Viðskipti
Lægri væntingavísitala
Væntingavísitala Gallup lækkaði í mars eftir að hafa náð hámarki í febrúar en vísitalan mælist nú 127,7 stig. Mat neytenda á efnahagslífinu er nú lægra en áður og á stærstan þátt í lækkun vísitölunnar ásamt því sem dregið hefur verulega úr væntingum þeirra til efnahagslífsins eftir sex mánuði.
Deutsche Bank ráðleggur Pliva
Króatíska lyfjafyrirtækið Pliva hefur valið Deutsche Bank til að ráðleggja sér í viðræðum við íslenska lyfjaframleiðandann Actavis sem hefur hug á að taka yfir fyrirtækið.
Hagar sækja áfram inn á sérvörumarkað
Hagar hafa eignast fimm sérvöruverslanir í Kringlunni og Smáralind, sem reknar eru undir merkjum Change, Coast og Oasis, og taka við rekstri þeirra á næstu dögum. Seljendur verslananna eru hjónin Ingibjörg Þorvaldsdóttir og Jón Arnar Guðbrandsson, sem höfðu sérleyfi fyrir þessi merki á Íslandi.
Ósammála um hækkunarþörf
Greiningardeildir viðskiptabankanna þriggja búast við að Seðlabanki Íslands hækki stýrivexti um fimmtíu punkta á fimmtudaginn.
Glitnir í A-flokk allra lánshæfisfyrirtækjanna
Glitnir er fyrsti íslenski bankinn til að fá einkunn frá Standard & Poors. Greiningardeildir erlendra fyrirtækja spáðu mun verri niðurstöðu fyrir íslenska banka.
Færeyingar geta sofið rólegir
Þær hræringar sem hafa orðið í íslensku efnahagslífi upp á síðkastið hafa vakið mikla athygli í Færeyjum. Færeyski Landsbankinn hefur beðið færeyska fjölmiðla um að sýna stillingu þegar þeir bera saman fréttir af íslensku efnahagslífi og áhrifum þeirra á færeysk verðbréf.
Hagnaður Sorpu 54,7 milljónir
Hagnaður Sorpu b.s. namk 54,7 milljónum króna á síðasta ári en var 53,9 milljónir árið 2004. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir nam 166,2 milljónum króna á tímabilinu en var 148,3 milljónir árið á undan.
Opera Mini í fleiri farsíma
Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software greindi frá því í gær að það hefði gert fjóra nýja samninga sem gæti tryggt markaðshlutdeild Opera Mini vafrans um allan heim.
Actavis kaupir rúmenskt lyfjafyrirtæki
Actavis Group tilkynnti í dag um kaup á rúmenska lyfjafyrirtækinu Sindan, sem er leiðandi samheitalyfjafyrirtæki í Evrópu í sölu á krabbameinslyfjum. Kaupverðið er 147,5 milljónir evra, jafnvirði 12,8 milljarða íslenskra króna. Kaupverðið er greitt með reiðufé.
Fons kaupir í Ticket
Pálmi Haraldsson og Jóhannes Kristinsson í Fons eru komnir með yfir 28 prósenta hlut í sænsku ferðaskrifstofukeðjunni Ticket. KB banki keypti sjö prósenta hlut líklega af næststærsta hluthafanum Skandia Liv og framseldi hann að hluta til Fons, sem er langstærsti eigandinn í Ticket.
Hagnaður Jeratúns 7,29 milljónir
Rekstrarhagnaður Jeratúns ehf., einkafyrirtækis í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar, nam 7,29 milljónum króna á síðasta ári. Eigið fé nam 8,34 milljónum króna, samkvæmt ársuppgjöri fyrirtækisins. Starfsemi fyrirtækisins var í samræmi við áætlanir og greiðslur sveitarfélaganna til þess voru í skilum.
Lægri væntingavísitala
Væntingavísitala Gallup lækkaði í mars eftir að hafa náð hámarki í febrúar en vísitalan mælist nú 127,7 stig. Mat neytenda á efnahagslífinu er nú lægra en áður og á stærstan þátt í lækkun vísitölunnar ásamt því sem dregið hefur verulega úr væntingum þeirra til efnahagslífsins eftir sex mánuði.
Hagnaður Sorpu nam 54,7 milljónum
Hagnaður Sorpu b.s. namk 54,7 milljónum króna á síðasta ári en var 53,9 milljónir árið 2004. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir nam 166,2 milljónum króna á tímabilinu en var 148,3 milljónir króna árið á undan.
Standard & Poor's veitir Glitni A- í lánshæfismat
Standard & Poor’s lánshæfismatsfyrirtækið tilkynnti í dag um lánshæfismat Glitnis. Langtímaskuldbindingar eru metnar A- og skammtímaskuldbindingar A-2. Horfur í mati Standard & Poor’s eru stöðugar.
Metviðskipti í kauphöll Lundúna
Kauphöllin í Lundúnum greindi frá því í dag að rafrænum viðskiptum hafi fjölgað umtalsvert á árinu og sé útlit fyrir að met verði slegið í þessum mánuði. Clara Furse, forstjóri kauphallarinnar, segir horfur á að viðskiptunum haldi áfram að fjölga út árið.
Standard & Poor's tilkynnir A- lánshæfismat Glitnis
Matsfyrirtækið Standard & Poor’s tilkynnti í dag um lánshæfismat Glitnis og gefur matseinkunnina A- fyrir langtímaskuldbindingar og A-2 fyrir skammtímaskuldbindingar. Horfurnar eru stöðugar, að mati Standard & Poor’s.
