
Hjálparstarf

Formaður Fjölskylduhjálparinnar sögð hafa mismunað skjólstæðingum og sýnt virðingarleysi
Fyrrverandi sjálfboðaliði hjá Fjölskylduhjálp Íslands segist hafa ákveðið að hætta að starfa með samtökunum eftir að hún hafi orðið vitni að mismunun á grundvelli trúarbragða við úthlutun matvæla. Nokkrir fyrrverandi og núverandi skjólstæðingar saka formanninn um niðurlægjandi framkomu gagnvart sér.

Fleiri sækja um mataraðstoð fyrir jólin í ár
Hjálpræðishernum í Reykjavík hafa borist um 600 umsóknir um mataraðstoð fyrir jólin og er það gríðarleg aukning frá síðasta ári, að því er fram kemur í tilkynningu á vef samtakanna. Á síðasta ári voru umsóknir í kring um 200 talsins.

Konur eru konum bestar söfnuðu 6,8 milljónum fyrir Bjarkarhlíð
Alls söfnuðust 6,8 milljónir í söfnunarátakinu Konur eru konum bestar fyrir Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis.

Gáfu Mæðrastyrksnefnd handprjónaðar ullarhúfur fyrir börn
Í dag afhentu Þórunn Ívarsdóttir og Alexsandra Berharð Guðmundsdóttir Mæðrastyrksnefnd veglega gjöf sem innihélt meðal annars tugi handprjónaðra ullarhúfa fyrir börn. Verkefnið framkvæmdu þær með því að fá íslenskar konur með sér í samprjón, í gegnum hlaðvarpið sitt Þokan.

Jólasveinar gáfu Hjálparstarfi kirkjunnar 1,3 milljónir króna
Jólasveinar úr Jólasveinaþjónustu Skyrgáms afhentu Hjálparstarfi kirkjunnar 1,3 milljónir króna við Grensáskirkju í morgun. Um er að ræða 20 prósent af veltu þjónustunnar sem sveinarnir hafa gefið samtökunum frá árinu 1997.

Hjálpræðisherinn stefnir á opnun á nýjum stað eftir helgi
Flokksleiðtogi Hjálpræðishersins í Reykjavík vonar að hægt verði að hefja starfsemi í nýjum herkastala strax eftir helgi. Mikil þörf sé á þjónustu við þá sem minnst megi sín en reiknað sé með að allt að átta hundruð manns sæki þjónustu til hersins í viku hverri.

Gefa þúsund gjafakort: „Það mun koma sér rosalega vel að geta gefið fjölskyldunum kort fyrir jólin“
Fyrirtækið CCP hefur styrkt Fjölskylduhjálp Íslands, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og Rauða kross Íslands með gjafakortum fyrir fimmtán milljónir króna sem munu koma þúsund einstaklingum og fjölskyldum vel um hátíðirnar.

Fordæmir að fátækir þurfi að híma í biðröðum eftir mat
Samhæfingarstjóri samtaka fólks í fátækt segir niðurlægjandi að þurfa að bíða í röð eftir aðstoð hjálparsamtaka og óskar eftir að fyrirkomulaginu verði breytt. Fjórfalt fleiri glími við fátækt nú en í upphafi árs. Meiri örvænting einkenni þá sem nái ekki endum saman.

„Sumir hváðu þegar þjónustustjóri listasafns hringdi til að spyrja um líðan“
Starfsfólk hinna ýmsu stofnana borgarinnar hafa í kórónuveirufaraldrinum tekið að sér heimilisstörf í neyðarskýlum og hringt í næstum 800 eldri borgara. Sumir hváðu þegar ég kynnti mig sem þjónustustjóra Listasafns Reykjavíkur, segir starfsmaður.

Þörfin fyrir mataraðstoð sjaldan verið eins mikil
„Fólk er áhyggjufullt og sorgmætt og í raun og veru veit ekki sitt rjúkandi ráð," segir formaður Fjölskylduhjálpar Íslands.

COVID-19: Íslendingum þakkað rausnarlegt framlag til Malaví
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) fagnar framlagi Íslands til að greiða fyrir hjálpargögn til Malaví vegna COVID-19 og tryggja skilvirka dreifingu þeirra um landið

Kaupfélag Skagfirðinga gefur fjörutíu þúsund máltíðir fyrir jólin
Kaupfélag Skagfirðinga og dótturfélög þess í matvælaframleiðslu hafa ákveðið að gefa fólki í neyð hér á landi matvöru fram til jóla sem samsvarar 40 þúsund máltíðum.

Sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi að störfum í Jemen
Kolbrún Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi er að störfum á meðferðardeild fyrir einstaklinga sem veikjast af COVID-19 í Aden í suðurhluta Jemen

Flúðu Venesúela og leita nú að vinnu ásamt hundruðum samlanda sinna
Síðustu mánuði hafa um 700 hælisleitendur fengið alþjóðlega vernd hér á landi og fá þá dvalarleyfi hér í eitt til fjögur ár. Þessi fjöldi hefur sjaldan eða aldrei verið meiri hér á landi. Hjón þaðan segja sig sárvanta vinnu svo lífið komist í eðlilegt horf en stundum sé ruglingslegt hvert eigi leita og hvernig.

