Kóngafólk
Rannsókn hætt á fjársvikum fyrrverandi Spánarkonungs
Saksóknari á Spáni hefur hætt rannsókn á meintum skattsvikum og fjármálamisferli Jóhanns Karls, fyrrverandi konungs Spánar og ásökunum um að hafa þegið mútur frá Sádi-Arabíu. Konungurinn fyrrverandi hyggst dvelja áfram í sjálfskipaðri útlegð fjarri Spáni.
Harry stefnir útgefanda Daily Mail
Harry Bretaprins hefur höfðað meiðyrðamál gegn útgefanda breska dagblaðsins Daily Mail vegna greinar sem Mail On Sunday birti á sunnudag um öryggismál Harry og fjölskyldu.
Elísabet Bretadrottning með Covid
Elísabet Bretadrottning hefur greinst með kórónuveiruna. Í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni segir að hún sé með væg kvefeinkenni eins og er.
Segja hluta greiðslu Andrésar til Giuffre úr vasa drottningarinnar
Andrés prins mun greiða Virginu Giuffre og góðgerðarsamtökum hennar meira en tólf milljónir punda, um tvo milljarða íslenskra króna, vegna samkomulags þeirra um að mál Giuffre á hendur honum verði fellt niður. Bretlandsdrottning mun fjármagna greiðsluna að hluta.
Andrés semur við Giuffre
Andrés prins hefur gert samkomulag við Virginiu Giuffre, sem hefur sakað hann um að misnota sig kynferðislega þegar hún var sautján ára gömul. Giuffre segist hafa verið fórnarlamb mannsals og segir Andrés hafa nauðgað sér þrisvar sinnum á heimilum auðjöfursins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.
Karl Bretaprins greinist með Covid-19 í annað sinn
Karl Bretaprins hefur greinst með kórónuveiruna og er nú í einangrun. Þetta er í annað sinn sem Karl greinist með Covid-19, en hann greinist einnig í mars 2020 og fékk þá væg einkenni sjúkdómsins.
Margrét Þórhildur drottning með Covid-19
Margrét Þórhildur Danadrottning hefur greinst með kórónuveiruna.
Elísabet II hin sprækasta eftir sjö áratugi á valdastóli
Elísabet önnur drottning Bretlands og fjórtán samveldisríkja hefur í dag verið drottning í sjötíu ár, lengur en nokkur annar hefur setið í hásæti í Bretlandi. Hún lýsti því yfir í gær að Kamilla eiginkona Karls Bretaprins fái drottningartitil þegar hann tekur við krúnunni.
Elísabet útnefnir Camillu verðandi drottningu
Elísabet II Bretlandsdrottning tilkynnti í kvöld að hún vilji að Camilla, hertogaynja af Cornwall, verði ávörpuð sem drottning þegar Karl Bretaprins verður konungur.
Meghan og Harry lýsa yfir áhyggjum vegna falsfrétta Rogan
Harry Bretaprins og eiginkona hans Meghan Markle hafa lýst yfir áhyggjum vegna falsfrétta sem sendar séu út á streymisveitunni Spotify. Þau bætast í hóp tónlistarfólks, sem hefur gagnrýnt streymisveituna vegna hlaðvarpsins The Joe Rogan Experience.
Neitar að hafa verið góður vinur Ghislaine Maxwell
Andrés prins sem sakaður er um kynferðisbrot í einkamáli í Bandaríkjunum neitar því að hann hafi verið góður vinur Ghislaine Maxwell, sem á dögunum var sakfelld fyrir mansal og kynferðisbrot í tengslum við milljarðamæringinn Jeffrey Epstein. Prinsinn neitar einnig öllum sakargiftum.
Mikill meðbyr með glænýrri tillögu um að merki Danakonungs verði fjarlægt
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur skilað inn þingsályktunartillögu þess efnis að forseta Alþingis verði falið að fjarlægja kórónu og merki Kristjáns IX Danakonungs af Alþingishúsinu.
Norðmenn fagna átján ára afmæli Ingiríðar prinsessu
Ingiríður Alexandra Noregsprinsessa fagnar átján ára afmæli sínu í dag og hefur dagskrá hennar verið þétt skipuð síðustu daga í tilefni af tímamótunum.
Lögmenn Andrésar vilja yfirheyra sálfræðing Giuffre og eiginmann
Lögmenn Andrésar Bretaprins vilja fá að yfirheyra sálfræðing Virginiu Giuffre, sem hefur sakað prinsinn um nauðgun, og segja hana þjást af „fölskum minningum“.
Harry freistar þess að fá að greiða fyrir lögregluvernd í Bretlandi
Harry Bretaprins hefur farið fram á að dómstólar taki fyrir ákvörðun breska innanríkisráðuneytisins um að neita honum um að greiða fyrir lögregluvernd þegar hann og fjölskylda hans heimsækja Bretland.
