Íslenski körfuboltinn

Sigurður: Frábært hugarfar hjá strákunum
Sigurður Ingimundarson landsliðsþjálfari var að vonum himinlifandi eftir góðan sigur Íslands á Dönum í Álaborg í kvöld.

Tólf stiga sigur á Dönum
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skellti því danska ytra í kvöld. Lokatölur 54-66 fyrir Ísland en leikurinn var liður í B-deild Evrópukeppninnar.

Magnús Þór: Þetta verður bara eintóm hamingja
„Það er langt síðan allur þessi hópur er búinn að spila saman í þessarri keppni og við bíðum því spenntir eftir því að komast af stað aftur.

Karla -og kvennalandsliðin í körfubolta í eldlínunni
Seinni umferð B-deildar Evrópukeppninnar í körfubolta heldur áfram í kvöld þar sem bæði karla -og kvennalandslið Íslands eiga leik.

Sigurður tilkynnti hópinn fyrir síðari umferð Evrópukeppninnar
Landsliðsþjálfarinn Sigurður Ingimundarson tilkynnti þrettán manna landsliðshóp sinn fyrir seinni umferð b-deildar Evrópukeppninnar sem leikin verður á dögunum 19.-29. ágúst.

Nick Bradford kemur ekki aftur - Amani Daanish til Grindavíkur
Nick Bradford mun ekki spila með Grindvíkingum í Iceland Express deildinni í körfubolta næsta vetur en framkemur á heimasíðu félagsins að liðið sé búið að semja við Bandaríkjamanninn Amani Daanish.

Ægir Þór gaf flestar stoðsendingar í Bosníu
Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði íslenska 18 ára landsliðsins, gaf flestar stoðsendingar í b-deild Evrópukeppninnar sem lauk í Bosníu í gær. Íslenska liðið vann fjóra síðustu leiki sína og tryggði sér 13. sætið með öruggum sigri á Dönum.

Strákarnir unnu sjö stiga sigur á Ungverjum
18 ára landslið karla í körfubolta vann í dag 84-77 sigur á Ungverjum í fyrsta leik sínum í milliriðli b-deild Ebrópukeppninnar sem fer fram í Bosníu.

ÍG bjargaði Hetti frá falli í 2. deild
Það hefur orðið breyting á liðum í 1. deild karla í körfubolta þrátt fyrir að nú sé mitt sumar. Það hefur einnig verið dregið í töfluröð í deildinni.

Karlalandsliðið spilar ekki heimaleikina sína í Höllinni
A-landslið karla í körfubolta mun ekki spila heimaleiki sína í Evrópukeppninni í Laugardalshöllinni í haust heldur í Smáranum í Kópavogi. A-landslið kvenna leikur sína leiki á Ásvöllum og í Smáranum.

Þrír ungir Norðurlandameistarar í EM-hóp A-landsliðsins
Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari A-landsliðs karla, hefur varið 22 mann æfingahóp fyrir fjóra leiki í seinni umferð b-deildar Evrópukeppninnar í haust. Íslenska landsliðið mætir þá Danmörku, Hollandi, Svatfjallalandi og Austurríki.

Körfuboltaliðið hlaut brons
Körfuboltalandslið karla tapaði fyrir Lúxemborg á Smáþjóðaleikunum í morgun og endar í þriðja sæti keppninnar. UM lokaleik liðsins var að ræða en Lúxemborgar unnu átta stiga sigur, 74-66.

Stelpurnar hlutu silfur í körfunni
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tryggði sér silfurverðlaun á Smáþjóðaleikunum með sigri á Kýpur í dag. Leikurinn vannst með tíu stigum, 61-51.

Ísland vann 54 stiga sigur á San Marino
Ísland fékk létta æfingu þegar það rótburstaði San Marino 93-39 á Smáþjóðaleikunum á Kýpur í dag. Ísland vann 1. leikhluta 24-14 og þann næsta 26-4. Sigurinn var aldrei í hættu.

Íslendingar steinlágu gegn Kýpverjum í körfunni
Karlalandslið Íslands í körfubolta mátti sætta sig við 54-87 stórtap gegn heimamönnum í Kýpur á Smáþjóðaleikunum í dag en staðan í hálfleik var 28-47 Kýpverjum í vil.

Kvennalandsliðið tapaði gegn Möltu
Kvennalandslið Íslands í körfubolta byrjaði illa á Smáþjóðaleikunum þegar það tapaði fyrir Möltu, 53-69, í fyrsta leik en staðan í hálfleik var 24-34 Möltu í vil.

