
Landsvirkjun

Rio Tinto hafi ekki svarað tilboði Landsvirkjunar
Forstjóri Landsvirkjunar segir kvörtun Rio Tinto til Samkeppniseftirlitsins og hótanir um mögulega lokun álversins í Straumsvík koma sér á óvart.

Danir toppa Norðmenn með lagningu lengsta sæstrengs heims til Bretlands
Lagning lengsta raforkusæstrengs heims stendur nú yfir milli Noregs og Bretlands. Sá strengur mun þó ekki lengi halda metinu því núna í júlímánuði hófust framkvæmdir við streng milli Danmerkur og Bretlands, sem ætlað er að verða ennþá lengri.

Afköst Sultartangavirkjunar skert eftir skriðu
Önnur vél Sultartangavirkjunar gengur ekki og hin er á hálfum hraða eftir að vatn gekk inn í virkjunina þegar skriða féll í afrennslisskurð fyrir neðan hana síðdegis í gær.

Zac Efron í Landsvirkjunarvesti í nýrri Netflix-stiklu
Í nýrri stiklu fyrir Netflix-þættina Down to Earth with Zac Efron má sjá Íslandi bregða fyrir.

Rio Tinto biður starfsmenn um frið meðan verið sé að klára samning við Landsvirkjun
Starfsmenn álversins í Straumsvík hafa verið beðnir um mánaðar friðarskyldu þar sem nýr raforkusamningur sé í burðarliðnum milli Rio Tinto og Landsvirkjunar.

Taka sér einn mánuð til viðbótar til að meta hvort álverinu verði lokað
Rio Tinto, eigandi álversins í Straumsvík, nær ekki að ljúka endurskoðun á starfsemi ISAL fyrir þessi mánaðamót, eins og fyrirtækið hafði stefnt að, og vonast nú eftir niðurstöðu fyrir lok júlímánaðar. Einn af möguleikunum sem eru til skoðunar er að loka álverinu.

Tvær nýjar brýr yfir Þjórsá í bígerð á þessu og næsta ári
Tvær nýjar brýr yfir Þjórsá, sem nú eru í bígerð í tengslum við virkjanaframkvæmdir, gætu haft mikla þýðingu fyrir samgöngur og ferðaþjónustu í uppsveitum Suðurlands. Brú á móts við Árnes styttir vegalengdir um tugi kílómetra.

Landsvirkjun býst við sterkri eftirspurn þegar kreppu lýkur
Forstjóri Landsvirkjunar spáir því að sterk eftirspurn verði eftir íslenskri orku þegar kreppunni lýkur og skoðar fyrirtækið núna hvort hægt verði að taka ákvörðun síðar á árinu um að hefja undirbúningsframkvæmdir við næstu stórvirkjun.

Bein útsending: Breyttir jeppar í almannaþjónustu
Aldís Ingimarsdóttir og Indriði Sævar Ríkharðsson, kennarar við iðn- og tæknifræðideild, fjalla um breytta jeppa í almannaþjónustu á Íslandi. Um er að ræða fimmta fyrirlesturinn í netfyrirlestraröð HR og Vísis.

Landsvirkjun ræðst í milljarðaframkvæmdir og gefur stórnotendum allt að 25 prósent afslátt
Landsvirkjun hyggst verja um 12 milljörðum króna í ýmsar framkvæmdir, þróunarverkefni auk þess að veita stórnotendum sínum afslætti.

Greiða ríkinu tíu milljarða króna arð
Eigendur Landsvirkjunar samþykktu á aðalfundi fyrirtækisins í dag tillögu stjórnar um arðgreiðslu til íslenska ríkisins upp á tíu milljarða króna fyrir árið 2019. Það er rúmlega tvisvar sinnum hærri upphæð en arðgreiðsla síðasta árs, sem nam 4,25 milljörðum.

Landsvirkjun gefur grænt ljóst á framleiðslu húðvara við Mývatn
Til stendur að vinna hráefni úr jarðhitavatni sem fellur til við orkuvinnslu á starfssvæði Landsvirkjunnar við Mývatn.

Hörður þreyttur á ónafngreindum heimildarmönnum
Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar skýtur fast á heimildarmenn Morgunblaðsins vegna frétta af hugleiðingum Rio Tinto þess efnis að fyrirtækið íhugi að loka álverinu í Straumsvík og stefna Landsvirkjun.

Einn möguleikinn að loka álverinu í tvö ár
Rio Tinto skoðar nú þann möguleika að loka álverinu í Straumsvík í tvö ár til að draga úr tapi af rekstri þess.

Landsvirkjun skoðar breytingar á Búrfellslundi til að mæta athugasemdum um sjónmengun
Sveitarstjóri Rangárþings ytra segist vongóður um að vindmyllugarður Landsvirkjunar í Búrfellslundi verði að veruleika enda sé þetta ákjósanlegasti staður á landinu til að beisla vind. Landsvirkjun hefur til skoðunar að gera breytingar á vindmyllugarðinum í því skyni að mæta athugasemdum um neikvæða sjónræna upplifun göngufólks sem á leið um svæðið.

Vindmyllur í Búrfellslundi gætu orðið 67 talsins
Landsvirkjun ætlar að byggja allt að 67 vindmyllur sem verða allt að 135 metra háar á sandsléttunni austan Þjórsár og á Hafinu þar sem fyrirtækið rekur tvær vindmyllur í rannsóknarskyni. Vindmyllurnar munu skila 200 megawöttum í raforkuframleiðslu.