Fékk drottninguna til að hlæja í tilefni dagsins: „Skal hundur heita ef ég læt kerlingu stjórna mér“
Fimmtíu ár eru liðin frá því að Margrét Þórhildur Danadrottning tók við krúnunni. Hátíðarhald var takmarkað vegna kórónuveirufaraldursins en þó var athöfn í danska þinghúsinu í tilefni dagsins. Forsætisráðherra Danmerkur minntist þess þegar landsmenn greiddu atkvæði um hvort kona mætti taka við krúnunni á sínum tíma.
Margrét nú verið drottning í hálfa öld
Danir fagna því í dag að fimmtíu ár eru liðin frá því að Margrét Þórhildur varð drottning landsins. Fyrirhuguðum hátíðarhöldum vegna valdaafmælisins hafði áður verið frestað til næsta hausts vegna heimsfaraldursins.
Andrés missir titla sína
Andrés prins hefur afsalað sér titlum sínum vegna ásakana gegn honum um kynferðisbrot. Um er að ræða titla hans innan hersins og konungsfjölskyldunnar og mun hann ekki koma að opinberum viðburðum en þessi ákvörðun var tekin með samþykki Elísabetar drottningar, móður Andrésar.
Lögmaður Giuffre segir hana ekki munu sætta sig við fjárhagslega sátt
Virginia Giuffre mun að öllum líkindum ekki sætt sig við sátt í málinu gegn Andrési Bretaprins ef hún felur aðeins í sér fjárhagslegar skaðabætur. Lögmaður Giuffre segir hana vilja að sannleikurinn verði leiddur í ljós, fyrir sig og aðra þolendur Jeffrey Epstein.
Varð ekki við beiðni Andrésar prins um frávísun
Dómari í máli Virginiu Giuffre gegn Andrési prins hefur hafnað því að málinu verði vísað frá dómstólum í Bandaríkjunum.
Viktoría krónprinsessa greindist aftur með Covid-19
Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar greindist í dag með Covid-19. Þetta er í annað sinn sem prinsessan fær sjúkdóminn en fram kom í mars síðastliðnum að hún og eiginmaður hennar Daníel Prins væru komin í einangrun. Þá veiktust hvorugt þeirra illa.
Dómarinn á báðum áttum vegna samkomulagsins við Epstein
Dómari í máli Virginiu Giuffre gegn Andrési prins virðist á báðum áttum þegar kemur að tilraun lögmanna Andrésar til að nýta sér gamalt samkomulag Giuffre við Jeffrey Epstein til að fá málinu vísað frá dómstólum. Dómarinn er þó sagður hafa virst efins um þessa túlkun lögmanna prinsins.
Sænsku konungshjónin með Covid-19
Karl Gústaf XVI, konungur Svíþjóðar, og Silvia drottning hafa bæði greinst með Covid-19.
Telja samning Giuffre við Epstein fría Andrés prins af ábyrgð
Virgina Giuffre, sem kært hefur Andrés prins fyrir nauðgun, tók á móti greiðslu úr hendi Jeffrey Epstein árið 2009 gegn því að höfða ekki mál gegn „mögulegum sakborningum“ vegna kynferðisofbeldis.
Vörður drottningarinnar steig á barn
Einn af vörðum drottningarinnar í London gekk nýverið yfir og steig á barn við Tower of London-virkið. Tveir hermenn voru í varðferð þegar barnið varð á vegi þeirra og annar hermaðurinn gekk á það og yfir.
Handtekinn við Windsor-kastala með lásboga
Lögreglan í Bretlandi rannsakar nú myndband sem tengt hefur verið við mann sem handtekinn var vopnaður lásboga í grennd við Windsor-kastala á Jóladag.
Reyndi að brjótast inn í kastala drottningar vopnaður lásboga
Nítján ára karlmaður frá Southampton hefur verið vistaður á geðheilbrigðisstofnun eftir að hann reyndi að brjótast inn í Windsor-kastala þar sem Elísabet Englandsdrottning dvelur yfir hátíðirnar. Hann var vopnaður lásboga.
Vopnaður maður handtekinn þar sem drottningin dvelur
Breska lögreglan handtók í gær vopnaðan mann á lóð Windsor-kastala, þar sem Elísabet Englandsdrottning hefur dvalið um jólin.
Harry og Meghan deila fyrstu myndinni af Lilibet á jólakorti
Harry Bretaprins og Meghan Markle birtu í morgun jólakort með mynd af fjölskyldunni og er það jafnframt fyrsta mynd sem þau birta af dóttur sinni Lilibet sem fæddist fyrr á þessu ári.
Mary prinsessa greindist með COVID-19
Mary prinsessa, eiginkona Friðriks krónprins Danmerkur, greindist með COVID-19 í dag.