Fjörtíu stiga sigur hjá körlunum í fyrsta leik
Karlalandslið Íslands í körfubolta vann stórsigur, 93-53, gegn Möltu í fyrsta leik liðsins á Smáþjóðaleikunum í dag en staðan í hálfleik var 54-20 fyrir Íslandi.

Guðbjörg Norðfjörð aftur orðin varaformaður KKÍ
Guðbjörg Norðfjörð er nýr varaformaður Körfuknattsleikssambands Íslands en ný stjórn fyrir árin 2009-2011 var kosin á ársþingi sambandsins á dögunum. Guðbjörg var einnig varaformaður KKÍ starfsárið 2006-2007.

Böðvar ætlar að koma með Keflavíkur-hugsunarháttinn
Böðvar Þórir Kristjánsson er nýr þjálfari 1. deildarliðs Þórs frá Akureyri í körfunni en Böðvar mun taka við starfi Hrafns Kristjánssonar sem hætti með liðið í kjölfar þess að Þórsarar féllu úr Iceland Express deild karla í vetur. Þetta kemur fram á heimasíðu Þórsara.

Strákarnir unnu Finna með 21 stigi - sá stærsti á Finnum
Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta vann 21 stigs sigur á Finnum, 70-49, á Norðurlandamótinu í Solna í dag og hefur því unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum á mótinu.

Sigurður búinn að velja Kýpurfarana - Fannar Freyr er eini nýliðinn
Sigurður Ingimundarson er búinn að velja tólf manna landsliðshóp sem tekur þátt í Smáþjóðaleikunum á Kýpur sem hefjast í byrjun næsta mánaðar. Hlynur Bæringsson og Jón Arnór Stefánsson eru hvorugir í hópnum en vonir stóðu til að þeir gætu náð mótinu.

Henning velur hópinn fyrir Smáþjóðaleikana
Henning Henningsson, nýráðinn landsliðsþjálfari í körfubolta, hefur valið landsliðshópinn sem fer til Kýpur á Smáþjóðaleikana sem hefjast í byrjun júní.

Tveir lykilleikmenn ekki með kvennalandsliðinu
Tveir af bestu bakvörðum landsins í kvennakörfunni, Hildur Sigurðardóttir í KR og Pálína Gunnlaugsdóttir í Keflavík, verða ekki með íslenska kvennalandsliðinu á Smáþjóðaleikunum á Kýpur. Þetta kom fram á karfan.is.

Marvin og Bárður valdir bestir í 1. deild karla
Marvin Valdimarsson, leikmaður Hamars, og Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjölnis fengu stærstu verðlaunin fyrir 1. deild karla á lokahófi Körfuknattleikssambands Íslands í gærkvöldi. Marvin var valinn besti leikmaðurinn en Bárður var kosinn besti þjálfari deildarinnar.

Jón Arnór og Signý voru valin best á lokahófi KKÍ
Jón Arnór Stefánsson, bakbvörður úr KR og Signý Hermannsdóttir, miðherji úr Val, voru kosin bestu leikmenn Iceland Express deildanna á lokahófi KKÍ sem stendur nú yfir á Broadway. Þetta er í fyrsta sinn sem Signý Hermannsdóttir er kosin best en Jón Arnór Stefánsson hlaut þessi sömu verðlaun fyrir sjö árum síðan.

Kynnt sem kraftakona frá Íslandi
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir, fyrirliði Keflavíkur, hefur ákveðið að gera samning við þýska 2. deildarliðið TSVE Lady Dolphins og verður því fyrsta íslenska körfuboltakonan til þess að spila í Þýskalandi.

Henning: Ánægður og stoltur yfir að hafa fengið þetta tækifæri
Henning Henningsson, nýráðinn þjálfari A-landsliðs kvenna í körfubolta, er mjög spenntur fyrir nýja starfinu en hann var ráðinn sem þjálfari liðsins í gær.

Hljóðið var mjög gott í þeim leikmönnum sem við töluðum við
Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ var ánægður með að ver kominn með nýjan A-landsliðsþjálfara kvenna í körfubolta en KKÍ hefur gengið frá ráðningu Hennings Henningssonar í starfið.

Henning ráðinn nýr A-landsliðsþjálfari kvenna
Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands-KKÍ hefur gengið frá ráðningu Hennnings Henningssonar sem þjálfara A-landsliðs kvenna.

Skemmtilegur leikur á Sunnubrautinni á morgun
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur heldur lokahóf sitt í KK-salnum á morgun og eru fyrrum formenn, Íslandsmeistarar kvenna 1988 og Íslandsmeistarar karla frá 1989 sérstakir heiðursgestir á hófinu.