Erfitt ár hjá General Motors
Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors (GM) hefur viðurkennt að árið í ár verði „krefjandi“. Er búist við að markaðshlutdeild GM minnki í Bandaríkjunum um eitt prósent á fyrsta ársfjórðungi og verði 24 prósent í Bandaríkjunum.
Avion Group skilar bættri framlegð
Tap af rekstri Avion Group á fyrsta ársfjórðungi reikningsársins, sem lauk í lok janúar, nam 9.942 milljónum Bandaríkjadala sem samsvarar um 715 milljónum króna. Afkoman var í takt við væntingar stjórnenda en hafa ber í huga að hagnaður fyrirtækisins myndast á seinni hluta ársins.
Eimskip kaupir helming í Innovate Holdings
Eimskip hefur fest kaup á helmingshlut í breska landflutningafyrirtækinu Innovate Holdings. Forstjóri Eimskips sér mikil tækifæri til frekari sóknar á sviði hitastýrðra flutninga með kaupunum og horfir meðal annars til viðskipta við félög eins og Bakkavör og Icelandic Group í Bretlandi, en þau félög eru einnig í eigu Íslendinga.
Eimskip kaupir helming í Innovate
Eimskip eignast helming hlutafjár í breska landflutningafyrirtækinu Innovate Holdings fyrir lok apríl. Samkomulag er milli aðila um að Eimskip eignist félagið að fullu síðar en stjórnendur Innovate munu halda áfram störfum.
Sér ekki fyrir kreppuástand
Í nýrri skýrslu greiningardeildar ameríska fjárfestingarbankans JP Morgan um íslensku bankana er undirstrikað að hvorki OECD né matsfyrirtæki geri ráð fyrir að í aðsigi sé djúp efnahagskreppa á Íslandi. Danske Bank gaf í vikunni út spá um slíkt.
Dagsbrún vill Wyndeham
Stjórnendur Dagsbrúnar líta á Wyndeham sem stökkpall inn á breska markaðinn. Dagsbrún hefur enn augastað á Orkla Media.
Børsen gagnrýnir Danske bank
Íslenskt efnahagslíf virðist vera að færast yfir í nýtt ferli þar sem jafnvægi kemur á útrás síðustu ára. Það verður hollt hvað varðar vöxtinn til lengri tíma litið, segir í leiðara danska viðskiptaritsins Børsen í gær.
VÍS hagnast á hlutabréfum
VÍS hagnaðist um 8.444 milljónir króna í fyrra sem er 46 prósenta aukning frá árinu 2004. Arðsemi eiginfjár var 44 prósent samanborið við 65 prósent árið 2004.
Kaupþing þarf meiri peninga á næsta ári
Endurfjármögnunarþörf næsta árs hjá Kaupþingi banka hækkar úr 2,4 milljörðum evra í 2,9 milljarða evra vegna þess að í Bandaríkjunum hafa peningamarkaðssjóði sagt upp skuldabréfum sem hafa keypt voru af bankanum. Framkvæmdastjóri fjárstýringar bankans segir þetta ekki setja mikið strik í reikninginn.
Spá 0,8 prósent hækkun neysluverðs
Greiningardeild Glitnis segir að útlit sé fyrir 0,8 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs (VNV) á milli mars og apríl. Íbúðaverð hafi áfram talsverð áhrif til hækkunar vísitölunnar ásamt matvöruverði sem hefur hækkað að undanförnu. Þá hefur eldsneytisverð einnig hækkað frá síðustu mælingu í kjölfar gengislækkunar og hækkandi heimsmarkaðsverðs.
Talsverðar lækkanir á hlutabréfamarkaði
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 2,3 prósent í gær og um 4 prósent það sem af er degi. Þrátt fyrir þegar nemur hækkun vísitölunnar frá áramótum 5,6 prósentum, sem samsvarar 24 prósenta hækkun uppreiknað á ársgrundvelli, að sögn greiningardeildar Glitnis. Telst það mjög góð ávöxtun. Bréf í bönkum og FL Group hefur lækkað mest.
Bayer býður í Schering
Þýski lyfjarisinn Bayer hefur gert yfirtökutilboð í þýska lyfjafyrirtækið Schering. Tilboðið hljóðar upp á 16,3 milljarða evrur. Stjórn Schering er sögð styðja yfirtökutilboð Bayer en hún var mótfallin óvinveittu yfirtökutilboði frá þýska lyfjafyrirtækinu Merck fyrr í mánuðinum, sem hljóðaði upp á 14,6 milljarða evrur.
Bakkavör Group kaupir hlut í kínversku salatfyrirtæki
Bakkavör Group hefur keypt 40 prósent hlutafjár í kínverska salatfyrirtækinu Creative Foods í samstarfi við Glitni. Í tengslum við kaupin hafa Bakkavör Asia, dótturfélag Bakkavör Group, og Glitnir stofnað nýtt félag, Bakkavör China. Bakkavör Group á 60 prósent hlutafjár í félaginu og Glitnir prósent.
Yfirtökutilboð Dagsbrúnar í Wyndeham Press Group
Dótturfélag Dagsbrúnar, Daybreak Acquisitions Limited (Daybreak), hefur gert öllum hluthöfum í breska prent- og samskiptafyrirtækinu Wyndeham Press Group (Wyndeham) yfirtökutilboð á 155 pens á hlut. Samkvæmt tilboðinu er fyrirtækið metið á um 80,6 milljónir punda. Meðfylgjandi er opinber tilkynning sem birt var í Kauphöllinni í London (LSE) varðandi yfirtökutilboðið.