Yfirmenn Heimis teknir á teppið Sindri Sverrisson skrifar 1. október 2026 08:33 David Courell, framkvæmdastjóri írska knattspyrnusambandsins, hvíslar til Heimis Hallgrímssonar á blaðamannafundi. Getty/Ben McShane Yfirmenn Heimis Hallgrímssonar hjá írska knattspyrnusambandinu voru kallaðir á fund þingnefndar írska þingsins í gær og látnir svara krefjandi spurningum um margt sem varðar leiki Írlands við Ísrael í Þjóðadeildinni.
Írland spilaði „útileik“ við Ísrael á sunnudaginn þar sem strákarnir hans Heimis fögnuðu 3-0 sigri, í Debrecen í Ungverjalandi. Liðin mætast svo aftur í Serbíu á sunnudaginn. Í aðdraganda leiksins á sunnudag og raunar allt frá því að Írland dróst í riðil með Ísrael hefur verið mikil pressa á írsku leikmennina og írska knattspyrnusambandið um að sniðganga leikina við Ísrael vegna hernaðaraðgerða Ísraelsmanna á Gasaströndinni. Allt fram á síðustu stundu íhuguðu leikmenn að hætta við að spila en eftir langan fund og kosningu var niðurstaðan sú að mæta Ísraelsmönnum. Markvörðurinn Gavin Bazunu ákvað hins vegar að draga sig úr hópnum en er aftur kominn inn fyrir leikinn við Austurríki í Dublin í kvöld. David Courell, framkvæmdastjóri írska knattspyrnusambandsins, og John Martin, yfirmaður fótboltamála, voru kallaðir á fund þingnefndar í gær og fengu þar krefjandi spurningar frá þingmönnum sem var heitt í hamsi. "You're a football woman. You know the game." FAI CEO David Courell responds to Sinn Fein TD Joanna Byrne after expressing a belief that the organisation has done lasting damage to Irish football by playing Israel. pic.twitter.com/IVlnkzD6lV— RTÉ Sport (@RTEsport) September 30, 2026 Þeir viðurkenndu þar að svo virtist sem enginn hefði rætt við Bazunu eða aðra markverði írska landsliðshópsins fyrir leikina við Ísrael. Heimir hafði áður sagt að hann hefði sjálfur aðeins rætt við útileikmenn um málið í aðdragandanum. John Martin sagði Bazunu hafa ákveðið að ferðast með til Ungverjalands en þar skipt um skoðun og ákveðið að taka ekki þátt í leiknum. Hann sagði ekki rétt að Bazunu hefði í kjölfarið ekki fengið að taka þátt í kosningu leikmanna. "I know people want us to be a vehicle for broader statement and change but the reality is we are tasked to do a particular role to protect the interest of Irish football." FAI CEO David Courell explains why the Republic of Ireland will play the second match with Israel. pic.twitter.com/vzncAJf8xq— RTÉ Sport (@RTEsport) September 30, 2026 „Eftir að ákvörðun var tekin um að halda atkvæðagreiðsluna sögðum við leikmönnunum að fara aftur inn á herbergin sín, tala við sína nánustu og koma svo aftur til að kjósa. Hann [Bazunu] ákvað að koma ekki aftur. Honum var ekki haldið utan við,“ sagði Martin. Þá þvertóku þeir Martin og Courell fyrir að Bazunu hefði verið útskúfað með nokkrum hætti og bentu á að hann hefði auk þess fengið stuðning sálfræðings. Þingmennirnir spurðu út í ýmislegt fleira og sökuðu írska knattspyrnusambandið um að taka þátt í íþróttahvítþvotti og þjóðarmorði en því höfnuðu yfirmenn Heimis algjörlega. Þeir útskýrðu hve mikill fórnarkostnaðurinn yrði við að sleppa því að spila leikina og bentu á að samkvæmt kosningu meðlima írska sambandsins hefði meirihluti stutt þá ákvörðun að spila leikina.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Fótbolti Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Sjá meira