Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Sigurgeir Þorkelsson, Kolbeinn Tumi Daðason, Eiður Þór Árnason og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 31. júlí 2026 08:41 Aðgerðin í Sundahöfn hefur staðið yfir í allan dag. Vísir/Viktor Freyr Landhelgisgæslan fylgdi Bandero, skipi aðgerðarsinna Paul Watson-samtakanna, til Sundahafnar í nótt. Vísir fylgist með gangi mála í beinni útsendingu og í vakt hér að neðan. Skipstjóri Bandero var handtekinn seint í gærkvöld eftir að hafa ekki virt tilskipanir Landhelgisgæslunnar. Áhöfn hvalveiðiskipsins Hvals 9 hafði óskað eftir aðstoð Gæslunnar og taldi öryggi sínu ógnað. Forstjóri Landhelgisgæslunnar sagði að áhöfn Bandero hefði reynt að henda netadræsum í skrúfu hvalveiðiskipsins og þannig lagt skipverja í hættu. Síðdegis fór lögreglan að flytja skipverja úr Bandero um borð í lögreglubifreiðar og var búið að færa þrjá í land klukkan 17. Upphaflega voru 21 um borð samkvæmt Landhelgisgæslunni og dvaldi skipstjórinn sem handtekinn var í gær þar um borð í nótt. Símar og myndavélar voru tekin af áhöfn í gær en Paul Watson, leiðtogi samtakanna sem gera út Bandero, hefur sagt að hann hafi ekki náð sambandi við meðlimi hennar. Beina útsendingu má sjá í spilaranum hér að neðan. Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir að þetta hafi verið gert til að draga úr hættunni á því að skipverjar gætu sett sig í samband við einhvern í landi og spillt rannsókn málsins. Óljóst er hve lengi skipverjar verða um borð. Landhelgisgæslan segir að áhöfn hafi veitt mótspyrnu í gær og ekki hægt á skipinu. Því hafi fulltrúar Gæslunnar og sérsveitar ríkislögreglustjóra þurft að fara um borð á meðan skipið var á fullri ferð. Þrátt fyrir þetta hafi aðgerðin gengið vel og skipverjar ekki sýnt mótstöðu eftir að þau voru komin um borð. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer með rannsókn málsins. Fylgst er með gangi mála í vaktinni að neðan. Þið gætuð þurft að endurhlaða síðunni ef vaktin birtist ekki strax.
Skipstjóri Bandero var handtekinn seint í gærkvöld eftir að hafa ekki virt tilskipanir Landhelgisgæslunnar. Áhöfn hvalveiðiskipsins Hvals 9 hafði óskað eftir aðstoð Gæslunnar og taldi öryggi sínu ógnað. Forstjóri Landhelgisgæslunnar sagði að áhöfn Bandero hefði reynt að henda netadræsum í skrúfu hvalveiðiskipsins og þannig lagt skipverja í hættu. Síðdegis fór lögreglan að flytja skipverja úr Bandero um borð í lögreglubifreiðar og var búið að færa þrjá í land klukkan 17. Upphaflega voru 21 um borð samkvæmt Landhelgisgæslunni og dvaldi skipstjórinn sem handtekinn var í gær þar um borð í nótt. Símar og myndavélar voru tekin af áhöfn í gær en Paul Watson, leiðtogi samtakanna sem gera út Bandero, hefur sagt að hann hafi ekki náð sambandi við meðlimi hennar. Beina útsendingu má sjá í spilaranum hér að neðan. Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir að þetta hafi verið gert til að draga úr hættunni á því að skipverjar gætu sett sig í samband við einhvern í landi og spillt rannsókn málsins. Óljóst er hve lengi skipverjar verða um borð. Landhelgisgæslan segir að áhöfn hafi veitt mótspyrnu í gær og ekki hægt á skipinu. Því hafi fulltrúar Gæslunnar og sérsveitar ríkislögreglustjóra þurft að fara um borð á meðan skipið var á fullri ferð. Þrátt fyrir þetta hafi aðgerðin gengið vel og skipverjar ekki sýnt mótstöðu eftir að þau voru komin um borð. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer með rannsókn málsins. Fylgst er með gangi mála í vaktinni að neðan. Þið gætuð þurft að endurhlaða síðunni ef vaktin birtist ekki strax.
Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalveiðar Landhelgisgæslan Hvalir Lögreglumál Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira