Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)
43 44 45 46 47 48 49 50 51 … 148 ›
Heilbrigðiskerfin þurfi að þola álag áfram Formaður stjórnar Landspítalans segir ástand spítalans mjakast í rétta átt þrátt fyrir að enn sé langt í land. Enn sé of margt starfsfólk sem þjónusti sjúklinga ekki beint en það sé í höndum framkvæmdastjórnar og forstjóra spítalans að taka ákvarðanir um uppsagnir. Innlent 10.6.2023 07:01
Allra augu á boðuðum ráðherrakapal: „Ég hef ekki hugmynd um það“ Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa hugmynd um það hvenær hún tekur við embætti dómsmálaráðherra, sem henni var lofað í kjölfar myndunar ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Innlent 9.6.2023 21:31
Rússneski sendiherrann verði farinn fyrir mánaðamót Utanríkisráðherra segir enga ástæðu til að halda úti starfsemi sendiráðs í Moskvu þegar samskipti og viðskipti Íslands og Rússlands væru nánast engin og ætlar því að loka sendiráðinu. Það væri einnig hugsað í samhengi við alþjóðlegar aðgerðir til að einangra Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Innlent 9.6.2023 19:21
Það birtir alltaf til! Í dag lauk seinni umræðu vegna fjármálaáætlunar 2024 - 2028. Fjármálaáætlun er verkfæri stjórnvalda til að setja fram skýra stefnu í hagstjórn hins opinbera. Þar er að finna grunngildi hagstjórnarinnar, útfærslu á markmiðum, stefnum og straumum í pólitík. Skoðun 9.6.2023 15:00
Hvetur önnur ríki til að fara að fordæmi Íslendinga Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, sendi í dag þakkir til Þórdísar Kolbrúnu R. Gylfadóttur, utanríkisráðherra Íslands. Það gerði hann vegna ákvörðunar Íslendinga að leggja niður starfsemi í sendiráðinu í Rússlandi og krefjast þess að Rússar takmarki umsvif sín hér á landi. Erlent 9.6.2023 13:50
Fjöldi mála afgreiddur á lokadegi þings fyrir sumarleyfi Sautján mál verða að öllum líkindum að lögum frá Alþingi í dag. Umfangsmesta málið er fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára, frumvarp dómsmálaráðherra um dvalarleyfi útlendinga og frumvarp sem dregur úr launahækkunum æðstu embættismanna. Innlent 9.6.2023 13:30
Forsendur gjörbreyttar og tengslin nánast engin „Staðreyndin er bara sú að forsendur fyrir því að reka starfsemi í Moskvu eru gjörbreyttar,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, sem hefur ákveðið að leggja niður starfsemi íslenska sendiráðsins í Moskvu. Starfsemi rússneska sendiráðisins hér verður takmörkuð og sendiherrann fer heim. Innlent 9.6.2023 13:16
Loka sendiráðinu í Moskvu og takmarka umsvif Rússa hérlendis Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu frá 1. ágúst næstkomandi. Þá hefur sendiherra Rússlands hér á landi verið tjáð að gert sé ráð fyrir að Rússland minnki fyrirsvar sitt þannig að sendiherra stýri ekki lengur sendiráði Rússlands í Reykjavík. Sömuleiðis hefur Rússlandi verið gert að lágmarka starfsemi sendiráðsins á Íslandi til samræmis við þessa ákvörðun. Innlent 9.6.2023 11:12
Bjarni boðar ráðherraskipti á allra næstu dögum Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, verði ráðherra á allra næstu dögum. Hann segir ekki óvæntra tíðinda að vænta þegar kemur að ráðherraskiptum. Innlent 9.6.2023 11:00
Gjaldmiðillinn ásamt forsætis- og fjármálaráðherra þarf að víkja Það er löngu tímabært að ábyrgðarlitlir og þaulsætnir þingmenn sem hafa staðið að baki áratuga stjórnleysi og rányrkju þjóðarauðlinda taki pokann sinn. Vitræn fasteignauppbygging getur aldrei þrifist við þá verðbólgu og endalausar smáskammta lagfæringar sem hafa viðgengist áratugum saman vegna fyrirhyggju- og úrræðaleysi stjórnmálamanna. Skoðun 9.6.2023 10:01
