Spænski boltinn
239 240 241 242 243 244 245 246 247 … 268 ›
Keppinautarnir ánægðir með tap Barcelona Forráðamenn Real Madrid og Sevilla, helstu keppinauta Barcelona í baráttunni um spænska meistaratitilinn í fótbolta, hafa lýst yfir ánægju sinni með tap liðsins fyrir Villareal í gær. Frank Rijkaard, stjóri Barca, var mjög óánægður með frammistöðu leikmanna sinna fyrir framan markið í gær. Fótbolti 23.4.2007 15:29
Barcelona tapar og spennan eykst á Spáni Spennan eykst með hverjum leik í spænsku úrvalsdeildinni og harnaði toppbaráttan enn frekar í kvöld þegar Barcelona tapaði fyrir Villeral, 2-0. Á sama tíma vann Sevilla öruggan sigur á Atletico Bilbao, 4-1, og munar nú aðeins einu stigi á liðunum. Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu 15 mínúturnar fyrir Barcelona. Fótbolti 22.4.2007 20:55
Beckham lagði upp sigurmarkið fyrir Ramos Real Madrid vann góðan sigur á Valencia á heimavelli sínum í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Úrslitin urðu 2-1, Real í vil, en það var varnarmaðurinn Sergio Ramos sem skoraði sigurmarkið á 73. mínútu eftir frábæra sendingu David Beckham úr aukaspyrnu. Með sigrinum kemst Real upp í 2. sæti deildarinnar. Fótbolti 21.4.2007 21:53
Celtic á eftir Eiði Smára? El Mundo Deportivo, útbreiddasta blað Katalóníu-héraðs á Spáni, segir að skoska stórveldið Celtic sé á höttunum á eftir Eiði Smára Guðjohnsen, fyrirliða íslenska landsliðsins og leikmanni Barcelona. Fréttin virðist þó eingöngu byggð á getgátum blaðamanns því ekkert er haft eftir forráðamönnum Celtic. Enn fremur segir að Man. Utd hafi enn áhuga á Eiði Smára. Fótbolti 21.4.2007 16:46
Leikur Abidal með Eiði hjá Barca? Evrópu- og Spánarmeistarar Barcelona eru sagðir hafa áhuga á að klófesta franska varnarmanninn Eric Abidal, leikmann Lyon. Fram kemur í spænska blaðinu Marca að viðræður við Lyon séu hafnar Fótbolti 20.4.2007 12:29
Sannfærandi sigur Sevilla á Deportivo Sevilla er komið með annan fótinn í úrslitaleik spænska konungsbikarsins eftir sannfærandi 3-0 útisigur á slöku liði Deportivo í fyrri undanúrslitaleik liðanna í kvöld. Freddie Kanoute, Jesús Navas og Luis Fabiano skoruðu mörk gestanna. Síðari leikur liðanna fer fram 9. maí á heimavelli Sevilla og hagstæð úrslit þar skila Andalúsíuliðinu í úrslitin þar sem það mætir Barcelona eða Getafe. Fótbolti 19.4.2007 20:53
Deportivo - Sevilla í beinni Fyrri leikur Deportivo og Sevilla í undanúrslitum spænska konungsbikarsins er nú í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn, en hann hófst klukkan 19. Sevilla er komið í mjög góða stöðu og hefur yfir 2-0 eftir 20 mínútna leik. Barcelona vann Getafe 5-2 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum í gærkvöld í vægast sagt eftirminnilegum leik. Fótbolti 19.4.2007 19:31
Beckham verður klár gegn Valencia David Beckham hefur nú að mestu náð sér af meiðslum sem hafa hrjáð hann undanfarinn mánuð og verður hann væntanlega í leikmannahópi Real Madrid sem mætir Valencia í stórleik helgarinnar í spænska boltanum. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 19:50 á laugardagskvöldið. Fótbolti 19.4.2007 16:30
Eiður Smári elskar lífið í Barcelona Frank Lampard greindi í dag frá samtölum sem hann hafi átt við fyrrum félaga sinn hjá Chelsea, Eið Smára Guðjohnsen, þar sem Eiður hafi dásamað veru sína í Katalóníu. Lampard viðurkennir að það sé freistandi kostur fyrir knattspyrnumann að spila á Spáni. Fótbolti 19.4.2007 16:01
Messi eða Maradona? (myndband) Fátt komst annað að í spænskum fjölmiðlum í dag en draumamarkið sem Leo Messi skoraði fyrir Barcelona á móti Getafe í gærkvöldi. Spænska blaðið Marca sló upp fyrirsögninni "Messidona" og líkti drengnum við landa sinn Maradona. Hér fyrir neðan er hægt að bera saman bestu mörk þeirra Messi og Maradona og þar sést hvað þau eru glettilega keimlík. Fótbolti 19.4.2007 13:56
