Skoðun

Stöndum með Seyðis­firði!

Hannes Pétursson skrifar

Hversu skýrt þurfa Seyðfirðingar að segja nei áður en á þá er hlustað? Matvælastofnun hefur gefið út leyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði, þvert á vilja 75% Seyðfirðinga sem eru andvígir áformunum. Seyðfirsku grasrótarsamtökin VÁ hafa haldið uppi hetjulegri baráttu gegn þessum áformum og boða nú til mótmæla gegn þeim á sunnudaginn 11. október klukkan 15:00 á Austurvelli.

Seyðisfjörður er þröngur fjörður og á að koma fyrir í honum sjókvíaeldi með allt að 10.000 tonnum af lífmassa. Það myndi jafngila í kringum 15% af núverandi framleiðslumagni sjókvíaeldis við Íslandsstrendur. Álagið yrði því gífurlegt fyrir langan og mjóan fjörð sem þjónustar þegar fjölbreytta skipaumferð og starfsemi af ýmsu tagi.

Fiskeldi í sjó stendur nú á krossgötum, en greinin hefur fengið að vaxa án raunverulegs aðhalds í meira en áratug. Á þeim tíma hefur greinin sprungið út og fengið að leggja undir sig hvern fjörðinn á fætur öðrum. Þessi vöxtur hefur verið að miklu leyti drifinn áfram af fjármagni norskra laxeldisfyrirtækja en þrír stærstu aðilar íslensks laxeldis eru að verulegu leyti í eigu stórra norskra aðila eða fjárfesta úr norskum laxeldisiðnaði.

Ábyrgð þessara fyrirtækja er ekki meiri en sú að á undanförnum áratug hafa tugir þúsunda norskra eldislaxa sloppið og þar með sett náttúrulega laxastofna Íslands í hættu.

Þar að auki er dýravelferð að engu höfð í sjókvíaeldi. Laxinn er þar sárkvalinn af lús sem étur í gegnum hold hans, oft inn að beini. Hann lifir í gífurlegum þrengslum og í menguðu vatni sem er honum ónáttúrulegt. Aföll eru því gífurleg ár hvert og voru nærri 5 milljónir laxa árið 2025. Engar lausnir eru til á þessum vandamálum í opnum sjókvíum og í staðinn er plástrað yfir vandann með gífurlegu magni af lyfjum til að reyna að hafa stjórn á lúsinni. Lyfin og önnur mengun í formi saurs og fóðurleifa leka svo beint út í firðina og setjast í þykkum lögum á botn þeirra.

Það er því ekki að furða að Seyðisfirðingar vilji ekki hafa slíkan iðnað hjá sér. Spurningin snýst því á endanum um sjálfsákvörðunarrétt byggða, að stórfyrirtæki geti ekki eignað sér náttúruna þvert á vilja íbúa. Að það sé ekki hægt að hertaka viðkvæma firði undir mengandi stórframleiðslu á eldislaxi.

Fjölmennum á mótmælin á sunnudaginn klukkan 15:00 og sýnum Seyðisfirði stuðning. Leyfum stórfyrirtækjum ekki að valta yfir íslenska náttúru!

Höfundur er stjórnarmaður í Sósíalískum umhverfissinnum.




Skoðun

Skoðun

23?

Björg Magnúsdóttir skrifar

Sjá meira


×