Fréttir
43 44 45 46 47 48 49 50 51 … 334 ›
HIV-faraldur hjá sprautufíklum Aldrei hafa sprautufíklar verið jafnstór hluti þeirra sem greinast með HIV og nú. Það sem af er ári hafa sautján greinst með veiruna, þar af eru þrettán sprautufíklar. Á síðasta ári greindust 24 með HIV-smit, fleiri en nokkru sinni, þar af voru tíu sprautufíklar. Innlent 2.9.2011 21:49
Nýtt athvarf fyrir fólk á leið úr vændi Stígamót opnuðu nýtt athvarf fyrir konur sem eru að stíga út úr vændi og mansali í gær. Athvarfið er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Fjöldi sjálfboðaliða mun vinna á staðnum, en heimilisfangið verður ekki gefið upp til að vernda þá sem þangað sækja. Innlent 2.9.2011 21:49
Elstu teikningarnar frá 1944 Sýning með teikningum eftir Erró opnar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi í dag. Um 200 teikningar eru á sýningunni sem er skipulögð í náinni samvinnu við Erró og byggð á verkum sem koma úr einkasafni listamannsins og safneign Listasafns Reykjavíkur. Innlent 2.9.2011 21:49
Þráinn stöðvaði stjórnkerfisbreytingar Til stóð að allsherjarnefnd afgreiddi frumvarp um stjórnkerfisbreytingar í gær en til þess kom þó ekki. Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna, greiddi atkvæði gegn frumvarpinu og þar með var ekki meirihluti fyrir því. Innlent 2.9.2011 21:49
Opinber útgjöld nær helmingur landsframleiðslu Opinber útgjöld, að frádregnum ellilífeyrisgreiðslum almannatrygginga, eru hlutfallslega hæst á Íslandi meðal Evrópuríkja. Þetta kemur fram í tölum sem Samtök atvinnulífsins (SA) hafa birt. Innlent 2.9.2011 21:49
Eru sakaðir um barnaníð Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) kanna nú ásakanir þess efnis að friðargæsluliðar þeirra á Fílabeinsströndinni hafi ítrekað misnotað börn og ólögráða ungmenni í vesturhluta landsins kynferðislega. Erlent 2.9.2011 21:49
Enn einn í haldi vegna hlerana Breska lögreglan hefur handtekið einn mann til viðbótar vegna símhlerana blaðsins News of the World. Erlent 2.9.2011 21:49
Rafbækur og nettónlist í lægra þrep Efnahags- og skattanefnd afgreiddi í gær frumvarp um að lækka virðisaukaskatt á rafbækur og tónlist á netinu. Þessir vöruflokkar eru nú í hærra skattþrepi og bera 25,5 prósenta skatt, en munu bera 7 prósenta skatt verði breytingin að veruleika. Innlent 2.9.2011 21:49
Fagnar áhuga Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fagnar áhuga kínverska auðjöfursins Huangs Nubo á fjárfestingum hérlendis. Þetta kemur fram í viðtali breska dagblaðsins Financial Times við forsetann. Innlent 2.9.2011 21:49
Fóru yfir símtöl blaðamanns Innanríkisráðherra Frakklands hefur staðfest að leyniþjónusta landsins hafi í fyrra aflað sér yfirlits yfir símtöl blaðamanns á blaðinu Le Monde. Þannig átti að reyna að finna uppljóstrara hans í dómsmálaráðuneytinu. Erlent 2.9.2011 21:49
Allt á uppleið eða í kaldakoli Ætla mætti að stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar lifi ekki í sama samfélaginu, ef marka má umræður á Alþingi. Þing kom saman að nýju í gær og til umræðu var munnleg skýrsla forsætisráðherra um stöðuna í efnahags- og atvinnumálum. Stjórnarliðar gerðu mikið úr þeim árangri sem náðst hefði í efnahagsmálum og vitnuðu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og erlendra, jafnt sem innlendra, álitsgjafa máli sínu til stuðnings. Innlent 2.9.2011 21:49