Blessað sé miskunnarleysið á leigumarkaði Fjölskyldur sem stóðu á brún hyldýpis hið örlagaríka ár 2008 var skipulega ýtt framaf og í frjálst fall til glötunnar á leigumarkaði. Í fallinu baða leigjendur út örmum sínum og fálma eftir börnunum, framtíðinni og voninni, öskra eftir hjálp og leita allra leiða til að draga úr hraðanum því botninn leynist í myrkrinu og hann veit á skjótann dauða. Angistaróp leigjenda hafa verið undirspil fundanna í stjórnarráðinu í einn og hálfan áratug og á einhvern óskiljanlegan hátt hefur það einungis aukið á forherðingu stjórnvalda og skeytingarleysi gagnvart þeim. Skoðun 9.6.2023 07:01
Sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi þrýsta á Bjarna um að standa við loforðin Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi hefur skorað á formann flokksins, Bjarna Benediktsson, að „efna gefin loforð um að gera Guðrúnu Hafsteinsdóttur að ráðherra“. Innlent 9.6.2023 06:28
Lítill minnihluti á Alþingi stöðvar stuðning við tollfrelsi Úkraínu Alþingi er á lokametrunum fyrir sumarleyfi þingmanna og voru fjölmörg frumvörp ýmist afgreidd sem lög eða til lokaumræðu á þinginu í dag. Nokkur tími fór hins vegar einnig í umræður um að Alþingi mun ekki framlengja undanþágu á tollum á innfluttum landbúnaðarafurðum frá Úkraínu á þessu þingi vegna andstöðu nokkurra þingmanna. Innlent 8.6.2023 19:31
Bein útsending: 200 þúsund tonn af tækifærum Starfshópur sem falið var að leggja fram tillögur um hvernig flýta megi innleiðingu hringrásarhagkerfis mun kynna niðurstöður sínar á fundi sem hefst klukkan 15. Innlent 8.6.2023 14:31
Utanríkisráðherra segir lítinn sóma af niðurstöðu Alþingis Utanríkisráðherra segir ekki mikinn sóma af því að Alþingi hafi ekki framlengt niðurfellingu tolla á innflutningi landbúnaðarvöru frá Úkraínu. Þetta hafi verið mikilvægur stuðningur við Úkraínu sem reki efnahagskerfi sitt núna á þrjátíu prósenta afköstum. Innlent 8.6.2023 12:18
Boðar áfrýjun í makrílmálinu og segir ríkið ekki hafa hafnað sátt Íslenska ríkið hefur boðað áfrýjun í makrílmálinu, máli Vinnslustöðvarinnar og Hugins gegn íslenska ríkinu, en dómur féll í héraðsdómi í fyrradag. Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir ríkið ekki hafa hafnað sátt í málinu. Innlent 8.6.2023 11:24
Stjórnlaus ríkisfjármál og ríkisstjórn í sýndarmennsku Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, kom víða við í eldhúsdagsumræðum á Alþingi. Sagði hann ríkisfjármálin algjörlega stjórnlaus og störf ríkisstjórnar einkennast af sýndarmennsku. Innlent 8.6.2023 00:11
Samgönguáætlun frestast og jarðgöng bíða nýs gjaldakerfis Innviðaráðherra hefur hætt við að leggja nýja samgönguáætlun fyrir Alþingi þetta vorið. Formaður umhverfis- og samgöngunefndar sér ekki að næstu jarðgöng verði boðin út fyrr en búið verður að innleiða nýtt gjaldakerfi af umferð. Innlent 7.6.2023 21:33
Seðlabankastjóri væntir frekari aðgerða gegn verðbólgu í fjárlögum Seðlabankastjóri segir aðgerðir stjórnvalda til að vinna gegn verðbólgu jákvæðar. Þær væru eitt skref af mörgum sem taka verði og væntir frekari aðgerða í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Þá hvetur Seðlabankinn lánastofnanir til að nýta aukinn veðrétt heimila eftir mikla hækkun húsnæðisverðs til að breyta skilmálum lána. Innlent 7.6.2023 19:21
„Ég neita að trúa að Alþingi Íslendinga ætli að vera svona smátt“ Harðar umræður urðu á Alþingi í dag vegna erindis er varðar undanþágu vegna tollfrjáls innflutnings frá Úkraínu. Þingmenn Viðreisnar flykktust í pontu til að gagnrýna máttleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart hagsmunaöflum íslensks landbúnaðar. Innlent 7.6.2023 14:03