Rúmlega 16 milljónir söfnuðust fyrir Beirút hjá Rauða krossinum
Neyðarsöfnun Rauða krossins fyrir íbúa Beirút vegna sprengingarinnar sem varð þar í síðustu viku er lokið. Rúmlega 16 milljónir söfnuðust og renna til Rauða krossins í Líbanon.

Í mínus
Félagsráðgjafar Hjálparstarfs kirkjunnar taka í síauknum mæli á móti fjölskyldum sem eru í þeirri stöðu að hafa minna en ekkert á milli handanna eftir að fastaútgjöld heimilisins hafa verið greidd um mánaðamót.

COVID-19: Afleiðingarnar alvarlegri en sjúkdómurinn fyrir börn
Þótt börn séu ekki mörg meðal þeirra rúmlega 700 þúsund einstaklinga sem látist hafa af völdum COVID-19 deyja þúsundir barna vegna óbeinna afleiðinga faraldursins og milljónir barna eru í lífshættu, einkum vegna vannæringar í fátækjum ríkjum.

Hildur og Antonía opnuðu snyrtistofu í garðinum og söfnuðu fyrir SOS Barnaþorpin
„Við fengum heldur betur ánægjulega heimsókn á skrifstofuna okkar í gær. Hingað komu tvær 6 ára dömur, Hildur og Antonía, með 5.500 krónur sem þær söfnuðu fyrir SOS Barnaþorpin.“

Skrifað undir tvo nýja samninga um neyðar- og mannúðaraðstoð
Af hálfu utanríkisráðuneytisins hefur verið skrifað undir tvo nýja fjögurra ára samninga um stuðning Íslands við mannúðaraðstoð og neyðarviðbrögð.

Rifjar upp björgunaraðgerðirnar á Haítí: „Maður grét þegar maður kom út“
„En að sama skapi, ófá börnin hafa brosað til manns, sem hafa þakkað manni fyrir, hafa verið vítamínsprauta sem maður fær í hjartað til að vega upp á móti þessum erfiðu hlutum sem maður upplifir.“

Mörgum börnum líður illa vegna faraldurs og verkfalla
Ellefu samtöl við börn tengd sjálfsvígum voru hjá Hjálparsíma Rauða krossins 1717 í apríl. Verkefnastjóri Hjálparsímans segir mikið óvissuástand undanfarið hafa haft áhrif á mörg börn sem líði illa.

Fæðuskortur í skugga COVID-19
Í Afríku sunnan Sahara búa yfir 20 milljónir barna og foreldrar þeirra við mikinn fæðuskort. COVID-19 smitum í Afríku fjölgar nú ört og mikil hætta er á hraðri útbreiðslu í álfunni þar sem innviðir eru ekki nógu sterkir til að stemma stigu við faraldrinum.

Hægt að innleiða áfallahjálp í daglega rútínu vinnustaða
Doktor Sigríður Björk Þormar segir vinnustaði geta gripið inn í með áfallahjálp á margvíslegan hátt og að slíkt inngrip þurfi alls ekkert að vera svo flókið né kostnaðarsamt.

Rauði krossinn er til staðar
Á erfiðum tímum er mikilvægt að styðja sig við ættingja, vini og vinnufélaga, en þetta á aðeins við um þá sem eiga slíkt tengslanet. Fjöldi fólks býr ekki svo vel, á ekki fjölskyldu og situr eitt, hrætt og einmana – jafnvel á stofnun, í fangelsi eða í ótryggu húsnæði og jafnvel á á götunni.

Geðheilsan skiptir líka máli
Rauði krossinn hefur nokkrar áhyggjur af þeim sem glíma við andlega erfiðleika á tímum sem þessum.

Einmanaleiki: Hinn faldi faraldur
Manneskjan er að eðlisfari félagsvera og má segja að það sé hluti af grunnþörfum mannsins að fá félagsskap. Við höfum flest upplifað einmanaleika einhvern tímann á lífsleiðinni.

Einangrunin eykst dag frá degi og einmanaleikinn svíður
Fjölmargir einstaklingar sitja í fangelsi á Íslandi og á óvissutímum líkt og nú er hætt við að þeir gleymist. Í miklum óstöðuleika upplifir þessi hópur óöryggi og aukna streitu, líkt og flestir aðrir.

Afríka í hættu
COVID-19 veiran er búin að breyta heiminum. Hann verður aldrei aftur samur.En veiran hefur ekki enn sagt sitt síðasta.

Hvernig held ég mig heima ef ég er heimilislaus?
Að halda sig heima er ekki möguleiki fyrir heimilislausa einstaklinga. Fyrirmæli yfirvalda til almennings á þessum tíma – einangrun, aukið hreinlæti og að halda sig heima – eru ekki raunsæ fyrir einstaklinga sem glíma við heimilisleysi.

Ástin (og neyðin) á tímum kórónuveirunnar
Miðað við fréttaflutning undanfarinna vikna mætti halda að það sé kominn á heimsfriður, fátækt hafi verið útrýmt og allir hafi aðeins það eina hlutverk að kveða COVID-19 í kútinn.