Reglum um erfðabreyttan mat frestað Neytendamál Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur frestað til áramóta gildistöku reglugerðar um merkingu og rekjanleika erfðabreyttra matvæla, sem átti að taka gildi síðastliðinn miðvikudag. Neytendasamtökin mótmæla frestuninni harðlega en lögfræðingur í ráðuneytinu segir innflytjendur hafa beðið um frestinn. Sá hluti reglugerðarinnar sem veit að merkingum dýrafóðurs úr erfðabreyttum hráefnum hefur þegar tekið gildi. Innlent 2.9.2011 21:49
Reka sendiherra Ísraels úr landi Tyrkir hafa vísað sendiherra Ísraels úr landi og rift tímabundið öllum hernaðarsamningum við landið. Ástæðan er sú að Ísraelar neita að biðjast afsökunar á því að hafa í fyrra ráðist á skip sem sigldi undir tyrkneskum fána áleiðis til Gasa. Þar létust níu tyrkneskir aðgerðasinnar. Erlent 2.9.2011 21:49
Hefur ekki lagt fram formlegt tilboð Byggingarreiturinn sunnan við tónlistarhúsið Hörpu var boðinn út í júlí síðastliðnum. Eignarhaldsfélaginu Sítus, dótturfélagi Austurhafnar ehf., bárust sex formleg tilboð frá aðilum sem lýstu yfir áhuga á að reisa þar hótel. Samkvæmt upplýsingum frá Sítusi var Nubo ekki einn þeirra. Þeir sem gerðu tilboð í reitinn koma meðal annars frá Indlandi, Sviss og Íslandi. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hver þessara sex aðila, ef einhver, fái reitnum úthlutað en verið er að fara yfir málið. Innlent 2.9.2011 21:49
Sífellt meira geimrusl Vísindamenn í Bandaríkjunum segja nauðsynlegt að setja alþjóðlegar reglur um hluti sem sendir eru út í geiminn, geimflaugar, gervihnetti og annað slíkt, sem svífur áfram umhverfis jörðina löngu eftir að allri notkun er hætt. Erlent 2.9.2011 21:49
Segir Samkeppniseftirlitið leggja Forlagið í einelti Jóhann Páll Valdimarsson, útgefandi hjá Forlaginu, segir Samkeppniseftirlitið hafa lagt fyrirtækið í einelti síðustu ár. Þrátt fyrir blómlega samkeppni í útgáfu láti eftirlitið fyrirtækið ekki í friði. Innlent 2.9.2011 21:49
Segja Jóhönnu fara rangt með Samtök atvinnulífsins (SA) segja að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafi farið með rangt mál á Alþingi í gær þegar hún fullyrti að hlutur launa í landsframleiðslu hefði aldrei verið lægri en nú, eða 59 prósent samanborið við yfir 72 prósent árið 2007. Innlent 2.9.2011 21:49
ÍLS braut ekki jafnréttislög Íbúðalánasjóður braut ekki jafnréttislög þegar hann réð Sigurð Erlingsson sem framkvæmdastjóra sjóðsins haustið 2010. Þetta er niðurstaða kærunefndar jafnréttismála. Innlent 2.9.2011 21:49
Huang Nubo vill reisa lúxus-hótel við hliðina á Hörpu Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo vill reisa 300 herbergja lúxushótel í Reykjavík. Nubo vill hefja framkvæmdir við uppbyggingu ferðamannaþjónustu á Grímsstöðum á Fjöllum sem fyrst, en hann bíður nú eftir undanþágu frá innanríkisráðuneytinu fyrir kaupum á lóðinni. Þetta segir Halldór Jóhannsson, aðstoðarmaður Nubo á Íslandi. Innlent 2.9.2011 21:49
