Dýr
22 23 24 25 26 27 28 29 30 … 68 ›
Dauðir fuglar eins og hráviði á vegum úti Þeir sem fara um þjóðvegi landsins komast ekki hjá því að taka eftir fuglum sem liggja steindauðir víðsvegar við vegi landsins. Árlega drepst óhemju mikið af fuglum eftir að á þá hefur verið keyrt, ekki síst á þessum tíma ársins. Innlent 6.8.2022 09:07
Þoka gert hreindýraveiðimönnum erfitt fyrir Jóhann G. Gunnarsson, sérfræðingur hjá umhverfisstofnun á Egilsstöðum, segir að hreindýraveiðarnar fari rólega af stað. Innlent 5.8.2022 15:09
Heiðra minningu æðarfugla sem drápust í olíuslysi Á laugardaginn munu Súgfirðingar ganga minningargöngu til heiðurs minningar fjölmargra æðarfugla sem þurfti að aflífa eftir olíuslys á Suðureyri í mars síðastliðnum. Innlent 4.8.2022 08:24
Rándýrt að skoða Komododreka og starfsmenn farnir í verkfall Kostnaður við að ferðast á tvær eyjur sem eru heimkynni Komododrekans átjánfaldaðist um mánaðamót júlí og ágúst. Ferðamenn þurfa nú að borga 3,75 milljónir indónesískra rúpía til að fá aðgang að eyjunni, tæpar 35 þúsund íslenskar krónur. Erlent 3.8.2022 11:29
Skógarmítlar og folaflugur hafa numið land í Surtsey Folaflugur og skógarmítill eru meðal smádýra sem fundust í leiðangri vísindamanna til Surtseyjar fyrr í mánuðinum. Flugan fyrrnefnda hefur aldrei fundist áður í eyjunni en skógarmítill fannst síðast árið 1967 í Surtsey. Innlent 30.7.2022 10:49
Tvöfölduðu tígrisdýrastofninn á tíu árum en glíma nú við tíðari árásir Stjórnvöldum í Nepal hefur tekist að tvöfalda tígrisdýrastofn sinn á tíu árum. Nú glíma landsmenn þó við tíðari árásir frá dýrunum. Erlent 29.7.2022 11:34
Fær að nefna risaeðluna eftir að hann keypti beinagrindina Beinagrind gogrónueðlu seldist á uppboði hjá uppboðshúsinu Sotheby‘s í gær á sex milljónir dollara, rúmlega átta hundruð milljónir íslenskra króna. Venjan er að fornleifafræðingarnir sem finna beinin nefni eðluna sem þau tilheyrðu en þessi hefur enn ekki verið skírð. Því er það í verkahring kaupandans að sjá um það. Erlent 29.7.2022 10:18
Tvær ágengar tegundir valdi langmestum skaða í heiminum Amerískur bolafroskur og brúnn trjásnákur hafa kostað heiminn alls 16 milljarða Bandaríkjadala, tvö þúsund milljarði íslenskra króna, með því að skemma uppskerur, rafmagnssnúrur og fleira. Engin ágeng tegund er jafn skaðleg fyrir heiminn og þessar tvær. Erlent 29.7.2022 08:54
Árásargjarni apinn fundinn og drepinn Heimamenn í borginni Yamaguchi í Japan höfðu uppi á apa, sem hafði ráðist á tæplega fimmtíu manns í borginni, og drápu hann. Talið er að aðrir apar úr hóp hans séu þó enn lausir og hafa árásir haldið áfram eftir að apinn var drepinn. Erlent 27.7.2022 13:34
Þúsundir kúa flattar út og urðaðar með rusli eftir að hafa drepist úr hita Þúsundir nautgripa sem drápust vegna hitabylgju í Bandaríkjunum í júní voru urðaðir í landfyllingu í Kansas. Rotnandi hræin voru fyrst flött út með þungavinnuvélum áður en þau voru urðuð með almennu rusli. Erlent 27.7.2022 12:19
Hefur engar áhyggjur af hundasjúkdómi sem getur smitast í menn Starfandi sóttvarnalæknir segir að bakterían sem grunur leikur á að hafi greinst í hundi hér á landi í fyrsta skipti smitist mjög ólíklega yfir í menn þó hún geti það vissulega. Hún hefur ekki áhyggjur af stöðunni sem Matvælastofnun hafi þegar náð vel utan um. Innlent 26.7.2022 17:26
Grunur um nýja bakteríusýkingu í hundum hér á landi Matvælastofnun hefur borist tilkynning um grun og Brucella canis bakteríusýkingu í hundi hér á landi. Sýkingin er súna, sem sagt sjúkdómur sem getur smitast á milli dýra og manna. Þetta er í fyrsta sinn sem grunur um Brucella canis kemur upp hér á landi. Innlent 26.7.2022 14:00
Skemmtilegur dýragarður á Skorrastað Geiturnar, kisurnar, kanínurnar, hundurinn, hænurnar, kindurnar og hestarnir á bænum Skorrastað við Neskaupstað vekja alltaf mikla ánægju hjá gestum en þar er rekin dýragarður og ferðaþjónusta. Bóndinn á bænum segist ekki sakna þess að komast ekki til útlanda á sumrin, Ísland sé alltaf best. Innlent 25.7.2022 20:04
Árásargjarni innbrotsapinn hættir ekki og gæti átt sér vitorðsapa Árásargjarn api sem hefur brotist inn til fólks í borginni Yamaguchi í Japan hefur ekki enn náðst og halda árásir hans áfram. Alls hafa 42 lent í klóm apans á síðustu vikum. Erlent 25.7.2022 14:10
