Reykjavíkurskákmótið

Parham leiðir fyrir lokaumferðina
Íranski stórmeistarinn Parham Maghsoodloo er einn efstur fyrir lokaumferð Reykjavíkurskákmótsins. Parham vann auðveldan sigur í áttundu umferðinni og er í góðri stöðu með sjö vinninga.

Samfélagsmiðlastjörnur og skákgoðsagnir á Reykjavíkurskákmótinu
Reykjavíkurskákmótið 2024 hefst á föstudaginn í Hörpu. 414 keppendur frá 49 löndum eru skráðir til leiks, en þar af eru 93 íslenskir. Aldrei hafa fleiri keppendur verið skráðir, en loka þurfti fyrir skráningu vegna plássleysis í Hörpu, slík var aðsóknin. Gamla metið frá í fyrra var 401 keppandi. 28 keppendur eru stórmeistarar, átta þeirra íslenskir.

Hjörvar sigurvegari eftir æsispennandi viðureign
Hjörvar Steinn Grétarsson er sigurvegari skákmótsins Ísland gegn áhrifavöldunum, útsláttarhraðskákmóti sem fram fór í dag.

Bein útsending: Ísland gegn áhrifavöldunum
Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið, Reykjavik Open, klárast í dag og í tilefni af því verður blásið til lokaveislu í beinni útsendingu hér á Vísi og Stöð 2 Vísi. Útsláttarhraðskáksmót sem ber yfirskriftina Ísland gegn áhrifavöldunum hefst klukkan 15:30. Einnig er vakt neðst í fréttinni þar sem hægt er að fylgjast með gangi mála.

Stærsta Reykjavíkurskákmót sögunnar hefst í dag
Aldrei hafa fleiri tekið þátt í Reykjavíkurskákmótinu og nú en það verður sett eftir hádegi í dag. Forseti Skáksambands Íslands segir sprengingu hafa átt sér stað í skákáhuga í heiminum og Reykjavíkurskákmótið sé með þekktustu og sterkustu skákmótum heims.

Reykjavíkurskákmótið hafi sýnt að skákkonur þurfi að óttast öryggi sitt
Breska skákkonan Tallulah Roberts segir að karlmenn hafi ítrekað sýnt henni og fleiri skákkonum vanvirðingu á nýafstöðnu Reykjavíkurskákmóti. Þá hafi maður klipið hana um mittið þegar hún átti leið um keppnissvæðið og annar tekið hana hálstaki.

Aldrei jafn margir stórmeistarar tekið þátt í Reykjavíkurmóti
Kviku Reykjavíkurskákmótið, Evrópumeistaramót einstaklinga í skák, hefst á Hotel Natura í dag og stendur til 5. september. Tefldar verða 11 umferðir á 11 dögum.

Reykjavíkurskákmótinu aflýst vegna kórónuveirunnar
Stjórn Skáksambands Íslands hefur ákveðið að aflýsa Reykjavíkurskákmótsins sem fara átti fram í Hörpu um miðjan apríl hefur verið aflýst vegna kórónuveirunnar sem veldur sjúkdómnum COVID-19.

Óttast að skákmót séu smitpyttur
Fjölmenn skákmót á Íslandi í uppnámi vegna kórónuveiru.

Sterkasta Reykjavíkurskákmótið í 53 ár
Alls eru um 280 skákmenn skráðir til leiks frá um 45 löndum. Þar af eru 35 stórmeistarar og hafa þeir aldrei verið fleiri.

Undrabörn og ofurmeistarar á Reykjavíkurskákmótinu
Nokkrar af sterkustu skákkonum heims og undrabörn mæta á Reykjavíkurskákmótið. Þegar eru keppendur frá 46 löndum búnir að melda sig.

Friðrik mátaði umdeildan forseta FIDE
Reykjavíkurskákmótið var sett í dag. Umdeildur forseti FIDE til 20 ára heimsækir Ísland í fyrsta skipti og tapaði skák á móti Friðriki Ólafssyni.