Uppreisnarmenn sækja fram Uppreisnarhreyfingin í Líbíu, sem nú hefur að mestu náð völdum í landinu, bjó sig í gær undir innrás í Sirte, heimabæ Múammars Gaddafí. Erlent 2.9.2011 21:49
Sendi 100 dali í þakkarskyni Bandarískur ferðamaður sem björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ bjargaði úr sjálfheldu snemma í ágúst sendi sveitinni þakkarbréf frá Bandaríkjun-um, og lét fylgja með ávísun að andvirði 100 Bandaríkjadala, sem jafngildir um 11.500 krónum. Innlent 2.9.2011 21:49
Vilja ólmir hærri skatta Víða í Evrópulöndum hafa auðmenn tekið undir kröfur bandaríska peningamannsins Warrens Buffet um hærri skatta á hendur auðjöfrum. Erlent 2.9.2011 21:49
Borgina vantar 43 starfsmenn Reykjavíkurborg vantar enn 43 starfsmenn til að manna stöður á frístundaheimilum. Fjöldi barna á biðlista eftir plássi er nú um 350. Í síðustu viku vantaði 86 starfsmenn og um 650 börn voru á biðlista. Eva Einarsdóttir, formaður íþrótta- og tómstundaráðs, vonast til þess að búið verði að ráða í allar stöður á næstu tveim til þrem vikum. „Það endaði að minnsta kosti þannig í fyrra. Þetta small saman að lokum,“ segir Eva.- sv Innlent 2.9.2011 21:49
Slasaðist illa og hjólið brotnaði í tvennt Þegar Guðbjörg Halldórsdóttir fór í hjólreiðatúr í Fossvogsdalnum á góðviðrisdegi í júlíbyrjun átti hún ekki von á því að hún yrði meira og minna frá vinnu næstu tvo mánuðina. Innlent 2.9.2011 21:49
Meintur nauðgari neitaði sök Ákæra hefur verið gefin út á hendur manni sem situr í varðhaldi, grunaður um nauðgun á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Ákæran var þingfest fyrir Héraðsdómi Suðurlands á fimmtudag og neitaði maðurinn sök. Innlent 2.9.2011 21:49
Stofna andófsfólki í hættu Lekasíðan Wikileaks hefur nú birt öll bandarísku sendiráðsskjölin, sem hún hóf birtingu á í lok síðasta árs í samvinnu við nokkra helstu fjölmiðla heims. Erlent 2.9.2011 21:49
Jónsi dáleiddi Crowe Bandaríski leikstjórinn Cameron Crowe er almennt talinn vera snillingur í notkun tónlistar í kvikmyndum sínum. En hann hyggst venda kvæði sín í kross í sinni nýjustu mynd með aðstoð Jónsa úr Sigur Rós. Lífið 1.9.2011 21:49
Fjöldi undanþága veittur Innanríkisráðuneytið, áður dómsmálaráðuneytið, hefur frá árinu 2007 veitt 24 undanþágur frá banni við því að aðilar utan Evrópska efnahagssvæðisins kaupi fasteignir og lóðir hér á landi. Innlent 1.9.2011 22:15
Ánægjuleg þróun „Það er mjög ánægjulegt að þessi þróun heldur áfram, heildarendurheimtuhorfurnar batna og fé kemur hraðar inn þannig að handbært fé er orðið umtalsvert," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um nýtt mat á eignum þrotabús Landsbankans. Innlent 1.9.2011 22:15
Bretar og Hollendingar fá allt til baka "Þetta eru afskaplega góð tíðindi. Þetta sýnir að þær breytingar sem við gengumst fyrir í hruninu með neyðarlögunum, þegar innstæðum var skapaður forgangur, munu leiða til þess að innstæðueigendur í Bretlandi og Hollandi fái allt sitt til baka, jafnvel þó að þeir hafi verið með innstæður umfram það sem innstæðutryggingarkerfið átti að tryggja,“ segir Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, um nýtt mat á eignum þrotabús Landsbankans. Innlent 1.9.2011 22:15