Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Varð­veisla Guðmundarlundar

Guðmundarlundur í Vatnsendahlíð í vatnsendalandi er eitt vistlegasta útisvæði Kópavogs og algjör perla fyrir fjölskyldur og ungmenni. Lundinum er einstaklega vel við haldið af Skógræktarfélagi Kópavogs sem heldur nú úti flottu leiksvæði fyrir börn, mini-golf velli, frisbí-golf velli, útigrillum, salernisaðstöðu og hefur Skógræktarfélagið m.a. staðið fyrir Ævintýri í Jólaskógi við góðar undirtektir. Talið er að um 200.000 manns heimsæki Guðmundarlund árlega.

Skoðun
Fréttamynd

Börnin okkar – sam­eigin­leg á­byrgð

Við búum í samfélagi sem hefur lengi haft einn grundvallarþráð í sinni sjálfsmynd - að börnum skuli líða vel og að þau fái tækifæri til að blómstra. Það er hluti af okkar samfélagssáttmála og oft ástæða þess að þau sem búið hafa erlendis snúa aftur heim til að ala upp börnin sín. Við vitum að það sem gerist í æsku mótar líf fólks, ekki bara í dag heldur alla tíð.

Skoðun
Fréttamynd

Blómin í haganum og börnin í boxinu

Reykjavíkurborg gaf nýverið út drög að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Þar er rætt um mikilvægi þess að vernda vistkerfi, fylgjast með þróun tegunda og tryggja að lífríki borgarinnar fái að dafna.

Skoðun
Fréttamynd

Um á­kvörðun Kjartans og Mörtu

Það verður eftirsjá af Kjartani Magnússyni og Mörtu Guðjónsdóttur í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Þau hafa starfað lengi fyrir flokkinn og unnið ötullega að borgarmálum í þágu íbúa Reykjavíkur.

Skoðun
Fréttamynd

Bíla­stæði eða blóma­ker?

Svarið er bæði - en ekki með því að skipta einu út fyrir annað. Undanfarin misseri hefur orðið sífellt algengara að bílastæðum í miðborg Reykjavíkur sé breytt í blómaker. Blóm eru falleg og gróður bætir borgarumhverfið, það er enginn að draga það í efa. Vandinn skapast hins vegar þegar slíkar breytingar eru gerðar án samráðs við íbúa og notendur svæðisins - og án þess að raunhæfar lausnir komi í staðinn.

Skoðun
Fréttamynd

Betra starfs­um­hverfi á kostnað for­eldra?

Í gær birtist á Vísi grein undir yfirskriftinni „Opið bréf frá leikskólastjórum í Kópavogi“. Þar leggja stjórnendur leikskóla fram sína sýn á Kópavogsmódelið og breytingar á leikskólastarfinu í bænum.

Skoðun
Fréttamynd

Raun­hæf skref inn í sterkari fram­tíð

Sveitarfélagið Norðurþing stendur sterkt og mikil tækifæri til uppbyggingar. Á árinu 2024 var fjárfest fyrir um 500 milljónir og ríflega 700 milljónir árið 2025 í A-hluta. Það var mögulegt vegna aga í rekstri og innkomu síðastliðin ár. Engin ný lán hafa verið tekin á kjörtímabilinu fyrren nú þegar við verðum fyrir alvarlegu tekjufalli og fimmtíu milljónum minna í kassann á mánuði. Það er staðreynd sem við verðum að horfast í augu við af ábyrgð og festu. Slíkar aðstæður kalla á erfiðar ákvarðanir. Við megum þó aldrei gleyma því að á bak við hverja tölu eru störf fólks, fjölskyldur og þjónusta sem skiptir íbúa okkar miklu máli.

Skoðun
Fréttamynd

Opið bréf frá leikskólastjórnendum í Kópa­vogi

Kæri bæjarstjóri og bæjarstjórn í Kópavogi, takk fyrir að hlusta á ákall okkar leikskólastjórnenda og annarra hagsmunaaðila leikskóla og bregðast við þeim stórkostlega vanda sem blasti við starfsemi leikskóla í Kópavogi.

Skoðun
Fréttamynd

Kjós­endur eru ekki fífl

Kjósendur hafa sérstakt óþol fyrir því þegar stjórnmálaflokkar segja eitt en gera annað. Samfylkingin sagðist vera með plan. Hún sagðist ætla að berja niður vexti með sleggju. Það var stóra loforðið.

Skoðun
Fréttamynd

Opni leik­skólinn og röng for­gangs­röðun fjár­muna

Meirihluti Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að skera niður styrkveitingar til opna leikskólans Memmm Play. Starfsemin gegnir mikilvægu hlutverki í hverfum borgarinnar, þar sem foreldrar geta mætt gjaldfrjálst með börn sín sem enn hafa ekki hafið dagvistun.

Skoðun
Fréttamynd

Ein­hverfu­greining og hvað svo?

Rannsóknir benda til þess að algengi einhverfurófsraskana sé um 1–3% meðal barna, eða um það bil 1 af hverjum 30–50 börnum. Fylgiraskanir hjá börnum á einhverfurófi eru algengar og jafnvel frekar reglan en undantekningin.

