Umhverfismál

Fréttamynd

Kerfis­villa leið­rétt og spýtu­kofinn fær að standa

Um­hverfis- og skipu­lags­svið Reykja­víkur­borgar hefur leitt deiluna um framtíð spýtu­kofans við Lyng­haga til farsælla lykta og hann fær að standa áfram með ósköp ein­faldri lausn á því sem virðist hafa verið til­búið kerfislægt vanda­mál og sann­kallaður stormur í vatns­glasi.

Innlent
Fréttamynd

Vilja fjölga hólmum í Reykja­víkur­tjörn og frið­lýsa fjöru við Skerja­fjörð og Ægi­síðu

Stefnt er að því að klára friðlýsingarferli í Skerjafirði, fjölga hólmum á Tjörninni til þess að styrkja fuglalíf, fjölga trjám í borgarlandinu, tryggja börnum í grunnskólum kennslu í náttúrunni og að lífríki borgarinnar verði áfram vaktað. Þetta, og meira, er það sem lagt er til í nýrri stefnu borgarinnar um líffræðilegan fjölbreytileika.

Innlent
Fréttamynd

Tölum meira um náttúru­vernd

Baðlón, hótel, smáhýsi í hrönnum. Það er ekkert lát á uppbyggingunni í ferðaþjónustu hér á landi og ég upplifi mig svolítið sem máttlausan áhorfanda að herlegheitunum og get lítið gert til að grípa inn í þessa hröðu atburðarás.

Skoðun
Fréttamynd

Hundrað ára Attenborough djúpt snortinn

Náttúrufræðingurinn og fjölmiðlamaðurinn David Attenborough fagnar hundrað ára afmæli í dag. Fáir hafa lagt jafnmikið á vogarskálar náttúruverndar í sögunni en hamingjuóskum hefur rignt inn til Attenborough og afmæli hans fagnað víða um heim.

Lífið
Fréttamynd

Fjölga stæðum fyrir deili­bíla og raf­hlaupa­hjól í Reykja­vík

Samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði í vikunni að fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól frá stöðvalausum rafhlaupahjólaleigum. Í dag eru níu safnstæði en lagt er til að þeim verði fjölgað í tuttugu til þrjátíu og þau verði annars vegar fyrir rafhlaupahjól og hins vegar fyrir deilibíla.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum bara að mót­mæla“

Reykjavíkurborg vill að kofi sem börn hafa byggt í sameiningu við Lynghaga í Reykjavík verði fjarlægður þar sem hann er ekki öryggisvottaður. Börnin eru ekki ánægð og segja nær alla í hverfinu hafa skrifað nafn sitt við undirskriftalista þar sem áætlunum borgarinnar er mótmælt.

Innlent
Fréttamynd

Umhverfisvænasti orku­gjafinn gleymdist

Metangas er einn umhverfisvænasti orkugjafi sem í boði er hér á landi enda er það framleitt úr matarleifum höfuðborgarbúa í Gas – og jarðgerðarstöð SORPU GAJU. Með því að nota metangas á þar til gerðar bifreiðar er umhverfisvænn innlendur orkugjafi nýttur í stað innflutts bensíns eða dísilolíu.

Skoðun
Fréttamynd

Við erum í sama liðinu

Náttúruverndarhreyfingin tileinkar daginn í dag, sumardaginn fyrsta, íslenskri náttúru. Af því tilefni fer fram græn ganga í höfuðborginni. Samkvæmt lýsingu skipuleggjenda viðburðarins á samfélagsmiðlum er hann hugsaður til þess að halda á lofti hagsmunum íslenskrar náttúru þar sem hún á undir högg að sækja.

Skoðun
Fréttamynd

Ég er ekki torfkofamatur

Sonur minn sem er 8 ára skreið upp í til mín einn morguninn fyrir stuttu. Snjórinn er að bráðna fyrir norðan, vorið er að lifna við og fuglasöngur barst til okkar inn um gluggann. „Heyrirðu hvað það er gott veður?“ sagði hann og brosti. „Þetta er besta tilfinningin mín.“

Skoðun
Fréttamynd

Eim­skip á­kært vegna sölu tveggja skipa

Héraðssaksóknari hefur ákært félögin Eimskipafélag Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf. vegna sölu á tveimur skipum sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara árið 2020. Skipaflutningafélagið var kært vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stöðu minnar vegna

Keyrum vélarnar í gang! hrópar ungi orkuráðherrann sem tengir ekki við náttúrumildi, en áformar náttúrubrot og náttúrutap af þeirri stærðargráðu sem aldrei hefur sést á Íslandi.

Skoðun
Fréttamynd

Bílar bíta grasið við bakka Vestur­bæjar­laugar

„Einu sinni notuðum við hesta sem átu gras. Nú eru bílarnir farnir að gera það,“ segir Vestur­bæingurinn Örn Úlfar Sævars­son sem um ára­bil hefur háð ein­hvers konar eins manns varnar­baráttu fyrir gras­balanum við Vestur­bæjar­laug sem miskunnar­lítið er notaður sem bílastæði.

Innlent
Fréttamynd

Álfta­nes – ný byggð á flóðasvæði

Garðabær hefur í tveimur áföngum frá 2019 kynnt skipulag á Álftanesi á svokölluðu Norðurnesi, gegnt Bessastöðum. Meginatriði þessa skipulags er annars vegar nýr golfvöllur og hins vegar ný íbúðabyggð með sérbýli.

Skoðun
Fréttamynd

Við getum ekki firrt okkur á­byrgð

Það er kominn tími til að við hættum að tala um ofneyslu eins og hún sé bara persónulegt smekksatriði. Þetta er pólitískt mál, umhverfismál, réttlætismál og í sívaxandi mæli líka siðferðismál.

Skoðun
Fréttamynd

Ógnir núna ekkert á við á­hættu fram­tíðar

Við lifum tíma aukinnar óvissu í alþjóðamálum. Birtingarmyndirnar eru ýmsar, svo sem vopnuð átök milli ríkja, tollastríð sem skekja efnahagslíf heimsins, aukin samfélagsskautun og bakslag í mannréttindamálum.

Skoðun
Fréttamynd

Sjö af hverjum tíu fýlum með plast í maganum

Nær sjö af hverjum tíu íslenskum fýlum eru með plast í meltingarveginum. Þetta kemur fram í niðurstöðum vöktunar Umhverfis- og orkustofnunar á magni plasts í meltingarvegi fýla árið 2025. Sjómenn söfnuðu fuglunum fyrir vöktunina. Allir höfðu þeir drukknað.

Innlent
Fréttamynd

Stórt skref í ein­földun leyfis­veitinga fyrir orkuverkefni: „Við erum rétt að byrja“

Alþingi hefur samþykkt víðtækar breytingar á regluverki í umhverfis- og orkumálum sem eiga að hraða leyfisveitingum, fækka afgreiðslustöðum og færa stærri hluta ferlisins inn á eitt borð hjá Umhverfis- og orkustofnun. Kjarni breytinganna er sá að umsækjendur eigi síður að fara milli margra stjórnvalda og að afgreiðsla orku- og umhverfismála verði samræmdari og skilvirkari.

Innlent
Fréttamynd

Ár­nesingur og Rang­æingur grafa fyrir Hvammsvirkjun

Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar.

Innlent