
Skotárásir í Bandaríkjunum

Fógeti skaut dómara
Fógeti strjálbýllar sýslu í Kentucky í Bandaríkjunum skaut í gær dómara til bana. Fógetinn er sagður hafa gengið inn í klefa dómarans um miðjan dag í gær og skotið hann nokkrum sinnum eftir rifrildi. Skömmu síðar gaf fógetinn sig fram til lögreglu og var handtekinn.

Hringdi í skólann og varaði við rétt fyrir árásina
Móðir unglingspilts sem skaut fjóra til bana í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum hringdi í skólann og varaði við „bráðri neyð“ rétt fyrir árásina. Hún hvatti skólaráðgjafa til að fara og finna son hennar strax.

Umfangsmikil leit að manni sem skaut fimm í Kentucky
Skólar í miðhluta Kentucky verða lokaðir í dag vegna leitar lögreglu að manni sem skaut á tólf bifreiðar og særði fimm á þjóðvegi norður af borginni London á laugardag.

Drap 81 dýr á þremur tímum
Maður sem grunaður er um að hafa drepið 81 dýr í Norður-Kaliforníu, þar á meðal smáhesta, geitur, hænur og páfagauka, segist alsaklaus. Meðal fórnarlamba hans voru smáhestarnir Lucky, Princess og Estrella auk fjölda annarra.

Gaf syni sínum byssu þrátt fyrir hótanir um skotárás
Faðir Colt Gray, fjórtán ára piltsins sem grunaður er um að hafa myrt fjóra í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum, hefur verið handtekinn og á yfir höfði sér ákæru.

Minnst fjórir látnir eftir skotárás í menntaskóla
Í það minnsta fjórir eru látnir eftir að skotárás var framin í menntaskóla í Georgíuríki í Bandaríkjunum í dag. Auk hinna fjögurra látnu eru fleiri tugir særðir.

UFC-bardagakappi lifði af skotárás
Bandaríski bardagakappinn Ramon Taveras lifði af skotárás fyrir utan heimili móður sinnar í Flórída.

Höfða mál gegn hundrað lögregluþjónum vegna árásarinnar í Uvalde
Foreldrar og fjölskyldumeðlimir nítján af 21 sem skotin voru til bana í grunnskóla í Uvalde í Texas árið 2022, ætla að höfða mál gegn nærri því hundrað lögregluþjónum á vegum Texas-ríkis sem komu að viðbrögðum yfirvalda við árásinni. Nítján börn og tveir kennarar voru skotnir til bana í árásinni en viðbrögð lögreglunnar hafa verið harðlega gagnrýnd úr öllum áttum frá því árásin átti sér stað.

Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana
Sá eða þeir sem urðu Iyönnu Brown að bana í júlímánuði í fyrra í Detroit-borg í Bandaríkjunum eru enn ekki fundnir.

Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann
Þann 3. maí bankaði lögregluþjónn á dyr íbúðar Rogers Fortson í Flórída. Nokkrum sekúndum síðar skaut hann Fortson, sem var þeldökkur og hermaður í flugher Bandaríkjanna, til bana. Fortson hélt á skammbyssu þegar hann kom til dyra en fjölskylda hans heldur því fram að lögregluþjónninn hafi bankað á rangar dyr.

Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte
Fjórir lögreglumenn voru skotnir til bana í bandarísku borginni Charlotte í Norður-Karólínu í nótt þegar þeir ætluðu að handtaka mann sem var eftirlýstur fyrir að eiga ólögleg skotvopn.

Foreldrar skotárásarmanns dæmdir í fangelsi
Foreldrar drengs sem framdi skotárás í skóla í Michican árið 2021 hafa verið dæmd í tíu til fimmtán ára langt fangelsi fyrir aðild sína að málinu og fengu þau dóma fyrir manndráp af gáleysi.

Mannskæðar skotárásir í Bandaríkjunum
Þó nokkrar mannskæðar skotárásir hafa átt sér stað víðsvegar um Bandaríkin á undanförnum dögum. Að minnsta kosti þrír lögregluþjónar og einn sjúkraflutningamaður hafa verið skotnir til bana í tveimur mismunandi atvikum, auk þess sem ein kona lét lífið og fimm særðust eftir að rifrildi á Waffle House veitingastað varð að skotbardaga.

Móðir dæmd samsek fyrir skotárás sem sonurinn framdi í skóla
Kviðdómur í Michigan í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu í gær að kona á fimmtugsaldri væri sek um manndráp af gáleysi, fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir það þegar sonur hennar skaut fjóra samnemendur sína til bana í gagnfræðaskóla í bæ þeirra.

Skaut átta til bana í Illinois
Byssumaður sem grunaður er um að hafa skotið átta til bana í borginni Joliet í Illinois í Bandaríkjunum í nótt er látinn eftir átök við lögreglu í Texas ríki, í tvöþúsund kílómetra fjarlægð.

