

Landsréttur hefur þyngt fangelsisdóm Dagbjartar Guðrúnar Rúnarsdóttur, konu á fimmtugsaldri, í Bátavogsmálinu svokallaða. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi hana í tíu ára fangelsi, en Landsréttur dæmdi hana í sextán ára fangelsi.
Gríðarlega mörg sakamál voru til umfjöllunar hér á landi árið 2024. Sjö manndrápsmál komu upp á árinu, þar sem samanlagt átta létu lífið. Af þessum átta voru þrjú mál þar sem barn lést.
Tíu ára fangelsisdómur Héraðsdóms Reykjavíkur sem Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir hlaut í síðasta mánuði í Bátavogsmálinu svokallaða hefur verið birtur á vefsvæði dómstólana. Í honum segir að Dagbjört hafi frá því að málið kom upp leynt veigamiklum upplýsingum og reynt að koma í veg fyrir að hægt væri að varpa ljósi á málið.
Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir var dæmd í tíu ára fangelsi fyrir líkamsárás í Bátavogsmálinu svokallaða. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Maður sem bjó í þrjá mánuði með Dagbjörtu og manninum sem hún er grunuð um að hafa orðið að bana sagði í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að samskipti þeirra á milli hafi verið góð en að maðurinn hafi verið drykkfelldur ljúflingur.
Par sem var með Dagbjörtu Rúnarsdóttur og manninum sem hún er grunuð um að hafa orðið að bana sömu helgi og atvikið átti sér stað lýsti því fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag þegar hún stökk upp í rúm og sparkaði í höfuð mannsins þar sem hann lá stuttu áður en að maðurinn lést.
Út frá niðurstöðu krufningar í Bátavogsmálinu svokallaða lést brotaþoli vegna köfnunar sökum utanaðkomandi þrýstings á öndunarveg. Alvarlegir áverkar voru á hálsi en sem dæmi er hægt að nefna blæðingar í hálsvöðvanum, brot á tungubeini, hringbrjóskinu og öllum barkanum.
Geðlæknir sem tók að sér að meta Dagbjörtu Rúnarsdóttur árið 2021 og geðlæknir sem sá um að meta Dagbjörtu vegna Bátavogsmálsins svokallaða eru í stórum dráttum ósammála um ástand og geðrænt mat hennar. Dagbjört er grunuð um að hafa orðið sextugum karlmanni að bana í september á síðasta ári á heimili þeirra í Bátavogi.
Tveir menn komu á vettvang Bátavogsmálsins svokallaða áður en Dagbjört Rúnarsdóttir var handtekin en eftir að hinn látni hafði verið fluttur á brott með sjúkrabíl. Dagbjört er grunuð um að hafa orðið tæplega sextugum karlmanni að bana á heimili sínu í Bátavogi í september í fyrra,
Viðbragðsaðilar sem komu á vettvang Bátavogsmálsins svokallaða sögðu Dagbjörtu Rúnarsdóttur, sem er grunuð í málinu um að hafa orðið tæplega sextugum karlmanni að bana á heimili sínu í Bátavogi í september síðastliðinu, hafa slegið manninn eftir að viðbragðsaðilar komu á vettvang.
Rannsóknarlögreglumaður sem fór með rannsókna á Bátavogsmálinu svokallaða segist ekki hafa orðið var við að Dagbjört Rúnarsdóttir, sem er grunuð um að hafa orðið tæplega sextugum manni að bana í Bátavogi í september í fyrra, hafi sýnt iðrun eða samúð vegna andláts mannsins
„Hundurinn minn er dáinn. Ég hef ekkert að gera en að vera leiðinleg við þig [...] þangað til þú ákveður að bæta ráð þitt,“ heyrist Dagbjört Rúnarsdóttir, sem er grunuð um að hafa orðið tæplega sextugum karlmanni að bana í Bátavogi í september síðastliðinum, segja við manninn skömmu áður en hann lést.
Aðalmeðferð í máli Dagbjartar Rúnarsdóttur, sem er ákærð fyrir að hafa orðið manni að bana í Bátavogi í september síðasta árs, hófst í dag. Gert er ráð fyrir því að aðalmeðferðin taki þrjá daga og meðal gagna í málinu eru myndskeið þar sem sjá má og heyra Dagbjörtu valda brotaþola ítrekuðum líkamsmeiðingum.
Aðalmeðferð í máli Dagbjartar Rúnarsdóttur, sem er ákærð fyrir að hafa orðið manni að bana í Bátavogi í september í september, fer fram 26. til 28. júní. Dagbjört neitar sök í málinu en á meðal rannsóknargagna eru tveggja tíma mynd- og hljóðupptökur sem lögregla segir sýna hana pynta þann látna.
Dánarorsök mannsins sem lést í Bátavogi í september í fyrra liggur nú fyrir. Samkvæmt endanlegri niðurstöðu úr réttarkrufningu lést maðurinn af völdum köfnunar, og þá hafði innvortisblæðing spillandi áhrif á súrefnisnæringu til heilans sem var til þess fallið að stuðla enn frekar að köfnuninni.
Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir, sem er ákærð fyrir að bana tæplega sextugum karlmanni á heimili sínu í Bátavogi í Reykjavík í september í fyrra, neitar sök í málinu.
Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir er talin hafa banað tæplega sextugum karlmanni á heimili sínu í Bátavogi í Reykjavík með margþættu ofbeldi í september síðastliðnum. Ákæran hefur verið birt Dagbjörtu og fréttastofa hefur hana undir höndum.
Landsréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms þess efnis að Dagbjörtu Rúnarsdóttur, konu á fimmtugsaldri sem ákærð hefur verið fyrir manndráp í Bátavogi, verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Gæsluvarðhald yfir henni rennur nú út þann 11. janúar á næsta ári.
Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru á hendur Dagbjörtu Rúnarsdóttur, 42 ára gamalli konu, fyrir manndráp í Bátavogi í Reykjavík þann 23. september síðastliðinn.
Kona á fimmtugsaldri, sem grunuð er um að hafa orðið karlmanni að bana í íbúð í Bátavogi í Reykjavík, mun sæta gæsluvarðhaldi til 7. desember næstkomandi. Rannsókn lögreglu krefst þess að smáhundur sem fannst dauður í frysti á vettvangi verði krufinn.
Kona á 42. aldursári var í dag úrskurðuð í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur. Konan var handtekin 23. september síðastliðinn í tengslum við andlát karlmanns á sextugsaldri í Bátavogi sama dag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á að gæsluvarðhald yfir konu, sem handtekin var í tengslum við andlát karlmanns í Bátavogi í lok september, verði lengt um fjórar vikur. Gæsluvarðhaldskröfuna er nú verið að taka fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Krufning á 58 ára karlmanni sem fannst meðvitundarlaus í félagsíbúð við Bátavog í Reykjavík laugardagskvöldið 23. september bendir til þess að honum hafi verið ráðinn bani að sögn lögreglu. Kona á 42. aldursári var í dag úrskurðuð í tveggja vikna áframhaldandi gæsluvarðhald en hún var á vettvangi þegar lögreglu bar að garði.
Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir allt benda til þess að manni, sem lést eftir að hafa fundist meðvitundarlaus um þarsíðustu helgi, hafi verið ráðinn bani.
Kona um fertugt var í gær úrskurðuð í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur til 27. september á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.