Almannavarnir
1 2 3 4 5 6 … 37 ›
Bein útsending: Vítt og breitt um almannavarnamál Árleg ráðstefna almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra verður haldin í dag á milli klukkan 13:00 og 16:15, á Hilton Reykjavík Nordica. Á ráðstefnunni, sem haldin er í þriðja sinn verður eins og áður fjallað vítt og breitt um almannavarnarmál á Íslandi. Sjá má ráðstefnuna í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 31.10.2024 12:32
Hlaupið í rénun Jökulhlaup sem staðið hefur yfir í Skálm undanfarna sólarhringa er í rénun. Innlent 10.9.2024 14:05
Lýsa yfir óvissustigi Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi, hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jökulhlaups úr Mýrdalsjökli. Innlent 9.9.2024 13:09
Af hættustigi niður á óvissustig Almannavarnastig hefur verið fært af hættustigi niður á óvissustig þar sem eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell er lokið. Það er Ríkislögreglustjóri sem ákveður þetta í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum. Innlent 6.9.2024 11:14
Neyðarkassinn eigi að skapa ró Rauði krossinn hvetur fólk til að útbúa neyðarkassa með helstu nauðsynjun ef hættuástand á borð við náttúruhamfarir steðjar að. En hvað þarf að vera í kassanum? Innlent 28.8.2024 20:02
Ekki óskynsamlegt að koma sér upp neyðarbirgðum Jóhann Friðrik Friðrikson, þingmaður Framsóknar sem sæti á í þjóðaröryggisráði, segir ekki óskynsamlegt fyrir Íslendinga að koma sér upp neyðarbirgðum á heimilum sínum líkt og Danir. Innlent 28.8.2024 08:24
Óvissustigi aflétt á Tröllaskaga Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra ákveðið að fara af óvissustigi Almannavarna sem sett var á 23. ágúst síðastliðinn vegna mikillar rigningar og skriðuhættu á Tröllaskaga. Innlent 26.8.2024 20:37
Óvissustig vegna rigningar og skriðuhættu á Tröllaskaga Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi vegna mikillar rigningar og aukinnar hættu á skriðuföllum á Tröllaskaga. Hluta Siglufjarðarvegur hefur verið lokað vegna grjóthruns. Innlent 23.8.2024 18:15
Veðurstofan hefur litlar áhyggjur af hlaupinu Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir yfirstandandi Skaftárhlaup vera langt frá því að vera nokkur ógn við vegi og innviði á svæðinu og að Veðurstofan hafi litlar áhyggjur af því eins og staðan er. Innlent 23.8.2024 12:08
Neyðarstigi almannavarna lýst yfir Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum ákveðið að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna vegna eldgossins sem hófst á tíunda tímanum í kvöld, við Sundhnúkagíga. Innlent 22.8.2024 22:08
Vaktin: Eldgos hafið Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 fimmtudaginn 22. ágúst eftir að öflug jarðskjálftahrina byrjaði klukkan 20:48. Stuttu eftir að fyrstu merki sáust um kvikuhlaup eða eldgos hófst rýming í Grindavík, Svartsengi og við Bláa lónið. Rýmingu var lokið um 40 mínútum síðar. Innlent 22.8.2024 21:13
Ekki á því að yfirgefa Grindavík endanlega Þrátt fyrir að nýtt hættumat bendi til að miklar líkur séu á að hraun komi upp innan Grindavíkur á næstu vikum verður ráðist í framkvæmdir innan bæjarmarka eftir Verslunarmannahelgi. Brottfluttir íbúar eru bjartsýnir á að komast aftur heim. Innlent 25.7.2024 18:53
Lýsa yfir hættustigi Hættustigi verður lýst yfir vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Hættumat Veðurstofu Íslands verður uppfært í gær en kvika heldur áfram að safnast undir Svartsengi og búist er við kvikuhlaupi eða eldgosi á næstunni. Innlent 24.7.2024 13:25
Haraldur spyr hvort gosum sé lokið í Sundhnúksgígaröðinni Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir vísbendingu um að kvikustreymi upp í lárétta kvikuinnskotið undir Svartsengi hafi verulega minnkað eða að því sé lokið. Hann spyr: „Goslok í Sundhnúksgígaröðinni?“ í fyrirsögn nýs pistils á eldfjallabloggi sínu. Innlent 20.7.2024 22:04
Heildarkostnaður við varnargarða nærri sjö milljarðar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur gefið ríkislögreglustjóra heimild til að hefja vinnu við hækkun og styrkingu varnargarða í nágrenni Grindavíkur. Heildarkostnaður við garðana er metinn á nærri sjö milljarða króna. Innlent 27.6.2024 13:37
Af hættustigi niður á óvissustig Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig vegna umbrota á Reykjanesi. Gosórói hefur farið minnkandi á síðustu sólarhringum en svæðið verður áfram vaktar af Veðurstofunni og lögreglunni á Suðurnesjum. Innlent 22.6.2024 18:15