Að minnsta kosti 706 létust í 650 fjöldaskotárásum
Alls létust 706 í fjöldaskotárásum í Bandaríkjunum í fyrra. Árásirnar voru 650 talsins og hafa aðeins einu sinni verið fleiri; voru 689 árið 2021.

Skaut systur sína til bana eftir deilur um jólagjafir
Lögregla í Bandaríkjunum hefur handtekið tvo bræður á táningsaldri eftir að systir þeirra var skotin til bana í kjölfar deilna um jólagjafir á heimili í Flórída.

Horfði í beinni á innbrot manns sem skaut fjölskylduna síðan til bana
Maður í Texas horfði í beinni á það þegar maður braust inn á heimili hans áður en hann skaut konu hans og dóttur til bana. Árásin var hluti af berserksgangi skotmannsins sem drap sex og særði þrjá í Texas á þriðjudag.

„Maður vissi ekkert hvar skotmaðurinn var“
Hermann Þór Ragnarsson, nemandi við Háskóla Nevada í Las Vegas í Bandaríkjunum, segir nemendur við skólann í sjokki eftir skotárás á skólalóðinni í gær. Margir hafi ekki snúið aftur í skólann.

Íslenskur nemandi í Las Vegas: „Ólíkt öðru sem ég hef upplifað áður“
Hermann Þór Ragnarsson, nemandi við Háskóla Nevada í Las Vegas í Bandaríkjunum, segist aldrei hafa upplifað annað eins, eftir að skotárás var gerð í skólanum fyrr í kvöld.

Skotárás í Las Vegas: „Flýið, felið ykkur, berjist“
Lögreglan var kölluð að lóð Háskóla Nevada í Las Vegas í Bandaríkjunum í kvöld vegna skothríðar sem heyrðist á lóðinni. Þrír liggja í valnum, auk árásarmannsins, og einn er særður.

Bjóða Jones að borga tólf milljarða í stað tvö hundruð
Foreldrar barna sem skotin voru til bana í árásinni í Sandy Hook á árum áður hafa boðið samsæriskenningasmiðnum Alex Jones samkomulag um skaðabætur. Hann hefur verið dæmdur til að greiða þeim einn og hálfan milljarð dala í skaðabætur fyrir að dreifa samsæriskenningum um þau og börnin.

Fleiri særðir eftir skotárás á geðsjúkrahúsi
Margir eru særðir eftir skotárás á sjúkrahúsi í New Hampshire-ríki í Bandaríkjunum fyrr í kvöld.

Eignuðust meistaralið aðeins nokkrum vikum eftir fjöldaskotárás
Fólkið í Lewiston hafði ástæðu til að fagna um helgina aðeins nokkrum vikum eftir hryllilega fjöldaskotárás í bænum.

Fimmtán skotnir í hrekkjavökupartíi
Að minnsta kosti fimmtán voru skotnir í hrekkjavökupartíi í borginni Chicago í Bandaríkjunum í nótt. Tveir særðust alvarlega. Árásarmaðurinn reyndi að flýja á tveimur jafnfljótum en var handtekinn skammt frá vettvangi.

Voru varaðir við hótunum byssumannsins
Lögregluembætti í Maine í Bandaríkjunum voru í síðasta mánuði vöruð við duldum hótunum Robert Card. Nokkrum vikum síðar framdi hann mannskæðustu skotárás ríkisins er hann skaut átján manns til bana og særði þrettán.

Byssumaðurinn í Maine fannst látinn
Robert Card, sem grunaður er um að hafa orðið átján að bana í skotárás í Maine í Bandaríkjunum á miðvikudag, fannst látinn í gær. Umfangsmikil leit að honum hafði staðið yfir í tvo daga.

Leit stendur enn yfir að byssumanninum í Maine
Mannsins, sem skaut átján til bana og særði þrettán í Lewiston á miðvikudagskvöld, er enn leitað. Lögregla leitaði hús úr húsi í heimabæ mannsins í gærkvöldi.

Leit að byssumanni í Maine ekki enn borið árangur
Lögreglan í Maine leitar enn mannsins sem skaut 18 til bana í gærkvöldi í Lewiston. Leitarsvæðið er um 1.800 ferkílómetrar. Sá grunaði er fyrrverandi hermaður og er þjálfaður í notkun skotvopna. Þingmaður hefur kallað eftir banni á sjálfvirkum vopnum eins og Card notaði í gær.

Íbúum í Lewiston og nærliggjandi bæjum sagt að halda sig inni við
Hundruð lögreglumanna leita nú Robert Card, 40 ára, sem er grunaður um að hafa orðið að minnsta kosti sextán að bana í tveimur skotárásum í borginni Lewiston í Maine í Bandaríkjunum.