Ólafur segir vinnubrögð íslenskra stjórnvalda til háborinnar skammar Svo virðist sem skyndileg þinglok hafi komið fjölmörgum í opna skjöldu. Fjöldi mála er óafgreiddur, eitt þeirra er tollfrelsi fyrir úkraínskar vörur sem virðist ætla að brenna inni vegna hastarlegra þinglokanna. Innlent 7.6.2023 11:42
Hastarleg þinglok koma þingmönnum í opna skjöldu Forseti Alþingis tilkynnti við upphaf þingfundar á mánudag að starfsáætlun þingsins verði felld úr gildi frá og með næsta miðvikudegi eins og samþykkt hefði verið á fundum með forsætisnefnd og formönnum þingflokka. Í gærkvöldi er hins vegar tilkynnt að samið hafi verið um þinglok Alþingis í gær. Innlent 7.6.2023 10:19
Dauðafæri ríkisstjórnarinnar til að lækka vaxtastig Það hefur sennilega ekki farið fram hjá mörgum að nýlega hækkaði peningastefnunefnd Seðlabankans stýrivexti enn einu sinni. Var hækkunin ekki bara sú þrettánda í röð heldur einnig sú mesta í fimmtán ár. Staðan er því sú að stýrivextir Seðlabankans eru nú orðnir 8,75%. En hvað gerist næst? Hvernig er hægt að koma í veg fyrir frekari vaxtahækkanir og stuðla að lækkun vaxta á ný? Skoðun 7.6.2023 07:00
Á þriðja tug mála afgreidd fyrir helgi Búið er að komast að samkomulagi um þinglok en í því felst meðal annars að fjármálaáætlun fyrir árin 2024 til 2028 ásamt tengdum málum verða afgreidd áður en þingi verður frestað á föstudag. Innlent 7.6.2023 06:24
Varð döpur þegar hún sá kynningu ríkisstjórnarinnar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, sagði á þingfundi í dag að hún hefði orðið döpur þegar hún kynnti sér boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í baráttunni við verðbólgudrauginn. Innlent 6.6.2023 21:26
Segja fátækum hafa fækkað Fátækum hefur fækkað hér á landi síðustu tvo áratugi og er staðan á íslandi meðal því besta sem þekkist í samanburðarlöndum. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins þar sem einnig segir að staðan góða breyti því ekki að fátækt sé til staðar. Innlent 6.6.2023 15:39
Stjórnvöld auki húsnæðisvandann með breyttu skattkerfi Stjórnvöld munu auka á húsnæðisvanda landsmanna með því að lækka endurgreiðsluhlutall vegna vinnu iðnaðarmanna um tæplega helming, að mati Samtaka iðnaðarins. Aðgerðin muni leiða til meiri kostnaðar við byggingu íbúða sem dragi úr framboði. „Samdráttur í framboði mun óhjákvæmilega hafa áhrif á íbúðaverð til hækkunar. Það eru þau áhrif sem við þessar aðstæður munu koma fram í aukinni verðbólgu og hærri vöxtum,“ segja samtökin. Innherji 6.6.2023 14:19
Verðbólguaðgerðirnar afar litlir plástrar á stór sár Verðbólguaðgerðir ríkisstjórnarinnar eru mikil vonbrigði og afar litlir plástrar á stór sár fyrir fátækasta hópinn segir framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. Innlent 6.6.2023 13:01
Hryllilegt að sjá afleiðingarnar sem birtast strax Íbúasvæði í Kherson í Úkraínu eru á floti eftir að stór stífla brast og þúsundir þurfa að flýja heimili sín. Utanríkisráðherra segir hryllilegar afleiðingar þegar komnar í ljós og ljóst að Rússland Pútíns muni ekki stoppa fyrr en það verður stöðvað. Innlent 6.6.2023 12:16
Segja aðgerðir ríkisstjórnarinnar endurnýtt efni Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur kynnti í dag aðgerðapakka, sem ætlað er að slá á verðbólguna og koma til móts við þá sem farið hafa verst út úr henni. Formenn tveggja stjórnarandstöðuflokka segja fátt nýtt felast í aðgerðapakkanum og segja hann jafnvel endurunnið efni. Innlent 5.6.2023 23:44