsund einstaklingar skráðir í golfhreyfinguna og fjölgunin hefur verið meiri en í flestum öðrum íþróttagreinum.

Skoðun
Fréttamynd

Árangur á vakt Fram­sóknar í Suður­nesja­bæ

Það gerist ekkert af sjálfu sér. Þessi einföldu sannindi þekkjum við öll sem búum í litlu samfélagi. Hér skiptir framlag hvers og eins máli – fyrir okkur sjálf, fyrir umhverfið og fyrir samfélagið í heild.

Skoðun
Fréttamynd

Hvar er for­gangs­röðun ríkis­stjórnarinnar?

Í dag stendur Grindavík frammi fyrir einum mikilvægasta íbúafundi í sögu bæjarins. Þar á að ræða framtíð samfélags sem hefur verið sett á hliðina, samfélags sem hefur lifað í óvissu mánuðum saman og beðið eftir svörum sem virðast ekki koma.

Skoðun