Eiður Smári skoraði í stórsigri Barcelona Barcelona er í ágætum málum eftir fyrri leik sinn gegn Getafe í undanúrslitum spænska Konungsbikarsins. Barcelona vann 5-2 og var Eiður Smári Guðjohnsen í byrjunarliði Barcelona í kvöld. Það var hinsvegar Argentínumaðurinn Leo Messi hjá Barcelona sem stal senunni að þessu sinni, en hann skoraði tvö mörk og lagði eitt upp. Mikið má vera ef síðara mark kappans verður ekki mark ársins í Evrópu þegar upp er staðið. Fótbolti 18.4.2007 21:04
Draumamark Leo Messi tilþrif ársins? (myndband) Argentínumaðurinn Leo Messi hjá Barcelona fór hamförum í leik liðsins gegn Getafe í spænska Konungsbikarnum í kvöld. Hann skoraði tvö mörk og lagði upp eitt, en annað markið hans er trúlega mark ársins. Tilþrif hans minntu óneitanlega á tilþrif landa hans Diego Maradona gegn Englendingum á HM 1986, en það er almennt talið fallegasta mark allra tíma. Hinn 19 ára gamli Messi hefur oft verið nefndur hinn nýi Maradona og á þessum tilþrifum má glöggt sjá af hverju. Fótbolti 18.4.2007 20:36
Sýning hjá Messi á Nou Camp Argentínumaðurinn ungi Leo Messi hjá Barcelona hefur farið hamförum í fyrri hálfleik gegn Getafe í spænska konungsbikarnum. Staðan er 3-0 í hálfleik í fyrri leik liðanna og er Messi búinn að skora tvö þeirra. Bæði mörkin voru stórglæsileg, en það fyrra minnti óneitanlega á markið sem landi hans Maradona skoraði fyrir Argentínu gegn Englendingum á HM í Mexíkó árið 1986. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Fótbolti 18.4.2007 19:51
Barcelona komið í 2-0 - Eiður byrjar Barcelona er komið í 2-0 gegn Getafe í fyrri leik liðanna í spænska konungsbikarnum en leikurinn er sýndur beint á Sýn. Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliðinu. Xavi kom Barcelona yfir eftir 18 mínútur og Messi kom liðinu í 2-0 með stórkostlegu marki á 28. mínútu. Fótbolti 18.4.2007 19:34
Real neitar að hafa rætt við Benitez Forráðamenn Real Madrid vísa því á bug í dag að hafa boðið Rafa Benitez hjá Liverpool að taka við liðinu í sumar. Benitez greindi frá því í gær að hann hefði neitað risatilboði frá stórliðinu í heimaborg sinni. Fótbolti 18.4.2007 17:15
Myndir af nýjasta húðflúri David Beckham Knattspyrnumaðurinn David Beckham hefur verið iðinn við að láta húðflúra sig undanfarin ár. Hann bætti við stóru listaverki á hægri handlegg sinn þegar hann var í Manchester á dögunum og afraksturinn má sjá í hlekk í þessari frétt. Fótbolti 18.4.2007 15:59
Barcelona - Getafe í beinni í kvöld Það verður nóg um að vera í fótboltanum í Evrópu í kvöld. Barcelona tekur á móti Getafe í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Konungsbikarsins á Spáni og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 18:25. Þrír leikir eru á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni og ber þar hæst Lundúnaslagur West Ham og Chelsea. Liverpool fær Middlesbrough í heimsókn og Blackburn tekur á móti Watford. Þá getur Inter tryggt sér meistaratitilinn á Ítalíu með sigri á Roma í stórleik kvöldsins þar í landi. Enski boltinn 18.4.2007 14:10
Dómara bárust morðhótanir Spænski dómarinn Javier Turienzo Alvarez sem dæmdi tvær umdeildar vítaspyrnur á Real Madrid í 2-1 tapi liðsins gegn Racing Santander um helgina hefur upplýst að sér hafi borist yfir 50 morðhótanir í kjölfarið. Dómarinn vísaði tveimur leikmönnum Real af velli í þessum sama leik, sem kann að hafa kostað stórveldið möguleika á titlinum. Fótbolti 17.4.2007 14:59
Metzelder segist vera á leið til Real Madrid Þýski landsliðsmaðurinn Christoph Metzelder hjá Borussia Dortmund segist vera kominn langt með að semja við spænska félagið Real Madrid og á von á því að ganga í raðir þess í sumar. Dortmund sleit samningaviðræðum við hann snemma í síðasta mánuði og er leikmaðurinn að eigin sögn þegar farinn að læra spænskuna. Metzelder er 26 ára og átti gott heimsmeistaramót með Þjóðverjum í sumar. Fótbolti 16.4.2007 18:40
Raul vill ekki fara frá Real Madrid Gulldrengurinn Raul hjá Real Madrid segist alls ekki vilja fara frá Real Madrid og ætlar að efna þau þrjú ár sem hann á eftir af samningi sínum. Nokkuð hefur verið ritað um Raul í spænskum miðlum undanfarið og því jafnvel haldið fram að hann væri á förum. Fótbolti 16.4.2007 18:06
