
Íþróttir barna

„Allt of fá íþróttafélög eru að bjóða upp á þjálfun fyrir fötluð börn“
Allt of fá börn með fötlun stunda íþróttir hér á landi. Börn sem þrá að tilheyra fá einfaldlega ekki þau tækifæri.

Gætum allt eins gefið einkunn fyrir fituprósentu
Aron Gauti Laxdal, dósent í íþróttafræði við háskólann í Agder í Noregi, hefur áhyggjur af stöðu íþróttakennslu á Íslandi. Hann segir námið ekki kenna börnum hvernig best sé að hugsa um heilsuna og njóta þess að hreyfa sig.

Meirihlutinn ætlar að mismuna börnum í Kópavogi
Meirihluti Sjálfstæðis og Framsóknarflokks í bæjarstjórn Kópavogs áformar að auka álögur á fjölda barnafjölskyldna í bænum með þannig hætti að kostnaður foreldra við þátttöku barna þeirra í íþróttum geti hækkað um tugi prósenta í sumum tilvikum um rúm 40%.

Er sérstök hæfileikamótun í barna- og unglingaíþróttum góð hugmynd?
Hæfileikamótun (e. talent development) er nýja tískuorðið í íþróttunum. Hugtakið vísar til íþróttaþjálfunar sem leitast við að reyna að hámarka hugsanlegan árangur einstaklinga í íþróttum með sértækri og markvissri þjálfun og umönnun. Hæfileikamótun er mjúkt og aðlaðandi hugtak sem virðist í fyrstu benda til rökréttrar leiðar til að hjálpa ungum iðkendum íþrótta að bæta eigin frammistöðu og ná árangri.

Taka fram að hægt sé að nota eldri treyjur í ljósi Facebook-umræðu
Stjarnan hefur sent frá sér tilkynningu vegna nýrra keppnisbúninga hjá knattspyrnudeild félagsins. Þar er tekið fram að þeir sem hafi nýlega keypt gamla búninga muni mega að nota þá áfram þegar þeir nýju komi í febrúar á þessu ári.

„Ég er stundum hissa á því hvernig ég komst í gegnum þetta“
„Ég fæ enn kvíðaköst, martraðir eða slæmar minningar út af þessum þjálfara. Hún var ekki bara ströng heldur var hún mjög ofbeldisfull og notaði alls ekki réttar aðferðir,“ segir Elísabet Sævarsdóttir.

Afi dæmdi fótboltaleik 3. flokks kvenna þegar enginn dómari mætti
Afi leikmanns UMF Selfoss stökk inn í hlutverk dómara þegar enginn dómari mætti á leik 3. flokks kvenna í knattspyrnu á Faxaflóamótinu í dag. Foreldri segir atvikið ekki einsdæmi hjá liðinu. Forsvarsmaður Breiðabliks harmar atvikið.

Loksins getur öll fjölskyldan notið Skopp saman
Nýtt trampólínsvæði opnaði nýlega fyrir yngstu börnin í Skopp í Kópavogi þar sem öll fjölskyldan getur nú skoppað saman.

Hætti að mæta í skólann eftir örlagaríkt rautt spjald
Áslaugu Mundu Gunnlaugsdóttur leið ömurlega eftir að hafa fengið rautt spjald í leik Íslands og Portúgals í umspili um sæti á HM. Hún hætti að mæta í skólann og kenndi sjálfri sér um hvernig fór. Hún segir athyglina sem fylgir því að spila með landsliði geta tekið á.

Stórefnilegur 10 ára pílukastari í Grímsnesi
Tíu ára strákur í Grímsnes-og Grafningshreppi hefur vakið mikla athygli fyrir snilli sína í pílukasti en hann hefur verið að keppa á sterkum mótum með fullorðnum og unnið andstæðinga sína með glæsibrag.

Leggur til sektir fyrir slæma hegðun foreldra
Jón Gunnlaugur Viggósson, fyrrverandi handknattleiksmaður og yfirþjálfari hæfileikamótunar Handknattleikssambands Íslands, leggur til að íþróttafélög verði sektuð fyrir slæma hegðun foreldra á íþróttaleikjum barna sinna.

Íþróttir barna ræddar í Pallborðinu
Æstir foreldrar á hliðarlínunni, meiðsli barna, ofþjálfun og andleg heilsa barna í íþróttum eru á meðal þess sem rætt verður um í Pallborðinu í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14.

„Ég var ekkert á svakalega góðum stað andlega á þessum tíma“
Atvinnumaðurinn Óttar Magnús Karlsson þurfti þegar hann var nítján ára að spila með Molde í Noregi að fara heim til Íslands til að leita sér aðstoðar vegna þunglyndis. Hann segir margt geta komið upp á þegar ungt fólk er að reyna að fóta sig í íþróttaheiminum í útlöndum.

Börn ekki tilbúin til að spila með meistaraflokkum
Engar reglur gilda hjá ÍSÍ um hvenær börn mega spila með meistaraflokkum íþróttafélaga en allt niður í ellefu ára börn hafa spilað með meistaraflokkum. Íþróttafræðingur segir þetta varhugavert

„Við ætlum að horfa á börnin taka stærðfræðipróf“
Gunnar Helgason rithöfundur áttaði sig á því eftir að hafa fylgt sonum sínum á nokkur fótboltamót að hann væri ekki eins hvetjandi og hann hélt. Þá segir hann fáum detta í hug að sýna sömu hegðun og þeir sýna gagnvart börnum á íþróttamótum annars staðar.