Seglfiskur stakk konu í Flórída Kona var stungin af kyrrahafsseglfisk við strendur Flórída-ríkis í Bandaríkjunum í síðustu viku. Konan var stunginn í nárann er hún stóð við hliðina á veiðimanni sem var með fiskinn á línunni. Líðan konunnar er stöðug. Erlent 25.7.2022 10:16
Ótrúlegur páfagaukur í Breiðholti getur ekki hætt að tala Fyrir um ári síðan byrjaði lítill en óvenjulegur páfagaukur í Breiðholti að tala, eiganda sínum að óvörum. Fuglinn býr nú yfir fjölbreyttum orðaforða, eins og sjá má í meðfylgjandi frétt. Lífið 24.7.2022 19:42
Sléttuúlfar átu páfugla Martha Stewart Sléttuúlfar brutu sér leið inn að búgarði sjónvarpskonunnar Martha Stewart í dag og átu þar sex af páfuglum hennar. Atvikið átti sér stað um hábjartan dag. Lífið 23.7.2022 20:31
Landlæg veiruskita af völdum kórónuveiru Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum hefur staðfest að landlæg veiruskitu í kúm hér á landi sé af völdum „Bovcov“ eða nautgripakórónuveiru. Í vor gekk veiruskita á kúabúum víða um land og lá grunur að um nautgripakórónuveiru væri að ræða. Með raðgreiningu úr sýni frá kúabúi á Norðurlandi hefur það nú verið staðfest. Innlent 22.7.2022 11:28
Elsti karlkyns pandabjörn sögunnar dauður Pandabjörninn An An var svæfður í morgun í dýragarðinum Ocean Park í Hong Kong. Engin karlkyns pandabjörn hefur lifað lengur en An An svo vitað sé en hann náði 35 ára aldri. Erlent 21.7.2022 11:01
Fyndnustu gæludýramyndir ársins Forsvarsmenn hinnar árlegu Comedy Pet Photo Awards gæludýraljósmyndakeppninnar hafa valið þær myndir sem keppa til úrslita í ár. Fjölmargar myndir af kostulegum dýrum bárust í keppnina. Lífið 21.7.2022 10:01
Vara áhugasama við því að nálgast rostunginn Freyju Fiskistofa Noregs varaði í morgun fólk við því að nálgast frægan rostung of mikið. Rostungurinn Freyja hefur verið að valda usla í smábátahöfn skammt frá Osló þar sem hún hefur meðal annar sökkt bátum. Ekki kemur til greina að drepa Freyju. Erlent 20.7.2022 15:30
Leita að árásargjörnum apa sem brýst inn til fólks Api hefur síðustu vikur brotist inn í hús borgarinnar Ogori á eyjunni Honshu í Japan. Hann hefur ráðist á að minnsta kosti tuttugu íbúa borgarinnar, bitið þá og klórað. Erlent 20.7.2022 14:23
Komu örmagna kóp til bjargar við Reykjarvíkurhöfn Örmagna kóp með öngul í munni var komið til bjargar af vegfarendum á Granda í gærkvöldi. Annar þeirra, Sigríður Kristinsdóttir segist í fyrstu hafa haldið að móðurlaus kópurinn væri dauður en þegar svo reyndist ekki vera var kópnum komið í hendur næturvaktar Húsdýragarðsins. Innlent 19.7.2022 11:29
Gefa dýrunum frostpinna í hitabylgjunni Það eru ekki bara mennirnir sem þjást vegna hitabylgjunnar sem ríður núna yfir Evrópu. Dýrum er ekki síður heitt og þess vegna hafa starfsmenn evrópskra dýragarða tekið upp á því að gefa dýrunum frostpinna til kæla þau niður. Erlent 18.7.2022 17:05
Í útrýmingarhættu fyrir 70 árum en nú í stórsókn í Bandaríkjunum Dagur íslenska fjárhundsins er haldinn hátíðlegur í sjöunda sinn í dag með fjölbreyttri dagskrá um allt land. Forsvarsmaður segir alþjóðlegan aðdáendahóp tegundarinnar fara sístækkandi - enda hundarnir þeir bestu í heimi, að hennar sögn. Innlent 18.7.2022 11:13
Hundur hljóp á veginn og felldi keppendur í Tour de France Hundur hljóp í veg fyrir keppendur Tour de France hjólreiðakeppninnar í vikunni og tafði fjölda keppenda. Tveir féllu af hjólum sínum vegna hundsins. Erlent 17.7.2022 21:49
Lúsmýið úlfaldi úr mýflugu Meindýraeyðir telur að lúsmýið sé komið til að vera. Það virki að eitra fyrir flugunum en með því að eitra sé verið að drepa fleiri skordýrategundir í leiðinni. Innlent 15.7.2022 23:52
Ekki fúl út í Reykjavíkurborg eftir mánaðar aðskilnað Gleðifundir voru á heimili í Vesturbænum í gær þegar kötturinn Nóra kom aftur heim eftir að hafa verið numin á brott fyrir mánuði. Eigandinn segist alltaf hafa vitað að Nóra kæmi aftur heim - sama hversu langan tíma það tæki. Innlent 14.7.2022 21:43
Sparkaði í konu og hundana hennar Lögreglu barst í dag tilkynning frá konu sem hafði orðið fyrir árás manns en hún segir árásarmanninn hafa sparkað í sig og hundana sína. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 14.7.2022 17:31
Íslenska fjárhundinum fagnað á Árbæjarsafni Dagur íslenska fjárhundsins verður haldinn hátíðlegur á Árbæjarsafni mánudaginn 18. júlí frá klukkan eitt til fimm. Þar munu íslenskir fjárhundar og eigendur þeirra koma saman til að heilsa upp á gesti og gangandi. Menning 14.7.2022 16:56