Schuster vonast eftir kraftaverki gegn Barcelona Barcelona og Getafe spila fyrri leik sinn í udanúrslitum spænska konungsbikarsins á miðvikudagskvöldið og verður leikurinn sýndur beint á Sýn klukkan 18:25. Bernd Schuster, þjálfari smáliðs Getafe, segist vonast eftir kraftaverki á Nou Camp. Fótbolti 16.4.2007 15:26
Spánn: Valencia gerði Barcelona greiða Valencia lagði Sevilla 2-0 í kvöldleiknum í spænska boltanum með tveimur mörkum frá spænska landsliðsmanninum David Villa. Sigur Valencia þýðir að Barcelona er enn með fjögurra stiga forskot á toppnum. Valencia skaust með sigrinum í fjórða sæti deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir Sevilla. Fótbolti 15.4.2007 23:05
Heilladísirnar á bandi Barcelona Barcelona náði í kvöld fjögurra stiga forskoti á toppi spænsku deildarinnar í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Mallorca á heimavelli. Markið var sjálfsmark á síðustu mínútu leiksins eftir að skot varamannsins Javier Saviola hrökk af stönginni í varnarmann og í netið. Eiður Smári Guðjohnsen sat allan tímann á bekknum hjá Barcelona. Sevilla getur minnkað forskot Barca niður í eitt stig með sigri á Valencia í stórleik kvöldsins sem er sýndur beint á Sýn. Fótbolti 15.4.2007 19:18
Súrt tap hjá Real Madrid Real Madrid missti af tækifæri til að komast á topp spænsku deildarinnar í knattspyrnu í kvöld þegar liðið lá 2-1 á útivelli fyrir Racing Santander. Real hafði ekki tapað í 9 leikjum í röð, en eftir að Raul kom Madrid yfir í upphafi leiks, skoraði varnarmaðurinn Ezequiel Garay tvö mörk úr vítaspyrnum í síðari hálfleiknum. Fótbolti 14.4.2007 20:39
Bernd Schuster tekur við Real Madrid Þýski knattspyrnuþjálfarinn Bernd Schuster hefur skrifað undir samning við spænska stórveldið Real Madrid og mun taka við þjálfun þess þann 1. júlí. Þetta fullyrða þýskir fjölmiðlar í dag og segja fulltrúa Schusters hafa staðfest tíðindin. Schuster er þjálfari Getafe í dag en fyrir hjá Real Madrid er ítalski þjálfarinn Fabio Capello. Fótbolti 12.4.2007 16:53
Real tilbúið að borga 7 milljarða fyrir Ronaldo Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag að forráðamenn Real Madrid á Spáni hafi átt fund með forráðamönnum Manchester United þar sem þeir hafi boðist til að gera enska félaginu kauptilboð í Cristiano Ronaldo upp á ríflega 7 milljarða íslenskra króna. Ef af þessum viðskiptum verður, er ljóst að Ronaldo yrði dýrasti knattspyrnumaður sögunnar. Fótbolti 12.4.2007 14:46
Eiður Smári kannast ekki við áhuga Man Utd Eiður Smári Guðjohnsen segist ekki kannast við meintan áhuga Manchester United um að fá hann í sínar raðir og segist reikna með að verða áfram hjá Spánarmeisturum Barcelona. Þetta segir hann í einkaviðtali við Sky sjónvarpsstöðina í dag. Fótbolti 12.4.2007 14:15
Stoichkov var ekki atvinnulaus lengi Búlgarska knattspyrnugoðið Hristo Stoichkov var ekki lengi atvinnulaus, en hann verður tilkynntur sem næsti knattspyrnustjóri spænska liðsins Celta Vigo í dag. Þessi tíðindi koma innan við sólarhring eftir að honum var sagt upp sem landsliðsþjálfara Búlgaríu. Celta Vigo er komið í fallbaráttu í spænsku deildinni eftir lélegt gengi undanfarið. Fótbolti 11.4.2007 04:22
Eiður Smári er ekki á leið til Manchester United Arnór Guðjohnsen, umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen, segir í samtali við Sky sjónvarpsstöðina í dag að ekkert sé til í skrifum spænsku blaðanna sem orðuðu hann við Manchester United í dag. Fótbolti 10.4.2007 14:16
Bjartsýni ríkir í herbúðum Real Madrid Leikmenn og forráðamenn Real Madrid segja að sjálfstraustið í herbúðum liðsins sé afar gott um þessar mundir og að menn hafi fulla trú á því að liðið geti komið í veg fyrir að Barcelona vinni spænska meistaratitilinn þriðja árið í röð. Sóknarmaðurinn Robinho og Ramon Calderon, forseti félagsins, eru mjög bjartsýnir. Fótbolti 9.4.2007 12:14