
Gervigreind

Altman snýr aftur til OpenAI
Sam Altman, einn stofnenda OpenAI, mun snúa aftur í forstjórastólinn aðeins dögum eftir að stjórn fyrirtækisins lét hann fjúka. Ákvörðunin um að láta Altman fara var harðlega mótmælt og niðurstaðan sú að stjórnarmeðlimum verður skipt út fyrir nýja.

Hraðar og óvæntar vendingar hjá stærsta gervigreindarfyrirtækinu
Microsoft hefur ráðið tvo stofnendur fyrirtækisins OpenAI til að leiða nýtt rannsóknarteymi á sviði gervigreindar, nokkrum dögum eftir að stjórn OpenAI rak annan þeirra og hinn sagði upp í mótmælaskyni. OpenAI er fyrirtækið á bakvið Chat GPT gervigreindina vinsælu.

Skera niður hjá úreltri Alexu
Forsvarsmenn Amazon hafa ákveðið að segja upp starfsmönnum sem komið hafa að þróun talgervilsins Alexa. Meiri áherslu á að leggja á þróun gervigreindar eins og ChatGPT.

Innleiða stafrænan íslenskukennara hjá sveitarfélögum
Sveitarfélögin Reykjavíkurborg, Akranes, Mýrdalshreppur, Ísafjarðarbær og Mosfellsbær hafa keypt og innleitt stafræna íslenskukennarann Bara tala sem byggður er á gervigreind, fyrir starfsfólkið sitt.

Óttast flóðbylgju barnaníðsefnis sköpuðu með aðstoð gervigreindar
Móðir stúlku hvers mynd var notuð til að búa til barnaklám með aðstoð gervigreindar segist hafa heyrt frá mörg hundruð foreldrum sem segja börn sín einnig meðal fórnarlamba hinnar nýju tækni.

Dreifðu gervigreindarnektarmyndum af samnemendum
Drengir í framhaldsskóla í New Jersey í Bandaríkjunum hafa verið sakaðir um að dreifa nektarmyndum af stúlkum í skólanum. Myndirnar eru þó ekki raunverulegar, heldur gerðar með aðstoð gervigreindar.

Okkar tilvistarlegi heimavöllur
Síminn er ekki lengur valkvæður fylgihlutur. Hann er orðinn fimmti útlimurinn; heili númer tvö staðsettur utan líkamans.

Síðasta lag Bítlanna kemur út
Sextíu árum eftir að þeir stigu fyrst fram á sjónarsviðið munu allir fjórir Bítlarnir gefa út lag. Þetta kann að koma sumum á óvart kannski helst vegna þess að tveir þeirra eru fallnir frá, þeir George Harrison og John Lennon. Það sem virtist ómögulegt er þó orðið mögulegt með hjálp gervigreindar.

Reynsla mín af gervigreind í menntaskólakennslu
Nýlegar framfarir í gervigreind hafa kallað fram breytingar á ýmsum sviðum samfélagsins og eru skólar þar engin undantekning. Í nýlegum þætti Kveiks á RÚV voru áhrifum gervigreindar á skólasamfélagið gerð góð skil og hefur sú umfjöllun fengið okkur til umhugsunar um hvort íslenskum skólum takist yfir höfuð að mæta nútímalegum þörfum nemenda.

Ofurgreind ekki enn á sjóndeildarhringnum en þörf á eftirliti
Demis Hassabis, framkvæmdastjóri Google DeepMind, segir „guðlega“ gervigreind ekki á sjóndeildarhringnum enn sem komið er en að vinna við stefnumörkun og eftirlit með þróun gervigreindar verði að hefjast „í gær“.

Skólarnir
Ég er kennari. Ég hef kennt í þrem grunnskólum og tveim framhaldsskólum. Í engum af þessum skólum er verið að búa til vélmenni úr nemendum.

Hvernig gervigreind gæti eyðilagt íslenska skóla
Það er algerlega ljóst að gervigreind mun hafa veruleg áhrif í skólum. Skárra væri það nú. Tækni, sem líkir nægilega vel eftir greind til að vera kennd við hana, hlýtur að vera viðfangsefni skóla með einhverjum hætti.

Notaður í auglýsingu með gervigreind án leyfis
Tom Hanks hefur varað aðdáendur sína við því að í umferð sé auglýsing á vegum tryggingafyrirtækis þar sem gervigreind er nýtt til að nota leikarann í auglýsingunni. Þetta er án hans aðkomu og samþykkis.

Gervigreindin geti ekki útrýmt þýðendum
Storytel bað nýlega íslenskan þýðenda um að lagfæra þýðingu sem gervigreind hafði gert fyrir fyrirtækið. Formaður Rithöfundasambands Íslands segir að tími sé kominn til að bókmenntaheimurinn taki sig saman og ræði um afleiðingar gervigreindar.

Gervigreind og höfundaréttur
Í kringum áramót reyni ég yfirleitt að verða mér úti um þau tímarit sem fara skipulega yfir komandi ár og segja frá næstu áskorunum sem mannkynið stendur andspænis. Ég geri þetta til að vera undirbúinn þar sem fjölmiðlar eiga það til að spyrja mig út í siðferðileg álitamál þegar þau koma upp. Best er að vera vel lesinn og búinn að fylgjast með umræðunni erlendis þegar mál rata loks í fréttir á Íslandi.

Frægir rithöfundar höfða mál vegna ChatGPT
Hópur þekktra rithöfunda eins og George R.R. Martin, Jodi Picoult og John Grisham hefur höfðað mál gegn fyrirtækinu OpenAI og sakað það um þjófnað á höfundarréttarvörðu efni sem notað var við þróun ChatGPT gervigreindarinnar. Rithöfundarnir segja gervigreindina byggja á kerfisbundnum og umfangsmiklum þjófnað.