Telur að þetta geti orðið síðasta eldgosið á Sundhnúkareininni Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að yfirstandandi eldgos geti orðið það síðasta á Sundhnúkagígaröðinni og að umbrotin þar gætu stöðvast síðsumars. Hann vonar að hægt verði að huga að því að byggja Grindavík upp aftur með haustinu. Innlent 13.6.2024 20:40
Fylgjast sérstaklega með hrauntjörnum sem gætu brostið fram Hraun rennur áfram úr eldgosinu sem hófst í gær en hægt. Almannavarnir kanna í dag með drónaflugi hvar mögulega hrauntjarnir gætu verið að myndast og hvert þær gætu runnið. Vel er fylgst með öllum helstu innviðum en skyggni er erfitt vegna veðurs. Lokað er á svæðinu og inn í Grindavík. Vilji fólk sjá gosið er mælt með vefmyndavélum. Innlent 30.5.2024 08:13
Vaktin: Virknin á svipuðum nótum í alla nótt Virkni í eldgosinu sem hófst nærri Sundhnúki norðan við Grindavík upp úr hádegi í gær hefur verið á svipuðum nótum í alla nótt. Hún er enn mest á nokkrum gosopum en erfitt að fullyrða hvað þau eru mörg vegna lélegs skyggnis. Innlent 30.5.2024 06:18
Mikilvægt að Grindvíkingar láti vita af sér Almannavarnir vilja að Grindvíkingar sem eru búsettir í Grindavík eða voru í bænum þegar rýming átti sér stað láti vita hvar þau eru. Innlent 29.5.2024 12:15
Rýna í aðgerðir almannavarna síðustu sex mánuði á Reykjanesi Í dag fer fram rýnifundur ríkislögreglustjóra á aðgerðum almannavarnadeildar og annarra viðbragðsaðila á aðgerðum síðustu sex mánaða á Reykjanesi. Dómsmálaráðherra ávarpaði fundinn í morgun. Um 70 manns sitja fundinn í heild sinni. Fundarstjóri er Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn. Innlent 23.5.2024 12:48
Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna skemmda á þeirri lögn sem flytur vatn til neyslu og húshitunar í Vestmannaeyjum. Innlent 16.5.2024 12:32
Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Fagstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands segir að einhverjar vikur geti verið í næsta eldgos á Reykjanesi. Kvika haldi áfram að safnast saman í Svartsengi en reynslan síni að sífellt meiri þrýsting þurfi til að koma af stað öðru kvikuhlaupi. Innlent 10.5.2024 20:09
Eldgosinu lokið eftir 54 daga Eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina sem hófst þann 16. mars er nú lokið. Sérfræðingar Almannavarna flugu dróna yfir gosstöðvarnar við Sundhnúk í gærkvöldi og þá var enga virkni að sjá í gígnum. Enn er kvikusöfnun í kvikuhólfi undir Svartsengi og líklegt að annað kvikuhlaup hefjist áður en langt er um liðið. Innlent 9.5.2024 08:15
Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Jarðvísindamennirnir Haraldur Sigurðsson og Grímur Björnsson segja nýjustu gögn Veðurstofu Íslands um hraunflæði frá Sundhnúksgígaröðinni styðja við fyrri spá þeirra um lok eldvirkni í gígaröðinni; að kvikuflæði verði lokið í eldstöðinni seinni part sumars 2024, eða nánar tiltekið um 5. júlí. Jafnframt telja þeir að landris geti haldið áfram að vissu marki án þess að nýtt gos brjótist fram og vísa til reynslunnar frá Kröflueldum. Innlent 4.5.2024 23:46
Telja líkur á öðru eldgosi Áframhaldandi landris eykur líkur á öðru kvikuhlaupi þó eldgos sé yfirstandandi Meiri óvissa um þróun jarðhræringanna næstu daga eða vikur. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 19.4.2024 15:51
Öllum rýmingum aflétt á Austurlandi Hættustigi og rýmingum vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði hefur verið aflétt. Rýmingar sem gripið var til á Austurlandi hafi því verið aflétt að fullu. Óvissustig vegna snjófljóðahættu er enn í gildi á Austfjörðum. Innlent 8.4.2024 15:41
Endurmeta rýmingar í fyrramálið Rýmingar á merktum svæðum á Seyðisfirði og í Neskaupstað vegna snjóflóðahættu eru enn í gildi. Veðurstofa metur stöðuna að nýju í fyrramálið. Innlent 7.4.2024 21:44
Fólk á Austfjörðum sleppi því að vera á ferðinni Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi fundaði fyrir skemmstu með Veðurstofu og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum. Gert er ráð fyrir talsverðri úrkomu í nótt. Búið er að rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað. Innlent 6.4.2024 21:13
Rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað vegna snjóflóðahættu Veðurstofa Íslands hefur eflt til rýminga á tveimur svæðum á Seyðisfirði og einu á Neskaupstað frá klukkan tíu í kvöld vegna snjóflóðahættu. Innlent 6.4.2024 18:24