Hinsegin

Fréttamynd

Ís­lenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka

Það hefur verið mjög undarlegt að fylgjast með þjóðfélagsumræðunni undanfarna daga í tengslum við skemmdarverkið á hinsegin fánanum við Grafarvogskirkju. Um ritvöllinn og kommentakerfin flykkist fólk sem fagnar þessu og spyr hvort íslenski fáninn sé nú orðinn að hatursglæp.

Skoðun
Fréttamynd

Skemmdarvargarnir enn ófundnir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir mennina sem máluðu íslensku fánalitina yfir regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju í gærnótt enn ófundna. Hún segir að á myndefni af svæðinu sjáist að minnst tveir hafi verið að verki.

Innlent
Fréttamynd

Skemmdar­verkið setti svip sinn á út­för

Skemmdarverk við Grafarvogskirkju setti svip sinn á útför þar í dag þar sem lögregluborðar og málningarfótspor blöstu við gestum. Formaður Samtakanna 78 segir um mikið áhyggjuefni að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Ætla aftur að mála regnbogafánann

Grafarvogskirkja ætlar að standa fyrir því að fáni hinsegin fólks verði aftur málaður við tröppur kirkjunnar á næstu dögum. Málað var yfir fánann með íslensku fánalitunum af óþekktum einstaklingum í skjóli nætur, um síðustu nótt.

Innlent
Fréttamynd

Rann­saka málið sem hatursglæp

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál um skemmdarverk á regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju. Lögregla segir málið rannsakað sem hatursglæp. 

Innlent
Fréttamynd

Skemmdar­vargar máluðu yfir regn­bogafánann

Málað var yfir fána hinsegin fólks við tröppur Grafarvogskirkju í nótt með íslensku fánalitunum. Í samtali við fréttastofu staðfestir séra Arna Ýrr Sigurðardóttir að gjörningurinn hafi ekki verið á vegum kirkjunnar.

Innlent
Fréttamynd

Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju

Yfirvöld í Tyrklandi hafa neitað skemmtiferðaskipinu Scarlet Lady um heimild til að sigla í höfn í hafnarbænum Kuşadası þar sem farþegarnir samræmast ekki samfélagslegum gildum íbúa. Skemmst er frá því að segja að um borð eru 2.000 hommar.

Erlent
Fréttamynd

Mormónastjarna kemur út úr skápnum

Raunveruleikastjarnan Layla Taylor úr alræmdu þáttunum Secret Lives of Mormon Wives hefur fundið ástina með nýrri kærustu. Taylor kom út sem tvíkynhneigð í hlaðvarpi Jay Shetty og segir að strangt trúarlegt uppeldið hafi gert henni erfitt að skilja kynhneigð sína.

Lífið
Fréttamynd

Nú­verandi hita­bylgja „sú al­var­legasta sem mælst hefur“

Útlit er fyrir að hitamet verði slegin víðs vegar um Evrópu í dag. Búist er við því að hiti verði allt að 34 stig í Danmörku. Gefin hefur verið út rauð viðvörun víða um álfuna og búist við því að hiti nái allt að 40 stigum í Þýskalandi og Hollandi. Á Balkanskaga á einnig hiti að vera verulegur. Tugir hafa látist í Frakklandi og Spáni síðustu daga og þar á meðal fjögur ung börn.

Erlent
Fréttamynd

Kallaði Michelle Obama karl­mann á af­mælis­hátíð Trump

Keppandi sem tók þátt í bardagamóti við Hvíta húsið í tilefni af afmæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta í gær kallaði Michelle Obama, fyrrverandi forsetafrú, karlmann í viðtali eftir bardaga. Áhorfendur ögruðu einnig kanadískum keppanda með hrópum um innlimun Kanada.

Erlent
Fréttamynd

Af á­vöxtunum skuluð þér þekkja þá

Nú þegar júnímánuður er genginn í garð lita regnbogafánar götur og torg um næstum allan heim. Fyrir sumum er þetta tími hátíðarhalda og gleði. Fyrir öðrum er mánuðurinn áminning um Stonewall-uppþotin árið 1969, þegar jaðarsettur hópur fékk nóg og ákvað að standa í fæturnar.