Skoðun
Fréttamynd

Kveð bæjar­stjórn eftir gefandi ár

Á félagsfundi Sjálfstæðisfélags Hveragerðis var tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista D-listans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar lögð fyrir og samþykkt.

Skoðun
Fréttamynd

Ég á´etta – ég má´etta!

Viðbrögð Donalds Trump við þeirri ákvörðun spænskra stjórnvalda að neita Bandaríkjamönnum að nýta herstöðvar sínar á Spáni til árása á Íran eru allrar athygli verð. Forsetinn brást ævareiður við þessari ákvörðun bandalagsþjóðarinnar í Nató og vandaði ekki kveðjurnar frekar en fyrri daginn.

Skoðun
Fréttamynd

Fórnar­kostnaður kerfisins?

Afhverju búum við til kerfi? Samfélög þurfa oft að finna leiðir til þess að auðvelda samvinnu, styðja við hvort annað og tryggja velferð heildarinnar. Við höfum þurft að þróa kerfin okkar eftir því sem okkur fjölgar. Mörg kerfi hafa ýtt undir velsæld og aukið jöfnuð að einhverju leyti.

Skoðun
Fréttamynd

Sam­fé­lag sem ýtir undir nærandi tengsl

Við búum í samfélagi sem leggur ríka áherslu á sjálfsbjargarviðleitni og einstaklingsframtak. En þegar einmanaleiki er skilgreindur fyrst og fremst sem vandamál einstaklingsins missum við sjónar á stærri myndinni.

Skoðun
Fréttamynd

Enginn á að vera einn í Reykja­vík

Einmanaleiki er ein stærsta lýðheilsuáskorun samtímans. Hann snertir fólk á öllum aldri, börn, ungmenni, fullorðna og eldra fólk. Í ört vaxandi borg þar sem byggð þéttist og samfélagsform breytast verðum við að spyrja: hvernig tryggjum við að engin manneskja upplifi sig eina?

Skoðun
Fréttamynd

Hlut­verk sem ég tek með auð­mýkt og á­byrgð

Í gærkvöldi, á fjölmennasta aðalfundi Sjálfstæðisfélagsins Ægis í Ölfusi frá upphafi, var framboðslisti D-listans samþykktur og mér falin sú mikla ábyrgð að leiða listann í komandi kosningum. Það er heiður sem ég tek með auðmýkt og djúpu þakklæti.

Skoðun
Fréttamynd

Ég hlakka til

Eitt sem hefur vantað í Reykjavík eru virkilega góðar almenningssamgöngur, en á flestum stöðum sem ég hef heimsótt erlendis er lagður töluverður metnaður í þær.

Skoðun
Fréttamynd

Barba­brella hægrisins í leik­skóla­málum

Málefni leikskólans verða án nokkurs vafa eitt af stærstu málefnum komandi sveitarstjórnarkosninga. Leikskólastigið hefur staðið frammi fyrir miklum áskorunum sem snúast að miklu leyti um mönnunarmál.

Skoðun
Fréttamynd

Gini borgar ekki leiguna

Nú styttist í að frjálshyggjupostular stjórnmálanna dragi fram Gini-stuðulinn og slái um sig í kosningabaráttunni. Þeir segja að Ísland standi vel í alþjóðlegum samanburði á tekjuójöfnuði.

Skoðun
Fréttamynd

Kapp­hlaupið um sumarnámskeiðin

Á hverju vori endurtekur sama sagan sig hjá fjölmörgum fjölskyldum í Reykjavík. Foreldrar sitja klárir við tölvuna eða símann á skráningardegi í sumarnámskeið borgarinnar, oft á miðjum vinnudegi, í þeirri von um að ná plássi fyrir börnin sín.

Skoðun
Fréttamynd

Sann­leikur óskast!

Um daginn sagði ég já við ákveðinni beiðni. Alveg hugsunarlaust. Allir hinir samþykktu og ég vildi ekki vera svarti sauðurinn, svo jáið kom áður en ég blikkaði augunum. Eftirá, fór það að naga mig – því ég geri þetta aldrei.

Skoðun
Fréttamynd

Er gott að búa í Kópa­vogi?

Kópavogur er frábær bær, það veit ég sem hef búið þar alla mína ævi. Þar er góð aðstaða til hreyfingar og félagslífs og bærinn hefur alla möguleika til að vera fyrirmyndarsveitarfélag.

Skoðun
Fréttamynd

Kveikt í trú­verðug­leika Sam­fylkingarinnar – slökkvi­liðið er sem betur fer á leiðinni

Kjósendur eiga betra skilið en upphrópanir og rangfærslur. Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi hljóp aðeins á sig þegar hann hélt því fram í grein hér á Vísi sl. mánudag að uppbygging slökkvistöðvari í efri byggðum væri föst „í gíslingu“ Kópavogsbæjar en lét hjá líðast að nefna að stöðin er fjármögnuð og á áætlun og verður tilbúin 2030. Hvers konar gíslataka er það eiginlega – lélegasta gíslataka sögunnar?

Skoðun