„Við það að deyja því að maður ætlaði að halda sér í formi“
Stúlka sem var í níu mánuði í meðferð á spítala vegna átröskunar segir sorglegt að hugsa til þess að hún hafi verið í lífshættu af því hún var að reyna að halda sér í formi fyrir fótboltann. Átröskunartilfellum hjá börnum fjölgaði í kórónuveirufaraldrinum.

Vill breyta lyfjalögum svo börn geti ekki keypt lyf
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra vill sjá breytingar á lyfjalögum þannig að börn geti ekki lengur keypt lyf.

Sektuð um 3,5 milljón vegna rafrænnar vöktunar á gistiaðstöðu stúlkna
Persónuvernd hefur ákveðið að sekta Íþrótta- og sýningarhöllina hf. um 3,5 milljónir króna vegna eftirlitsmyndavéla í Laugardalshöll. Segir í úrskurði að brotið hafi verið á persónuvernd barna og að unnið hafi verið með viðkvæmar persónuupplýsingar án viðeigandi heimildar.

Fékk höfuðhögg fyrir sex árum: „Enn þá dagar þar sem að ég á erfitt með að fara upp úr rúminu“
Rúmum sex árum eftir að hafa fengið höfuðhögg á fótboltaæfingu glímir Valgerður Laufey Guðmundsdóttir enn við afleiðingarnar. Reglulega koma dagar þar sem hún á erfitt með að fara upp úr rúminu vegna höfuðverkja.

„Við getum ekki neitað börnum um að kaupa lyf“
Formaður Lyfjafræðingafélagsins kallar eftir því að reglur um lyfjakaup verði skýrðar þar sem lyfjafræðingar geti í raun ekki neitað börnum um að kaupa lyf eins og reglurnar eru núna.

Vill breyta reglum þegar kemur að lyfjakaupum
Forstjóri Lyfjastofnunar vill að sett verði aldurstakmörk þegar kemur að lyfjakaupum en í dag mega börn kaupa lyf í apótekum.

Tilkynningar til barnaverndar út af álagi í íþróttum
Barnavernd hafa borist tilkynningar í tengslum við íþróttaiðkun barna. Flestar snúast um að verið sé að leggja of mikið álag á börnin.

„Ég brýt á mér átta fingur af tíu“
Kona sem tók verkjalyf daglega þegar hún var barn til að geta stundað fimleika fékk magasár af verkjalyfjanotkun. Ekkert kemur í veg fyrir að börn geti sjálf keypt sér verkjalyf í apótekum.

Tryggja skotíþróttum æfingasvæði á Álfsnesi út 2028
Skotíþróttum verður tryggt æfingasvæði á Álfsnesi út árið 2028. Starfshópur á vegum Reykjavíkur, Ölfus og Voga á að finna íþróttinni framtíðarstaðsetningu. Sautján staðsetningar eru til skoðunar, ekki eru allar innan Reykjavíkur.

„Örugglega í hverri viku sem að við sjáum íþróttaslys“
Tannlæknar sjá slys í hverri viku á tönnum barna út frá íþróttaiðkun. Stundum getur skaðinn orðið varanlegur og haft töluverðan kostnað í för með sér.

„Það þurfti að halda á mér út af vellinum“
Um sjötíu krossbandaaðgerðir voru gerðar á börnum og ungmennum hér á landi á síðasta ári. Bæklunarlæknir segir óhugnanlegt hversu algengt það sé að börn slasist við íþróttaiðkun.

Börnin skömmuð á leiðinni heim eftir mótin
Sum börn kvíða fyrir bílferðunum heim eftir fótboltaleiki þar sem foreldrar þeirra nota ferðirnar til að yfirheyra þau eða skamma. Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, segir þetta hafa komið fram á ungmennaþingi sambandsins en foreldrar þurfi að láta af slæmri hegðun á fótboltamótum.

Börn leita til umboðsmanns barna vegna hegðunar foreldra
Umboðsmanni barna hafa borist fyrirspurnir frá börnum sem eru ósátt við hegðun foreldra sinna á íþróttamótum. Börnin upplifa oft mikla pressu frá foreldrum og vanlíðan.

Himinn og haf á milli hegðunar íslenskra foreldra og sænskra
Íslenskur þjálfari segir tvennt ólíkt að fylgjast með foreldrahegðun á fótboltamótum á Íslandi og í Svíþjóð. Sænsku foreldrarnir hegði sér töluvert betur á hliðarlínunni en þar í landi séu upplýsingaskilti við hvern einasta völl þar sem minnt er á hvað sé æskileg hegðun þegar börn keppa.

Veist að ungum dómurum: Þrettán ára dómari sagður til skammar fyrir félagið
Þrettán ára strákur var sagður vera íþróttafélagi sínu til skammar þegar hann dæmdi leik sex ára barna á fótboltamóti. Þá eru dæmi foreldrar hafi veist að ungmennum sem hafa verið að dæma fótboltaleiki barna.