Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands ræddust við í síma í dag um málefni Mið-Austurlanda og samvinnu Breta og Bandaríkjamanna í stríðinu gegn Íran. Enn hefur ekki verið tilkynnt um hver sé nýr leiðtogi Íran. Erlent 8.3.2026 16:26
Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Fjórar vinkonur sem voru að hefja heimsreisu þegar þær festust á átakasvæði í Mið-Austurlöndunum hafa loks komist þaðan. Þær fréttu af því að þær hefðu fengið pláss í flugferð í útvarpinu, þurftu að komast yfir landamæri með ókunnugum heimamanni og dvelja á flugvelli í fleiri klukkustundir í hópi Rúmena. Innlent 8.3.2026 16:15
Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur ekki náð sambandi við 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Alls hafa 120 Íslendingar komið sér af svæðinu eða ætla ekki að gera það, en enn er unnið að málum 47 Íslendinga. Frá þessu er greint í tilkynningu frá stjórnarráðinu. Innlent 7.3.2026 11:12
Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Þrír bandarískir hermenn féllu og fimm hermenn særðust alvarlega í tengslum við átök Írans við Ísrael og Bandaríkjamenn, að sögn Bandaríkjahers. Auk þess létu hið minnsta níu Ísraelsmenn lífið í árás á í ísraelsku borginni Beit Shemesh í dag, að sögn viðbragðsaðila. Erlent 1. mars 2026 15:15
Íslendingar óska eftir aðstoð Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hefur nokkur fjöldi íslenskra ríkisborgara á áhrifasvæðum í Miðausturlöndum haft samband við borgaraþjónustu ráðuneytisins. Þeim hafi verið veittar upplýsingar og aðstoð eftir fremsta megni. Innlent 1. mars 2026 14:04
Skipta út stjórnarformanni sem sendi Epstein pyntingamyndband Eitt stærsta flutningsfyrirtæki heims skipti út stjórnarformanni sínum í dag eftir að hann var ítrekaður nefndur í Epstein-skjölunum svonefndu. Hneykslismál formannsins settu viðskiptasamninga fyrirtækisins í uppnám. Viðskipti erlent 13. febrúar 2026 15:27
Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Yfirvöld í Eþíópíu hafa reist leynilegar herbúðir þar sem þúsundir meðlima uppreisnarhópsins Rapid Support Forces (RSF) eru þjálfaðir fyrir átök við stjórnarherinn í Súdan. Framkvæmdirnar munu hafa verið fjármagnaðar af Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem hafa staðið þétt við bakið á RSF í átökunum blóðugu í Súdan. Erlent 11. febrúar 2026 09:21
„Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Nokkrum dögum áður en Donald Trump tók við embætti forseta Bandaríkjanna á nýjan leik í janúar í fyrra, keyptu sjeik úr konungsfjölskyldu Sameinuðu arabísku furstadæmanna og aðrir fjárfestar þaðan 49 prósenta hlut í rafmyntafélagi fjölskyldu forsetans. Erlent 2. febrúar 2026 12:04
Selenskí undir miklum þrýstingi Utanríkisráðherra bindur vonir við að tímamótaviðræður sendinefnda Úkraínu, Bandaríkjanna og Rússlands í Abú Dabí skili árangri. Mikilvægt sé þó að fullveldi Úkraínu verði virt og friðurinn verði raunverulegur og ekki á forsendum Rússa. Innlent 23. janúar 2026 19:02
Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Fulltrúar Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna eru nú sagðir ætla að halda samningafund í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um stríðið í Úkraínu og mögulegt vopnahlé. Fundurinn fer fram í dag og er um að ræða fyrstu viðræðurnar frá innrás Rússa fyrir hartnær fjórum árum þar sem Rússar og Úkraínumenn sitja við sama borð ásamt Bandaríkjunum. Erlent 23. janúar 2026 07:21
Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Úrval Útsýn býður upp á fjölmargar spennandi ævintýraferðir í vetur og í vor. Meðal þeirra eru ferðir til Óman og Dubai í febrúar, til Japans í mars og til Egyptalands í maí. Allar þrjár ferðirnar hafa fengið góðar viðtökur meðal landsmanna og því þurfa áhugasamir að bregðast skjótt við til að tryggja sér pláss. Lífið samstarf 21. janúar 2026 09:04
Óttast innrætingu íslamista í breskum háskólum Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum styrkja ekki lengur ríkisborgara sína til háskólanáms í Bretlandi, af ótta við að nemendur verði útsettir fyrir innrætingu samtaka á borð við Múslimska bræðralagið. Múslimska bræðralagið eru alþjóðleg samtök múslima sem skilgreind eru sem hryðjuverkasamtök í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en ekki í Bretlandi. Erlent 10. janúar 2026 20:33
Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Her Sádi-Arabíu gerði í morgun loftárásir á höfnina í Mukalla í Jemen sem sagðar eru hafa beinst að vopnasendingum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu vöruðu í kjölfarið furstadæmin við því að aðgerðir þeirra og stuðningur við vopnaðan hóp sem kallast STC væri einkar hættulegur. Erlent 30. desember 2025 09:41
Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Íslensk kona á leið til Ástralíu með syni sína tvo lenti í einni stærstu martröð ferðalangsins þegar vegabréf eldri sonarins endaði í ruslinu á flugvelli í Lundúnum. Þau rótuðu í tunnunni en þá var vegabréfið horfið. Leiðir skildu, móðirin og yngri sonurinn flugu áfram en sá eldri varð eftir með síma, hleðslutæki og einbeittan vilja til að endurheimta vegabréfið. Ferðalög 17. desember 2025 07:02
Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Foreldrar ungra manna sem borgað hafa Íslendingi margar milljónir eftir loforð um að þeir yrðu ríkir með gervigreindarmarkaðssetningu hafa miklar áhyggjur af sonum sínum. Nýjasta útspil mannsins er sala á myllumerkjum, sem hann segir fólk geta grætt fúlgur fjár á. Innlent 16. desember 2025 19:00
Fundað um frið í Abú Dabí Bandarískir og rússneskir erindrekar komu saman í Abú Dabí í Sameinuðu furstadæmunum í morgun. Þar stendur til að ræða frið í Úkraínu og tillögurnar sem fyrir liggja. Ólíklegt þykir að Rússar muni samþykkja þessar tillögur, sem hafa tekið nokkrum breytingum frá því þær litu fyrst dagsins ljós. Erlent 25. nóvember 2025 12:03
Aron í góðum málum á miðjunni en algjör hörmung hjá Jóhanni Reynsluboltarnir í íslenska landsliðinu áttu misjafnan dag með sínum liðum í Mið-Austurlöndunum. Fótbolti 21. nóvember 2025 18:47
Furstadæmin dæla vopnum og kínverskum drónum til Súdan Leyniþjónustur Bandaríkjanna og embættismenn í Evrópu, Líbíu og Egyptalandi segja að ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafi aukið hergagnasendingar til vígamanna Rapid support forces (RSF) í Súdan á þessu ári. Kínverskir drónar hafa verið sendir til vígamannanna, auk stórskotaliðsvopna, farartækja, vélbyssa og skotfæra, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 29. október 2025 16:05
Vildi ekki að börnin sín myndu alast upp í Englandi Fyrrum leikmaður Liverpool er nú að spila í C-deildinni í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og fullvissar alla um það í nýju viðtali að hann sé ekki kominn til Dúbaí vegna peninganna. Enski boltinn 16. október 2025 23:31
Mótmæla hugmyndum um innlimun nær alls Vesturbakkans Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segja að Ísraelsmenn myndu fara yfir „rauða línu“ ef þeir innlimuðu Vesturbakkann. Þá myndi það gera út um möguleikann á svokallaðri „tveggja ríkja lausn“ á deilu Ísrael og Palestínumanna. Erlent 4. september 2025 07:01
Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Súdanski herinn gerði á dögunum loftárás á flugvöll í Darfurhéraði sem beindist sérstaklega að herflugvél sem talið er að hafi verið í eigu herafla Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Flugvélinni var grandað og með henni fórust að minnsta kosti fjörutíu málaliðar frá Kólumbíu, sem furstadæmin eru sögð hafa ráðið til að styðja uppreisnarmenn í Súdan. Erlent 7. ágúst 2025 14:59
Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Íslensk kona sem var stödd í Íran þegar Ísraelsher hóf árásir á landið í júní komst ekki úr landinu og til Dúbaí, þar sem hún er búsett, fyrr en mánuði síðar. Hún lýsir miklum ótta og ringulreið í tólf daga stríðinu sem fylgdi. Innlent 26. júlí 2025 10:32
Stökk fjörutíu sinnum úr flugvél í Dubai „Þegar ég stökk úr flugvél ein í fyrsta sinn þá var heilinn að segja mér bara nei, nei, nei, ekki stökkva,“ segir ævintýrakonan Svanhildur Heiða Snorradóttir. Hún heillaðist algjörlega að fallhlífarstökki þegar hún var búsett í Miðausturlöndum og ræddi við blaðamann um þetta mjög svo spennandi áhugamál. Lífið 21. júlí 2025 11:42
Jóhann Berg kominn með nýtt lið á Arabíuskaganum Jóhann Berg Guðmundsson mun ekki spila áfram í sádi-arabíska fótboltanum en hann verður samt áfram á Arabíuskaganum. Fótbolti 2. júlí 2025 19:20