Hvalir

Fréttamynd

Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt

Hvalur 9, sem sigldi út á miðin á föstudagskvöld, hefur skotið tvo hvali og er nú á leið með þá í land. Þetta eru fyrstu hvalirnir sem veiddir eru á Íslandsmiðum síðan 2023.

Innlent
Fréttamynd

Mót­mæla hval­veiðum

Fimm samtök munu mótmæla hvalveiðum við Reykjavíkurhöfn í dag. Formaður Hvalavina segir von á einhverjum atriðum eða ræðum en vill ekki gefa upp um eðli þeirra.

Innlent
Fréttamynd

„Virðist vera ein­hvers­konar gamal­dags sjó­mennsku­hefndarað­gerð“

Lögmaður manns sem braust inn í hvalveiðibát í gær og siglt var á brott með frá Reykjavík og til Hvalfjarðar segir eitt lögbrot ekki réttlæta annað, ljóst sé að lífi hans hafi verið stefnt í hættu og segir hún atvikið sem og viðbrögð athugasemdakerfa birtingarmynd aukinnar hörku í umræðunni á Íslandi. Ekki er ljóst hvort hann eða Hvalur muni leita réttar síns á þessum tímapunkti.

Innlent
Fréttamynd

Hólm­steinn skriðinn úr tunnunni

Hvalveiðiskipið Hvalur 9 sigldi í dag úr höfn með mótmælanda um borð. Skipið er nú á leið inn Hvalfjörðinn og við fylgjumst með í beinni í spilaranum hér að neðan.

Innlent
Fréttamynd

Sigldu af stað með mótmælandann um borð

Hvalveiðiskipið Hvalur 9 hefur siglt úr höfn en Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu mastursins til að mótmæla hvalveiðum. Hann sagðist fyrr í dag ekki ætla niður sjálfviljugur en að hann væri með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum. 

Innlent
Fréttamynd

„Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“

Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu masturs á hvalveiðiskipi við Reykjavíkurhöfn til að mótmæla hvalveiðum. Hann veit ekki hversu lengi hann getur verið uppi. Hann er með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum. Hann segist ekki vita hvað annað hann getur gert til að mótmæla hvalveiðum.

Innlent
Fréttamynd

Hvalveiðiundirbúningur von­brigði en styðja ekki að­gerðir Watson

Fulltrúar Landhelgisgæslunnar munu fylgjast ferðum skipaáhafnar aðgerðasinnans Paul Watson, en skip á hans vegum er á leið til landsins í þeim tilgangi að stöðva hvalveiðar. Formaður Hvalavina styður ekki aðgerðir Watson en segir það mikil vonbrigði að atvinnuvegaráðherra hafi ekki bannað veiðarnar.

Innlent
Fréttamynd

Hvalbátarnir halda á veiðar undir helgina

Hvalveiðibátarnir Hvalur 8 og Hvalur 9 sigldu í dag út í Faxaflóa. Bátarnir eru báðir komnir aftur í höfn eftir að vélarnar voru keyrðar og gengið úr skugga um að allt væri í standi fyrir stórhvalaveiðarnar fram undan.

Innlent
Fréttamynd

Lýsa upp­götvuninni sem gríðar­stórum „hvalakirkjugarði“

Í suðaustanverðu Indlandshafi á um sjö kílómetra dýpi hafa vísindamenn uppgötvað eitthvað sem lýst er sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“. Þar hafa þegar verið taldar hátt í fimm hundruð hvalaleifar á svæði sem teygir sig yfir um tólf hundruð kílómetra. 

Erlent
Fréttamynd

Annar hvalrekinn á nokkrum dögum

Jónas Welding Jónasson, íbúi á Stokkseyri, segist hafa frétt af hvalreka við afleggjara að Skipum í morgun. Hann og afastelpurnar hans hafi þá ákveðið að rölta að hvalnum í hádeginu.

Innlent
Fréttamynd

Páskar: Ef þú mættir velja ein­hvern til að kross­festa

Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft.

Lífið
Fréttamynd

Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi aug­lýsinga

Neytendastofa hefur sektað Norðursiglingu ehf. um eina og hálfa milljón króna fyrir að auglýsa umhverfisvænar hvalaskoðanir með óskýrum hætti. Fullyrðingar um umhverfisáhrif fyrirtækisins þyrftu að vera sannreynanlegar. Norðursiglingum hefur verið bannað að nota fullyrðingar um umhverfisvænar, hljóðlausar og kolefnislausar hvalaskoðunarferðir.

Neytendur
Fréttamynd

Brutu stjórnsýslulög við út­gáfu hvalveiðileyfis

Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að málsmeðferð matvælaráðuneytisins á umsókn um leyfi til hvalveiða var ekki í samræmi við lög árið 2024. Þá var Bjarkey Olsen matvælaráðherra. Í áliti umboðsmanns segir að stjórnsýslulögum hafi ekki fylgt við meðferð matvælaráðuneytisins á umsókn um leyfi til hvalveiða.

Innlent
Fréttamynd

Farþegagjald ó­lög­mætt og höfnin skuldar tugi milljóna

Hvalaskoðunarfyrirtækið Gentle giants á Húsavík hefur haft betur í áralangri deilu við Hafnasjóð Norðurþings um lögmæti farþegagjalds sem hafnasjóðurinn innheimtir. Hafnasjóðurinn hefur verið dæmdur til að greiða fyrirtækinu rúmar 36 milljónir króna auk vaxta. Deilur um gjöldin ná allt aftur til ársins 2008.

Innlent