Skoðun
Fréttamynd

Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía

Breska ofurfyrirsætan Cara Delevingne hefur marga fjöruna sopið á sinni lífsleið. Cara er fædd árið 1992 og tilheyrir breskri yfirstéttarfjölskyldu þar sem allt leit vel út á yfirborðinu en innan veggja heimilisins voru mikil átök. Cara opnaði sig upp á gátt í hlaðvarpinu „Call her daddy“ á dögunum og leyndi engu.

Lífið
Fréttamynd

Madonna með heitustu dansmynd ársins

Poppstjarnan Madonna var að senda frá sér framúrstefnulega og sjóðheita tónlistarmynd þar sem margar áhugaverðar dægurmenningarstjörnur koma fyrir. Madonna, sem er 67 ára, slær ekki slöku við í tónlistarbransanum, er að gefa út breiðskífuna „Confessions II“ í júlí og er sannkölluð danssenu-drottning. 

Tónlist
Fréttamynd

Sund­laugar opnar til mið­nættis og ótak­mörkuð bíla­stæði

Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri í dag. Hún segir starfinu fylgja mikil ábyrgð og að hún muni skera niður í stjórnkerfinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að leggja niður bæði mannréttindaskrifstofu og mannréttindaráð. Í tillögum nýs meirihluta er gert ráð fyrir að lengja opnunartíma sundlauga um helgar á sumrin til miðnættis og afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. 

Innlent
Fréttamynd

Ætli sér ekki að banna hin­segin fánann

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og tilvonandi forseti borgarstjórnar, segir nýjan meirihluta ekki ætla að banna hinsegin fánann. Honum, og erlendum fánum, verði flaggað þegar tilefni sé til. Hún segir að utanríkismálum eigi að sinna í utanríkisráðuneytinu. Borgarfulltrúar eigi að vera með fókus á Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Skæri fyrir örv­henta

Ég keypti einu sinni óvart skæri fyrir örvhenta. Ég hafði ekki skoðað umbúðirnar nógu vel og skildi ekki hvað var í gangi þegar ég byrjaði að klippa með þeim. Voru þetta gölluð skæri? Kunni ég ekki lengur að klippa? Af hverju gekk þetta svona brösuglega?

Skoðun
Fréttamynd

Al­ræmdur faðir stígur fram

Barnið mitt er í Vesturbæjarskóla. Við foreldrarnir lögðum fram þá ósk til skólastjórnenda að fá undanþágu fyrir barnið okkar frá kynfræðslu skólans sem er í samvinnu við Samtökin 78.

Skoðun
Fréttamynd

Að­för sem krefjist þess að talað sé um kven­réttindi frekar en kynja­jafn­rétti

Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women, fundaði í mars með hundruðum félagasamtaka á árlegri kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Hún segir að í fyrsta skipti í 70 ára sögu þessa fundar hafi umræður og ályktun snúist um að verja þau réttindi sem þegar hafa náðst í stað þess að ræða það hvert eigi að stefna. Samtökin efna til fundar síðar í dag um bakslag í jafnréttismálum. 

Innlent
Fréttamynd

Hvernig sam­fé­lag má bjóða þér?

Fyrr í mánuðinum bárust fréttir af því að foreldrar barns í Vesturbæjarskóla hefðu fjarlægt barnið úr skólanum vegna hinseginfræðslu. Að kynnast mismunandi fjölskylduformum og upplifunum fólks er víst of mikil „innræting” að mati sumra. Nokkrum dögum síðar fengum við sem erum foreldrar barna í Vesturbænum tölvupóst um að fjölbreytileikavika yrði haldin í frístundaheimilum hverfisins, sem næði hápunkti með regnbogahlaupi síðastliðinn miðvikudag.

Skoðun
Fréttamynd

Nú er á­byrgðin þín kæri sveitarstjórnarmaður

Í dag er Alþjóðlegur baráttudagur gegn fordómum gegn hinsegin fólki, IDAHOBIT dagurinn. Dagurinn er haldinn þann 17. maí ár hvert með viðburðum og vitundarvakningu í meira en 130 löndum um allan heim, og miðar að því að auka vitund um brot á réttindum hinsegin fólks, auka þekkingu og vinna gegn fordómum.

Skoðun
Fréttamynd

„Mið­flokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“

Spjótin beindust að Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, í oddvitakappræðum Sýnar í kvöld þegar umræðan barst að regnbogafánum í skólastofunni. Ari sagði Miðflokksmenn standa með mannréttindum og benti á að hann ætti sjálfur dóttur og vin sem væru hinsegin.

Innlent