Magnus Carlsen gestur á Reykjavíkurskákmótinu
Verður ekki meðal keppenda en fylgist með föður sínum.

Þrír ofurstórmeistarar á Reykjavíkurskákmótinu
Opna Reykjavíkurskákmótið verður óvenju sterkt að þessu sinni. Tveir Íslendingar geta landað lokaáfanga að stórmeistaratitli. Sterkar skákkonur fjölmenna frá öllum heimshornum auk skákæsku Íslands að venju. Mótið er tileinkað Friðriki Ólafssyni áttræðum.

Borgin styrkir Skáksamband Íslands
Reykjavíkurborg mun styrkja árleg Reykjavíkurskákmót til ársins 2017 og nemur heildarfjárhæð stuðningsins tæplega 11,5 milljónum króna.

25 stórmeistarar skráðir til leiks
Í tilefni skákdagsins undirrituðu SÍ og GAMMA samning þess efnis að GAMMA verði aðalstyrktaraðili Reykjavíkurskákmótsins næstu fjögur ár.

Minningarorð Kasparov um Bobby Fischer: „Mesta goðsögn skáksögunnar“
Garry Kasparov hefði viljað hitta Bobb Fischer og vinna með honum í þágu leiksins sem þeir báðir elskuðu.

Kasparov heimsækir leiði Fischers
Fimmtugasta Reykjavíkurskákmótið hefst í Hörpu í dag og stendur yfir til 12. mars. Í tilefni afmælisins verða ýmsar uppákomur.

Undrabarn varð yngsti stórmeistari heims
Kínverska skákundrið Wei Yi tryggði sér þriðja og síðasta áfanga að stórmeistaratitli eftir áttundu umferð N1 Reykjavíkurskákmótsins í Hörpu á mánudagskvöld. Wei Yi, sem er aðeins 13 ára gamall, er því yngsti stórmeistari heims í dag. Wei Yi varð jafnframt fjórði yngsti stórmeistari allra tíma, þegar næststigahæsti keppandi mótsins, stórmeistarinn Maxime Vachier-Lagrave frá Frakklandi, gaf skák sína eftir mikla baráttu við undrabarnið.

Frábær skáktilþrif í Hörpu
Frábær tilþrif sáust í 6. umferð N1 Reykjavíkurskákmótsins í Hörpu í gær. Mikil spenna er á toppnum og ljóst að lokaumferðirnar verða æsispennandi. Pavel Eljanov frá Úkraínu er einn efstur, en margir eiga möguleika á sigri á mótinu.

Friðrik stendur sig vel á Reykjavíkurskákmótinu
Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslendinga í skák, kom á óvart í þriðju umferð Reykjavíkurskákmótsins í Hörpu í gær, þegar hann gerði jafntefli við David Navara, ofurstórmeistara frá Tékklandi.

Þeir efnilegustu í heimi tefla
N1-Reykjavíkurskákmótið 2013 hófst í Hörpu síðdegis í gær og er haldið í 28. skipti. Mótið er hið fjölmennasta frá upphafi. Keppendur eru 228, þar af 150 erlendir gestir frá 38 þjóðum.

Reykjavíkurskákmótið hefst í dag
230 keppendur, þar af 170 erlendir frá 40 löndum muu keppa á Reykjavíkurskákmótinu sem sett verður í Hörpu síðdegis.

Reykjavíkurskákmótið í Hörpu
Skáksamband Íslands og Harpa hafa gert með sér samkomulag um að Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið verði haldið í Hörpunni næstu þrjú ár. Ríflega 20 stórmeistarar eru þegar skráðir til leiks á Reykjavíkurmótinu 2012, en þekktastur þeirra er tékkneski stórmeistarinn David Navara, en hann hefur 2.712 alþjóðleg skákstig. Þátttaka er öllum opin.