Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands

Fréttamynd

Yfir­menn Heimis teknir á teppið

Yfirmenn Heimis Hallgrímssonar hjá írska knattspyrnusambandinu voru kallaðir á fund þingnefndar írska þingsins í gær og látnir svara krefjandi spurningum um margt sem varðar leiki Írlands við Ísrael í Þjóðadeildinni.

Fótbolti
Fréttamynd

„Sá sem ég dáist mest að í heiminum“

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, hefur staðfest að lið hans muni spila seinni leik sinn í Þjóðadeildinni gegn Ísrael á sunnudaginn kemur. Hann segir „einbeitinguna við fótbolta“ í miðjum stormi mótmæla. Leikmaður írska liðsins sem rekur ættir til Ísraels hefur þá heillað Heimi síðustu daga.

Fótbolti
Fréttamynd

Heimir gaf frí

Eftir þunga og langa daga, auk 3-0 sigurs á Ísrael í Ungverjalandi gaf Heimir Hallgrímsson leikmönnum írska karlalandsliðsins verðskuldað frí í gær. Enn er írska liðið þó í auga stormsins, enda stutt í næstu viðureign við Ísrael sem verður engu minna milli tannana á fólki.

Fótbolti
Fréttamynd

UEFA rann­sakar ekki kynþáttaníð Ísraela

Kynþáttaníð ísraelskra stuðningsmanna í garð hörundsdökkra leikmanna írska landsliðsins í 3-0 sigri Írlands í leik liðanna í Þjóðadeildinni í Ungverjalandi í gær verður ekki til rannsóknar hjá UEFA sökum formgalla.

Fótbolti
Fréttamynd

Ringul­reið hjá Heimi og leikur við Ís­rael í upp­námi

Mikil óvissa er uppi varðandi leik Írlands við Ísrael í Þjóðadeild UEFA á morgun. Blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar var frestað, hans lið hefur enn ekki mætt til æfinga og það berast af því óstaðfest tíðindi að leikmenn séu hættir við að gefa kost á sér í leikinn.

Fótbolti
Fréttamynd

Erfið og leiðin­leg staða fyrir Heimi að vera í

Pólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni.

Sport
Fréttamynd

Öll spjót beinast að Írum og Heimi

Heimir Hallgrímsson dansar erfiðan línudans þessa dagana vegna komandi leikja Írlands við Ísrael í Þjóðadeildinni í fótbolta. Undirskrifalistar, mótmæli og harðorð viðtöl við fyrrum landsliðsmenn eru meðal þess sem blasir við í írskum fjölmiðlum.

Fótbolti
Fréttamynd

Allt teymi Heimis fram­lengir

Þjálfarateymi Heimis Hallgrímssonar með írska karlalandsliðið í fótbolta hefur allt framlengt samning sinn við írska knattspyrnusambandið. Þar á meðal er Guðmundur Hreiðarsson.

Fótbolti
Fréttamynd

Írar unnu góðan sigur

Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans hjá írska landsliðinu unnu Katar í vináttuleik 1-0. Leikurinn fór fram á Írlandi og eru Katarar að hita upp fyrir HM í fótbolta sem byrjar í sumar.

Fótbolti