Grundarreitur í gamla Hveragerði - byggjum rétt Arnar H. Halldórsson skrifar 23. apríl 2026 12:31 S-listinn fagnar því að byggja eigi upp á Grundarreit í Hveragerði. Svæðið er miðsvæðis, stutt í alla þjónustu, skóla og íþróttamannvirki. Það hefur alla burði til að verða eftirsótt og lifandi hverfi, til að mynda fyrir ungt fólk og eldri borgara. Uppbygging á slíkum stað er tækifæri en aðeins ef rétt er að verki staðið. Deiliskipulagið af Grundarreitnum, sem nú liggur fyrir og er til kynningar í skipulagsgátt, vekur hins vegar verulegar áhyggjur. Áformin gera ráð fyrir að fara úr 23 íbúðum samkvæmt fyrra aðalskipulagi í allt að 80 íbúðir í níu tveggja hæða fjölbýlishúsum. Gangi þetta eftir gæti þetta orðið 200 manna hverfi. Sjá deiliskipulagstillögu hér. Það er ekki hófleg þróun heldur umfangsmikil þétting sem mun hafa áhrif á ásýnd elsta hluta bæjarins, umferð og öryggi. Með þessu fylgja um 140 bílastæði (með gestastæðum) og aukið álag á götur eins og Heiðmörk og Þelamörk. Íbúar hafa nú þegar lýst yfir áhyggjum sínum, m.a. af umferðaröryggi barna sem sækja skóla og íþróttaæfingar. Þau þurfa að ganga yfir þessar götur og einnig yfir Breiðumörk þar sem umferð er vaxandi. Þá vekur það furðu að tæplega 30 íbúar, næstu nágrannar sem hafa gert athugasemdir við áformin, lýsa því yfir að ekki hafi verið á þá hlustað. Það er einfaldlega ekki ásættanlegt. Þessi tillaga undirstrikar að nauðsynlegt er að fara yfir nýja aðalskipulagið og gera á því breytingar. Þar er að finna veigamikil atriði sem þarf að lagfæra sem væri til heilla fyrir bæinn okkst og alla íbúa. S-listinn vill staldra við og gera betur S-listinn styður uppbyggingu en ekki uppbyggingu án ábyrgðar. Við teljum að hér þurfi að staldra við og gera betur. Við munum beita okkur fyrir því að: raunverulegt samráð fari fram við íbúa áður en ákvörðun er tekin farið verði eftir aðalskipulagi - ekki framhjá því nýtt hverfi falli vel að þeirri íbúðabyggð sem fyrir er, hæð bygginga og nálægð húsa við götur sérstaklega umferðaröryggi verði sett í forgang, sérstaklega þar sem börn eru á ferð Í Hveragerði eigum við ekki að velja á milli uppbyggingar og ábyrgðar. Við eigum að gera hvoru tveggja. S-listinn stendur fyrir uppbyggingu sem byggir á traustum grunni:samráði, skýrri stefnu og ábyrgri þróun. Við byggjum með íbúum — ekki fram hjá þeim. Höfundur er byggingarverkfræðingur, er í 6. sæti S-listans í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar