Lögreglan
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 39 ›
Tilkynntar nauðganir ekki færri í þrettán ár Umtalsverð fækkun hefur verið á tilkynningum um kynferðisbrot til lögreglu. Ekki hafa færri nauðganir verið tilkynntar á síðustu þrettán árum. Verkefnastjóri hjá lögreglunni segir tölurnar líkjast því sem sást í Covid-faraldrinum. Innlent 21.11.2023 13:00
Keyptu byssur fyrir 165 milljónir en gefa ekki upp fjöldann Mat dómsmálaráðuneytisins er að birting nákvæmra upplýsinga yfir byssur í eigu lögreglu falli undir lykilupplýsingar um viðbragðsgetu lögreglu. Hún geti þar með haft afdrifaríkar afleiðingar, stofnað öryggi ríkisins í hættu og haft áhrif á öryggi lögreglumanna. Skotvopn voru keypt fyrir 165 milljónir króna fyrr á árinu vegna leiðtogafundar í Hörpu. Innlent 20.11.2023 21:07
Með hendur í vösum? Ágæta Halla. Íslendingar skilja út á hvað lýðheilsa gengur. Skilja mikilvægi þess að hafa regluverk sem hefur verndandi áhrif. Ekki síst í þágu barna og ungmenna. Íslendingar flestir vita að áfengi, tóbak og nikótín eru heilsuspillandi vörur sem geta undir engum kringumstæðum flokkast sem venjulegar vörur. Skoðun 20.11.2023 12:30
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum setur fjölmiðlum ótækar takmarkanir Formaður Blaðamannafélags Íslands segir víðtækar takmarkanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum á störf fjölmiðla í og í kringum Grindavík ótækar. Fjölmiðlar væru hindraðir í að hafa eftirlit með aðgerðum yfirvalda og til að afla upplýsinga sem vörðuðu Grindvíkinga og allan almenning í landinu. Innlent 20.11.2023 12:08
Víðtæk lokun hindrar för um stóran hluta Reykjanesskaga Akstursbann það sem Almannavarnir tilkynntu um á föstudagskvöld á öllum leiðum til Grindavíkur er enn í gildi. Svo víðtæk er lokunin að hún bannar för ökutækja um stóran hluta Reykjanesskagans. Innlent 13.11.2023 10:43
Lögreglumaður ákærður fyrir að slá liggjandi mann ítrekað með kylfu Lögreglumaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi vegna atviks sem átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur í lok maí á þessu ári. Innlent 10.11.2023 11:22
Hefur enn ekki fengið svör um byssukaup Þingmaður Pírata furðar sig á því að sér hafi ekki borist svör frá dómsmálaráðherra við fyrirspurn sinni um vopnakaup lögreglu. Fyrirspurnin var lögð fram í maí og svo aftur á nýju þingi. Ráðuneytið segir svara að vænta 15. nóvember, degi eftir sérstaka umræðu um málið á þingi. Innlent 10.11.2023 06:45
Fögnuðu skipun hjá lögreglunni 24 lögreglumenn fengu afhent skipunarbréf við hátíðlega athöfn á lögreglustöðinni á Hverfisgötu í gær. Konur eru rúmlega þriðjungur lögregluliðsins á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 9.11.2023 14:40
Lögreglan sem fer ekki að lögum um eftirlit fái auknar heimildir Dómsmálaráðherra segir mikilvægt að auka rannsóknarheimildir lögreglunnar með skipulagðri brotastarfsemi og auka um leið eftirlit með störfum lögreglunnar. Þingflokksformaður Pírata segir lögregluna hins vegar hafa hundsað lög og fyrirmæli varðandi það eftirlit sem ríkissaksóknaraembættið hefði með henni samkvæmt núgildandi lögum. Innlent 9.11.2023 12:26
Lögreglukonur áreittar af samstarfsmönnum en karlarnir af konum úti í bæ Kynferðisleg áreitni innan lögreglunnar hefur aukist talsvert síðasta áratug, samkvæmt nýrri rannsókn. Stór hluti lögreglukvenna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi; oftast af hendi karlkyns samstarfsmanna eða yfirmanna. Verkefnastjóri hjá Ríkislögreglustjóra segir embættið taka niðurstöðurnar mjög alvarlega. Innlent 4.11.2023 21:01