Nýsköpun í rekstri þjóðar
Er það bara ég eða virkar samfélagið betur þegar Alþingi er í jóla og sumarfríi? Þetta er augljóslega bara tilfinning byggð á innsæi, en nú þegar alþingisfólkið okkar er mætt aftur í vinnuna, vel útsofið og glaðbeitt myndi maður halda, þá er eins og það hafi skyggt aðeins yfir landann. Fólk er aðeins reiðara í umferðinni, aðeins pirraðra að bíða eftir sjálfafgreiðslukassanum, aðeins stressaðra, aðeins styttri í þeim þráðurinn.

Áhrifamenn í tæknigeiranum sammála um nauðsyn regluverks
Elon Musk, stofnandi Tesla og SpaceX og eigandi samskiptamiðilsins X (áður Twitter), segir menn hafa verið á einu máli um mikilvægi regluverks um gervigreind þegar margir af helstu þungavigtarmönnum tæknigeirans funduðu með stjórnmálamönnum vestanhafs í miðvikudag.

Þolir lýðræðið álagspróf gervigreindarinnar?
Að undanförnu hefur mikið verið rætt um gervigreind og áhrif hennar á samfélagið en lítið hefur verið rætt um möguleg áhrif gervigreindar á lýðræði. Í nýlegri skýrslu Europol er áætlað að gervigreind framleiði 90% alls efnis á internetinu árið 2026.

Krefjast fyrirvara ef átt er við hljóð eða mynd í kosningaauglýsingum
Tæknirisinn Google ætlar að skikka þá sem kaupa kosningaauglýsingar á Google eða Youtube til þess að merkja þær skilmerkilega ef átt er við hljóð eða myndefni með gervigreind í þeim. Gervigreindarmyndefni er þegar byrjað að birtast í kosningaauglýsingum vestanhafs.

Bjóða starfsfólki að læra íslensku með gervigreind
Íslenskt stórfyrirtæki, þar sem erlent starfsfólk er í miklum meirihluta, býður því upp á íslenskukennslu með gervigreind. Forstjóri fyrirtækisins segir markmiðið að efla sjálfstraust og gleði starfsmanna ásamt því að veita betri þjónustu.

Ranglega handtekin á grundvelli gervigreindarforrits
Rúmlega þrítug kona var handtekin fyrir að stela bíl og ógna eigandanum með byssu, eftir að gervigreindarforrit bar kennsl á konuna með hjálp mynda úr eftirlitsmyndavél. Gervigreindin gleymdi því hins vegar að konan var komin 8 mánuði á leið en ræninginn bar ekki barn undir belti.

Uppskriftaforrit byggt á gervigreind býður upp á klórgas og annað misjafnt
Nýtt uppskriftasmáforrit matvöruverslanakeðju á Nýja-Sjálandi sem byggir á gervigreind hefur stungið upp á heldur nýstárlegum uppskriftum við neytendur, til að mynda drykk sem er í raun klórgas og eitraðar samlokur.

Segir hugmyndir Google aðför að höfundaréttinum
Forsvarsmenn Google hafa lagt til að breytingar verði gerðar á höfundaréttarlögum til að heimila fyrirtækjum að mata gervigreind á öllum texta sem fyrirfinnst á netinu. Ef útgefendur vilja ekki að efni þeirra sé notað verði það undir þeim komið að láta vita.

Gervigreindarkærustur vinsælar: „Að búa til maka sem þú stjórnar og uppfyllir allar þínar óskir er óhugnanlegt“
Gervigreindarkærustur svo sem Replika og Eva AI verða sífellt vinsælli. Einmanaleiki heimsfaraldursins ýtti þeim úr vör og hröð tækniþróun gervigreindar hefur viðhaldið vinsældunum.

Hagnast mikið og dæla peningum í gervigreind
Bæði Alphabet (móðurfélag Google) og Microsoft birtu í gær góð ársfjórðungsuppgjör sem sýndu aukinn hagnað og aðrar jákvæðar vendingar í rekstri fyrirtækjanna. Fyrirtækin eru í samkeppni um innleiðingu gervigreindar í leitarvélar Google og Bing og annan hugbúnað þeirra.

Segja það taka verulega á að sía viðbjóðinn úr ChatGPT
Lágt launaðir verktakar ChatGPT segja það reyna verulega á sálartetrið að sía viðbjóðinn úr tungumálalíkani spjallþjarkans ChatGPT. Starfsfólkið þarf ítrekað að lesa lýsingar á kynferðisofbeldi, barnaníð, sjálfsvíg og rasisma, svo eitthvað sé nefnt.

„Við hættum að sjá hvers virði mannleg hæfni er“
Advania og Myndlistaskólann í Reykjavík fóru í samstarf þar sem nemendur skólans endurgerðu auglýsingar fyrirtækisins sem gervigreind hafði skapað. Halldór Baldursson, kennari við MíR, horfir óttablöndnum augum til gervigreindarframtíðar en nemendur hans eru bjartsýnni.

Gervigreind komin til starfa hjá Heilsugæslunni
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur samið við heilsutæknifyrirtækið Dicino um áframhaldandi þróun gervigreindarverkfæris sem nýtist í netspjalli Heilsuveru. Gervigreindin spyr sjúkling út sjúkdómseinkenni og áhættuþætti og ritar sjálfvirka læknaskýrslu á íslensku.

„Núna geturðu lært íslensku hvar og hvenær sem er“
Bara Tala er nýtt smáforrit sem nýtist öllum sem vilja læra íslensku. Forritið er stafrænn íslenskukennari sem byggir á gervigreind og íslenskri máltækni, þar sem íslenskan er kennd í gegnum leik.