Starfandi lögreglumenn 895, þar af 704 menntaðir sem slíkir Heildarfjöldi starfandi lögreglumanna á Íslandi er 895 og þar af eru 704 menntaðir lögreglumenn. Afleysingamenn eru 79 og þá sinna 112 lögreglunemar afleysingastörfum. Innlent 1.11.2023 07:40
Freistar þess að koma breytingum á lögreglulögum í gegn Guðrún Hafsteinsdóttir, sem tók við sem dómsmálaráðherra af Jóni Gunnarssyni í sumarbyrjun, hefur birt drög að frumvarpi um breytingar á lögreglulögum í samráðsgátt til umsagnar en Jóni tókst ekki að koma þeim breytingum sem hann vildi gera á lögunum í gegn á síðasta þingi. Með breytingunum á lögreglan að fá auknar heimildir til að afla upplýsinga og viðhafa eftirlit. Innlent 31.10.2023 11:32
Afbrotavarnir í þágu öruggs samfélags Skýrar vísbendingar hafa komið fram á síðustu árum um að umfang og eðli skipulagðrar brotastarfsemi hafi tekið verulegum breytingum hér á landi til hins verra. Hópar innlendra jafnt sem erlendra aðila hafa það að atvinnu að fremja fjölda afbrota með skipulegum hætti, þar á meðal alvarleg ofbeldisbrot, þjófnað, fjársvik, fíkniefnabrot og peningaþvætti. Skoðun 31.10.2023 07:32
Alvarlegri og þyngri vinnumansalsmál en áður Alvarlegri vinnumansalsmál eru að koma upp nú en áður hjá aðildarfélögum ASÍ. Verkefnastjóri segir þrjú fyrirtæki hafa verið tilkynnt til lögreglu á síðasta ári þar sem grunur sé um vinnumansal, það stefni í að málin verði mun fleiri í ár. Lögreglan hefur lagt fram kæru í nokkrum málum á þessu ári. Innlent 27.10.2023 13:00
Þolendum mansals fjölgar stöðugt og þörf á vitundarvakningu Íslensk stjórnvöld eru gagnrýnd fyrir lélegan árangur í mansalsmálum í nýrri úttekt. Á sama tíma eru tilkynningar um mansal orðnar þriðjungi fleiri á þessu ári en samanlagt síðustu tvö ár. Teymisstjóri fyrir þolendur ofbeldis grunar að málin séu miklu fleiri. Innlent 26.10.2023 19:00
Kölluðu eftir liðsauka einkennisklæddra þegar mannfjölda dreif að Talsmaður Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að fjórir óeinkennisklæddir lögregluþjónar hafi verið sendir á vettvang þar sem sækja átti þrjá drengi, sem senda átti til Noregs, í gærkvöldi. Innlent 26.10.2023 15:53
Beitti piparúða á dyraverði sem hleyptu honum ekki inn Lögregla aðstoðaði dyraverði skemmtistaðar í miðborginni vegna manns sem hafði spreyjað piparúða á þá, eftir að þeir hleyptu honum ekki inn laust fyrir klukkan 04 í nótt. Innlent 21.10.2023 07:36
Grímur viðurkennir mistök lögreglu Yfirlögregluþjónn viðurkennir að mistök hafi orðið þegar lögregla fann ekki blóðugan hníf, sem er líklegt morðvopn í manndrápsmáli sem varð í Drangahrauni þann sautjánda júní. Hnífurinn fannst í gær af dóttur hins látna á heimili þeirra, þar sem morðið var framið. Innlent 18.10.2023 18:09
Dóttir hins látna fann blóðugan hníf í fyrradag Nítján ára dóttir Jaroslaw Kaminski, sem var myrtur í Drangarhrauni í sumar, fann hníf sem líklega er sá sem notaður var til að bana föður hennar, í íbúðinni í fyrradag. Verjandi Maciej Jakub Talik, sem er ákærður fyrir manndráp, segir málið skandal og vinnubrögð lögreglu, sem ekki hafi fundið hnífinn, ámælisverð. Innlent 18.10.2023 14:43
Dæmdur fyrir að skalla lögreglumann Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 45 daga fangelsi fyrir að hafa skallað lögreglumann eftir að hafa verið handtekinn í október á síðasta ári. Innlent 11.10.2023 08:56
„Þá verður farið ofan í saumana á þessu“ Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, segir mál 19 ára manns vegna aðgerða lögreglu á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar ekki komið á borð til sín enn sem komið er. Hann eigi þó von á að það berist til sín á næstunni. Innlent 9.10.2023 21:00
„Ég vildi fá að hringja í pabba og þeir bönnuðu mér það“ Nítján ára maður, sem er dökkur á hörund, og var handtekinn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar segir húðlit sinn hafa ráðið aðgerðum lögreglu. Hann segir fordóma í samfélaginu hafa færst í aukana. Lögmaður mannsins hefur krafist miskabóta úr hendi ríkisins. Innlent 8.10.2023 20:09
Lýsir yfir óánægju við ráðherra Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar hefur lýst yfir óánægju við dómsmálaráðherra yfir því að sýslumaður á Suðurlandi hefur tímabundið verið settur sem sýslumaður í Vestmannaeyjum. Bæjarstjórn lýsti síðast yfir óánægju vegna þessa fyrirkomulags fyrir fjórum árum síðan, árið 2019. Innlent 3.10.2023 10:01
Braut gegn lögregluþjónum en sagði þá ætla að drepa hann Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir valdstjórnarbrot fyrir að beita tvo lögregluþjóna ofbeldi. Maðurinn neitaði sök og hélt því fram að annar lögregluþjónninn hafi ætlað að drepa hann, og því sagðist því halda að þeir myndu drepa hann. Innlent 3.10.2023 06:30
Sýslumaður á Suðurlandi aftur orðinn sýslumaður í Vestmannaeyjum Kristín Þórðardóttir, sýslumaður á Suðurlandi, hefur verið sett tímabundið sem sýslumaður í Vestmannaeyjum. Skipunin nær frá 1. október til þess 30. september á næsta ári og mun Kristín gegna báðum embættum á þessum tíma. Innlent 2.10.2023 11:25
Ríkislögreglustjóri hótar héraðsdómi Í gærkvöldi rakst ég á frétt á mbl.is með fyrirsögninni „Hættustigið gæti lækkað með sakfellingu”. Í fréttinni er haft eftir yfirlögregluþjóni hjá ríkislögreglustjóra að ef tveir tilteknir menn í ákveðnu sakamáli, sem er rekið fyrir héraðsdómi Reykjavíkur, verði sakfelldir fyrir hryðverkjuverk þá gæti hættustig vegna hryðjuverka lækkað á Íslandi. Skoðun 25.9.2023 08:31
Óttast frekari vopnvæðingu þrátt fyrir skipun eftirlitshóps Dómsmálaráðherra hyggst skipa eftirlitshóp með rafbyssunotkun lögreglu. Þingmaður Pírata óttast meiri vopnavæðingu með innleiðingu rafbyssa hér á landi. Innlent 23.9.2023 20:07
Íslenska lögreglan kynnist rafbyssunum umdeildu Undirbúningur lögreglu fyrir komu rafbyssa er nú í fullum gangi undir handleiðslu erlendra sérfræðinga. Íslensk lögreglukona segir alveg nóg að prófa einu sinni að vera skotin og fá fimm sekúndna rafstraum úr vopninu. Innlent 22.9.2023 21:22
Hefur sent lögreglustjóra formlega kvörtun Sverrir Einar Eiríksson, eigandi skemmtistaðarins B, hefur sent Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu formlega kvörtun vegna framgöngu lögregluþjóns sem handtók hann á skemmtistaðnum á laugardag. Innlent 19.9.2023 08:30
Enn einn yfirmaður lögreglu sendur í leyfi Margeir Sveinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er kominn í leyfi frá störfum. Þetta staðfestir embættið í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu. Hann er þriðji stjórnandi embættisins sem sendur er í leyfi á innan við ári. Innlent 15.9.2023 07:01